Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1985, Side 1
37.000 EINTÖK PRENTUÐ I DAG.
ITSTJÖRN SlMI 686611 • AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA SlMI 270
Frjálst, óháð dagblað
DAGBLAÐIЗVÍSIR
266. TBL. - 75. og 11. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1985.
Óvænt barnsfæðing í skóla á landsbyggðinni:
Bamið fæddist án vit-
undar móður um þungun
Þaö er ekki í frásögur færandi þótt
konur fæöi börn í þennan heim. Hins
vegar er þaö einstæður atburöur er
barn fæðist án þess að móðirin eöa
aðstandendur viti um þungunina.
Þetta geröist sl. laugardagsmorgun í
einum skóla landsins. Sjálfri sér og
öllum að óvörum fæddi 18 ára stúlka
sveinbarn.
Tilvist barnsins uppgötvaöist ekki
fyrr en samnemandi stúlkunnar, sem
svaf í næsta herbergi.heyrði barns-
grát. Hún hljóp til stúlkunnar, sá aö
barn var fætt, kallaði á skólastjóra og
lét vita af þessum óvænta barnsburði.
Skólastjórinn kom á vettvang, skildi á
milli barns og móður, og gerði aðrar
ráðstafanir sem gera þurfti. Er læknir
og ljósmóðir komu á staðinn var allt
um garð gengið. Móðirin og barnið
voru flutt á sjúkrahús.
Móðirin vissi ekki að hún var með
barni. Hún mun hafa verið mjög heil-
brigð allan meðgöngutimann og ekki
fundiö fyrir verkjum í brjóstum eða
maga. Ekki varð hún vör við hreyfing-
ar hjá barninu. Maginn var að vísu
stærri en venjulega en þessari ástæöu
ekki kennt um. Þótt ekki hafi verið
um blæðingar að ræða var þaö skýrt
með óreglulegum blæðingum.
Bæði móðirin og sveinbarnið eru
heilbrigð og hress. Stráksi er í
súrefniskassa, hann fékk gulu sem
ekki þarf að óttast og kemur oft fynr
aö sögn ljósmæðra. KB
10-20 okurlánarar:
VELTA ÞEIR 2
MILLJÖRÐUM?
„Okurlánarinn, sem nú situr inni
á sér líklega 10 til 12 starfsbræður. Ef
þeir velta jafnmiklu gæti þetta verið
um 2 milljarðar. Hvers vegna eru
þessir menn ekki teknir, sem eru
meira og minna nafnkunnir hér í
borg?” sagöi Stefán Benediktsson,
Bandalagi jafnaðarmanna, þegar okur-
lánin voru til umræöu á Alþingi í gær.
Hann sagði að viöskipti okurlán-
ara færu aöallega fram innan við-
skiptaheimsins og það lenti siðan á
almenningi að borga vextina með
hærravöruverði.
Það var Steingrímur J. Sigfússon,
Alþýðubandalagi, sem hóf um-
ræðuna. Hann sagði að „okurveisl-
unni” þyrfti að ljúka. Það hefði verið
ríkisstjórnin sem boðið hefði til þess-
arar veislu með aðgerðum sínum í
vaxtamálum.
I máli viðskiptaráðherra, fjár-
málaráðherra og forsætisráöherra
kom fram að stefnt væri að því aö
leggja fram frumvarp um verðbréfa-
viðskipti áður en þingmenn færu í
jólaleyfi. Þar er m.a. gert ráð fyrir
að öll slík viðskipti verði háð leyfi
viðkomandi ráðherra. Þá er einnig á
leiðinni frumvarp um vexti og drátt-
arvexti. Auk þess taka ný lög gildi
um viðskiptabanka nú um áramótin.
Fjölmargir þingmenn tóku til
máls. Akveðið var að fresta umræð-
unni fram á fimmtudag.
APH
Drengurinn er hress þ6tt hann sé i súrefniskassa. Hann fékk gulu eins og mörg böru fá rótt eftir fseðingu.
Hann er 4 daga gamall. DV-mynd GVA.
Nærárekstur fíug-
véla til saksóknara
Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur lokiö rannsókn sinni á flug-
atviki í september 1984 er tvær Flug-
leiðaþotur, með samtals 403 menn
innanborös, höfðu nærri lent í
árekstri skömmu eftir flugtak vél-
anna af Keflavíkurflugvelli. Málið
verður nú sent ríkissaksóknara.
Loftferðaeftirlit Flugmálastjóm-
ar hafði áður rannsakað atvikið.
Niðurstaða þess var að aöeins nokkr-
ir metrr.r hefðu verið á milli þotn-
anna þegar árekstrarhættan var
mest. Fram kemur í skýrslu þess að
flugstjóri annarrar þotunnar og flug-
umferðarstjóri á jörðu niðri lentu í
orðasennu meðan stefndi í árekstur.
Þotunum var hleypt í loftið með
aöeins um einnar minútu millibili af
sömu flugbraut. DC-8 þota fór á
undan. Boeing 727 þota á eftir klifr-
aöi hraðar og dró þá fyrri uppi.
Flugstjóri Boeing-þotunnar sá
hvert stefndi og hafði orð á því við
flugumferðarstjórann sem taldi öllu
óhætt þegar í raun stefndi í alvarlegt
flugslys. -KMU.
Nirfils-
hátturfor- Óþarfi
ráðamanna j aðtaka
frystihúsa j okurlán
8 — sjá lesendur — sjá bls. 5
bls. 14 1 hHHMmmneBanai
íslenskirgei
raunavinn-
ingarhærri
en danskir
— sjábls.ll