Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Page 25
DV. LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER1985.
25
Karjalainens kólnaði mjög á áttunda
áratugnum. Ahti Karjalainen var
utanríkisráðherra árum saman í
stjórn Kekkonens. Almennt var talað
um Karjalainen sem „krónprins”
Kekkonens. Það kom svo mörgum á
óvart að 1977 kallaði Kekkonen
„krónprinsinn” inn á teppið til sín og
sagði honum að bæði vináttu þeirra
og samstarfi væri nú lokið. Karjalain-
en fékk yfir sig skammadembu - og
var sakaður um að hafa snúist gegn
forsetanum. Ekki tjóaði neitt fyrir
Karjalainen að skýra sitt mál - vin-
slitinvorualger.
Kekkonen hafði lengi haft áhyggjur
af drykkjuskap Karjalainens og átti
það til að hæða hann í vinahópnum.
Einhvern tíma á hann að hafa sagt:
„Hafið þið heyrt að nú er hann Ahti
orðinn trúaður? í gær féll hann þrisv-
ar á kné niðri á Brunnshúsi” (þekkt
veitingahús í Helsingfors).
Paavo Váyrynen utanríkisráð-
herra, sem mistókst að fella ríkis-
stjórnina vorið 1981, heldur því fram
í bókinni að Kekkonen hafi stutt sig
á alla lund við að reyna að fella Koi-
visto. Eftir því sem Váyrynen segir á
Kekkonen að hafa gert Koivisto að
forsætisráðherra í þeim tilgangi að
„þessi hálfguð lendi nú meðal venju-
legra dauðlegra þegar hann nú verður
forsætisráðherra”.
Kekkonen reiknaði með að vinsæld-
ir Koivistos fykju út i veður og vind
þegar hann yrði, sem forsætisráð-
herra, að fara að fást við veraldlega
og áþreifanlega hluti. En Koivisto
hafði áður verið bankastjóri.
Höfundar bókarinnar halda því og
fram að núverandi forsætisráðherra
Finna, Kalevi Sorsa, hafi fram undir
það síðasta tekið þátt í ráðabruggi um
að fella Koivisto og að Sorsa hafi þess
vegna staðið í sambandi við Kekkon-
en. En þessa síðastnefndu fullyrðingu
geta höfundar þó ekki stutt sönnun-
umíbókartexta.
Minnisleysi
Sjúkdómi forsetans, blóðstreymis-
truflunum í höfði, var haldið leyndum
fram undir það síðasta. En þeir sem
stunduðu forsetann vegna þessa segja
nú að þeir hafi hreinlega ekki gert sér
grein fyrir því hversu alvarlegur sjúk-
dómurinn var. Margir þeirra, sem
rætt er við í bókinni, kannast við að
hafa einhvem tíma á áttunda ára-
tugnum rekið sig á minnisleysi forset-
ans en jafnan kennt um háum aldri
• Mauno Koivisto — í opin-
barri heimsókn á islandi,
staddur ásamt Vigdísi Finn-
bogadóttur að Bessastöðum.
hans. Arið 1981, þegar tjaldið var
greinilega farið að dragast fyrir leik-
svið Kekkonens, var hann á skíðaferð
í Lapplandi. Hann sat við eldinn og
vinur hans til margra ára, Erkki
Huurtamo landshöfðingi, söng vísu
þar sem hann sat við hlið hans. Lands-
höfðinginn ruglaðist í vísunni, mundi
ekki textann og spurði Kekkonen
hvort hann gæti ekki tekið undir,
hjálpað sér við sönginn.
„Ég man ekkert,” sagði Kekkonen.
„Víst manstu,” sagði Huurtamo. Þá
greip Kekkonen í Huurtamo og sagði:
„Heyrðu, „Pirre”, ég man ekkert
lengur.”
Kekkonen hvíslaði þessi orð.
Þann 27. október 1981 tilkynnti
Kekkonen um afsögn sína.
-GG þýddi ogjók.
• Knut Ödegárd. • Thor Vilhjálmsson.
Tuttugu og átta
skáldjöf rar á
umfangsmestu
Ijóðahátíð
— sem haldin hefur verið í löndum
norrænna manna
„Það vakir fyrir okkur að halda
sem besta ljóðlistarhátíð og fá sem
best skáld,” sagöi Thor Vilhjálmsson
rithöfundur, einn af forsprökkum
þess að stefna hingaö fríöu liöi
skálda til hátíðar. „Eg sé ekki annað
en að þetta verði mesta ljóðlistar-
hátíö sem nokkru sinni hefur verið
haldin á Norðurlöndum og þó víðar
væri leitað,” sagði Thor ennfremur.
Hátíöin hefst á mánudaginn með
setningu í hátíðarsal Háskólans kl.
14.00. Síðar um daginn verður mál-
þing um ljóðlist á tækniöld og um
kvöldið kl. 20.30 verður ljóðakvöld í
Norræna húsinu. Fram til föstudags
verða síðan lesin ljóð í Norræna hús-
inu hvert kvöld. Á miövikudaginn og
fimmtudaginn verður að auki boðið
upp á erindi og umræður um ljóðlist.
„Það er von okkar að ljóðlistar-
hátíöin færi ljóðið til stærri lesenda-
hóps,” sagði Knut 0degárd, forstjóri
Norræna hússins, um tilganginn með
hátíðahöldunum. „Það er og von okk-
ar að hátíðin verði til þess að styrkja
bókmenntalegt samstarf á Norður-
löndum og ryðji norrænni ljóðlist
færar leiðir út fyrir norrænar heima-
slóðir. Þetta er norræn ljóöahátíð
meðalþjóölegu ívafi,”sagðiKnut.
Af alþjóðlegu meisturunum er
Georges Gascoyne frá Englandi trú-
lega þekktastur. Hann á aö baki
langan feril í listinni frá því hann
birti fyrstu verk sín í París á árunum
fyrir síðari heimsstyrjöldina. Alls
koma sjö skáld frá löndum utan
Norðurlandanna.
Frá hverju Norðurlandanna koma
3 fulltrúar, utan hvað Islendingar
tefla fram 6 manna liði. Þá koma til
hátíðarinnar fulltrúar frá Fær-
eyjum, Grænlandi og Samalandi.
Forseti Islands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, er verndari hátiðarinnar.
Heiðursgestur er Snorri Hjartarson
skáld. Aðgangur er ókeypis öll kvöld
íNorræna húsinu.
GK
Hörkugóðir bílar á góðu verði.
Pottþéttir í akstri, viðhaldi og endursölu.
Við bjóðum sérlega hagstæð greiðslukjör og tökum jafnvel
gamla bílinn upp í þann nýja!
BILVANGURs/r
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Á BÍIASÝNINGU
KL. 13.00 - 17.00 LAUGARDAG
KOMIÐ OG KYNNIST KRAFTMIKLUM NÝJUNGUM.
<
Auglýsingaþjónustan