Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1985, Blaðsíða 25
DV. LAUGARDAGUR14. SEPTEMBER1985.
25
Valsmenn enduðu frábæran loka-
sprett sinn í 1. deildarkeppninni á
viðeigandi hátt — að leggja KR-inga
aö velli á heimavelli sínum, Hlíðar-
enda, og tryggja sér þar með
Islandsmeistaratitilinn í knatt-
spyrnu 1985. Valsmenn léku þá
þrettánda leik sinn í röö í deildinni án
taps, en það er mjög góður árangur.
Þegar þeir tóku við sér höföu þeir
aðeins fengið sjö stig af fimmtán
mögulegum eftir fyrstu fimm um-
ferðirnar. Þegar sjö umferðir voru
búnar voru þeir tíu stigum á eftir
efsta liðinu, Fram.
Þessum árangri náöu Valsmenn
undir stjórn Ian Ross, hins geð-
þekkja þjálfara. Eg man alltaf orð
hans er ég spuröi hann fyrir Islands-
mótiö hverjir yrðu erfiðustu mót-
herjar Valsmanna. „Eg hef ekkert
hugsað um það, ég hugsa aðeins um
okkur, hef ekki áhyggjur af öðrum
félögum.” Valsmenn náðu ekki
forustu í deildinni fyrr en tvær um-
ferðir voru eftir. Þá skutust þeir upp
fyrir Framara — náðu eins stigs for-
skoti. Eftir að vera komnir á
toppinn sögöu Valsmenn: „Takk
fyrir, nú skulum við klára dæmið.”
Og það gerðu þeir.
Valsmenn fengu 31 stig úr út
síðustu þrettán leikjum sínum —
unnu níu leiki og gerðu fjögur
jafntefli. Valsliðið er með snjalla
einstaklinga, geysilega sterka
miðverði, þar sem þeir Sævar Jóns-
son og Guðni Bergsson eru og þá fór
Guðmundur Þorbjörnsson á kostum
undir lokin. Koma Heimis Karls-
sonar til Valsmanna virkaði sem
vítaminsprauta á Valsliðið og við
komu hans losnaöi mikið um
Guömund Þorbjömsson, sem fékk að
njóta sín.
Guðmundur frábær
Já, Guðmundur Þorbjömsson var
hreint frábær á lokasprettinum,
ast ekki upp þó að á móti blási — þau
eru stór V alshjörtun.
Hart barist um
hina ýmsu skó
Nú eru aöeins fjórir leikir eftir í 1.
deildinni. Er ljóst að aldrei hefur
verið barist eins hart um marka-
kóngstitilinn. Guðmundur Þor-
bjömsson og Omar Torfason, Fram,
em markahæstir með 12 mörk.
Hörður Jóhannesson frá Akranesi
kemur næstur á blaði með 11 mörk og
síðan þeir Guðmundur Steinsson,
Fram, og Ragnar Margeirsson,
Keflavík, með 10 mörk.
Það getur vel farið svo að tveir til
þrír leikmenn verði markahæstir,
tveir leikmenn í öðru sæti og tveir í
þriðja sæti. Það myndi kosta mikið
skóflóö hjá ADIDAS. Margir gull-,
silfur- og bronsskór yrðu á lofti.
Fallslagur
Það verður hart barist á Garðs-
vellinum í dag, þegar Víðismenn fá
Þróttara í heimsókn. Bæði liðin eru
með þrettán stig. Þrótturum dugar
jafntefli til að Víðismenn falli með
Víkingum. Víðir þarf að vinna
sigur því aö félagiö er með lakari
markatölu en Þróttur. Fjörið verður
í Garðinum í dag og má fastlega
reikna með að Suðurnesjamenn fjöl-
menni þangað til að styðja við bakiö
á leikmönnum Víðis.
UEFA-sætið
eftirsótta
Valsmenn eru nú þegar búnir að
tryggja sér rétt til að leika í Evrópu-
keppni meistaraliða næsta ár og
Framarar leika í Evrópukeppni
bikarhafa. Þriðja Evrópusætið, þátt-
taka í UEFA-keppninni, er enn laust.
Um það sæti berjast Skagamenn og
Snjall lokasprett-
ur Valsmanna
tryggði þeim íslandsmeistaratitilinn
skoraði átta mörk af þeim fjórtán
sem Valsmenn skoruðu undir lokin.
Hann skoraöi sigurmark, 1—0, gegn
Víkingi, tvö mörk gegn Keflavík, 2—
1, sigurmarkið gegn KR, 1—0, tvö
mörk gegn Þór, 3—0, og tvö mörk
gegn Víði, 3—1. Það er ríkt félag sem
hefur leikmann á borð við Guðmund í
herbúðum sínum — hann býr yfir
gífurlegri reynslu, er útsjónarsamur
og þefar uppi marktækifærin. Þegar
hann fær þau þarf ekki að spyrja um
framhaldið.
Það er ljóst að þegar upp verður
staöiö í Broadway annaö kvöld,
getur ekki öðruvísi farið en að hann
verði útnefndur knattspyrnumaöur
ársins 1985 af knattspyrnumönnum.
Þeir eru nú þegar búnir að greiða at-
kvæði — úrslit verða kunngjörð um
miðnætti annað kvöld. Eg spái því
að Halldór Áskelsson úr Þór verði út-
nefndur efnilegasti leikmaður 1.
deildar. Halldór hefur staðiö sig frá-
bærlega með Þórsliðinu í sumar.
Sárt fyrir
Framara
Valsmenn eru vel að Islands-
meistaratitlinum komnir — þeir
gáfust aldrei upp. Það er aftur á móti
sárt fyrir Framara að horfa á eftir
titlinum til Vals. Þeir geta sjálfum
sér um kennt. Þeir fengu mörg
tækifæri til að tryggja sér fleiri stig á
lokasprettinum en þaö var sem
töframátturinn væri horfinn úr skóm
þeirra. Leikmenn Fram skoruðu
ekki úr gullnum tækifærum.eins og
þeir gerðu í fyrri umferðinni.
Látlaus sókn þeirra að marki Þrótt-
íþróttir í
vikulokin
SigmundurÓ. j
Steinarsson
ar bar ekki árangur og það varð til
þess að Valsmenn skutust upp á
toppinn. Þegar að er gáð voru
Framarar á toppnum fjórtán um-
ferðir, Skagamenn eina og Valsmenn
þrjár — þrjár þær síðustu, og þaö
dugöi.
Það voru þrír möguleikar undir
lokin: að Valur, Fram og Akranes
yrðu Islandsmeistarar. — „Þetta
var næstbesti kosturinn af þremur,”
sögðu Framarar eftir að ljóst var að
Valur yrði meistari. „Meistara-
titillinn er aftur kominn til Reykja-
víkur,” sögðu þeir.
Sagan endurtók sig
Já, vel á minnst. Fyrst viö vorum
að rifja upp frábæran lokasprett
Valsmanna er ekki hægt annað en
rifja upp gang mála sl. keppnistíma-
bil — 1984. Þegar sjö umferðir voru
eftir voru Valsmenn sjö stigum á
eftir Keflvíkingum. Valsmenn sýndu
þá einnig snjallan endasprett — léku
sjö síöustu leikina án taps, unnu
fjóra og gerðu þrjú jafntefli. Þeir
náðu að tryggja sér annaö sætið og
þar með UEFA-sæti. Valsmenn gef-
Þórsarar. Skagamenn verða að
vinna Framara í dag til að ná sætinu.
Jafntefli gæti dugað þeim en þá yrðu
Þórsarar að gera jafntefli eða tapa
fyrir FH. Ef Þórsarar vinna aftur á
móti og Skagamenn tapa, eða gera
jafntefli við Fram, þá fer Þór í
UEFA-keppnina.
KSÍ verður að
taka harðar á málum
Það er ekki hægt að ljúka þessum
pistli án þess að minnast á lág-
kúrulega framkomu Isfirðinga sem
gáfu einn leik í 1. deildar keppni
kvenna — leik gegn Breiðabliki. Þessi
leikur var mjög þýðingarmikill fyrir
Breiðabliksstúlkurnar, ekki í bar-
áttunni um Islandsmeistaratitilinn,
heldur í keppni stúlknanna um
markakóngstitil. Stúlka á Akranesi,
Ragnheiður Jónasdóttir, er nú
markahæst með 24 mörk, en næstar
á blaði koma Breiðabliksstúlkurnar
Erla Rafnsdóttir (21 mark) og Ásta
Gunnlaugsdóttir með 20 mörk. Þess-
ar tvær stúlkur verða að gjalda þess
að Isfirðingar gáfu leikinn.
Það er ófært að félög geti gefið
leiki þegar þeim hentar og það er óí-
þróttaleg framkoma. Stjórn KSl á að
taka hart á þannig málum og beita
félög, sem gefa leiki, . þungri
refsingu. I þessu máli á stjórn KSI að
berja í borðið og óska eftir því að Is-
firðingar mæti til leiks til að ljúka 1.
deildar keppni kvenna. Breiðabliks-
stúlkumar fóru til Isaf jarðar og því
er lágmark að Isafjarðarstúlkurnar
mæti til leiks í Kópavogi.
-SOS.
Söngfólk — Garðabæ
Garðakór vantar söngfólk í allar raddir. Raddþjálfun og
fjölbreytt dagskrá framundan í vetur. Æfingar verða 1 til 2
íviku.
Upplýsingar í síma:
42121 hjá Halldóru Bjarnadóttur,
40115 hjá Hrönn Haraldsdóttur,
34680 hjá Þorvaldi Björnssyni organista.
ÚtboÓ
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í Skeiða- og Hruna-
mannaveg um Stóru-Laxá.
(Lengd 2,0 km, fylling og burðarlag 30.000 m3.)
Verki skal lokið 15. maí 1986.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sel-
fossi og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 16. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann
23. september 1985.
Vegamálastjóri.
Lærið frönsku hjá
Alliance Francaise
— Kvöldnámskeið fyrir byrjendur og lengra komna.
— Bókmenntaklúbbur.
— Upplýsingar og innritun á skrifstofu Alliance
Francaise alla virka daga frá 16. til 27. sept. kl. 15 til
kl. 19.
— Kennslan hefst 30. sept.
— 15% afsláttur fyrir námsmenn.
Alliance Francaise,
Laufásvegi 12,
sími 23870.
MYNDLISTA-
OG HANDÍÐASKÓLI
ISLANDS
Námskeið
frá 30. september 1985 til 20. janúar 1986:
1. Teiknun og málun fyrir börn og unglinga.
2. Bókband.
Teiknun og málun fyrir fullorðna fellur niður í vetur vegna
húsnæðisþrengsla.
Innritun fer fram daglega á skrifstofu skólans, Skipholti
1. Námskeiðsgjöld greiðist við innritun. Skólastjóri
Reykjavik, Skipholti 1, sími 19821.
Til sölu
BÍLASALAN SKEIFAN,
Skeifunni 11 Reykjavík.
Simar 84848 og 35035.
Toyota Hi-Lux árg. 1981, ekinn 77.000 km.
Falieg og vönduð yfirbygging frá Óskari
Haildórs.