Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1985, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1985, Blaðsíða 2
2 DV. MIÐVIKUDAGUR 20. NOVEMBER1985. Sj6menn ð Rósu frá Hvammstanga sjást hér hnýta fyrir rækjutroll. Rækjumiðin við Miðfjörð: „Ofveiði gæti haft óheppileg- ar af leiðingar” — segir Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur. Rækjumiðin við Húnaf lóa rannsökuð Rækjubátar við Miðfjörð og Hrúta- fjörö hafa mokveitt að undanfömu eins og hefur ktHnið fram í DV. Bát- arair hafa fengið allt að sex tonn í einu hali. I framhaldi af fréttum DV hefur Hafrannsóknastofnunin sent Ingvar Hallgrimsson fiskifræðing við annan mann norður til að gera at- huganir á rækjumiðunum. Ingvar hefur fariö í róðra með heimabátum frá Hvammstanga. „Já, þaö er mikiö magn af rækju við Húnaflóann. Einhverra hluta vegna hefur rækjan þjappað sér saman sitt hvorum megin við Vatns- nesið. Við erum nú að kanna rækju- stofninn á því svæði,” sagði Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur. Hjálmar sagði að auðvitaö væröi það stefnan að nýta fiskstofna. „Of- veiði á þessu svæði gæti haft óheppi- legar afleiðingar ef til lengri tíma væri lítið. Þetta svæöi verður kannað vel. Hafrannsóknaskipiö Ámi Frið- riksson, sem nú er við Vesturland við súdarrannsóknir, heldur fljótlega norður fyrir land og þá inn á Húna- flóa til rækjurannsókna,” sagði Hjálmar. — Nú segja sjómenn fyrir norðan að það sé sárt að sleppa rækju sem er komin á grafarbakkann og kemur ekki til með að skila sér aftur? „Eg hef heyrt þessa rökfærslu áð- ur og þá einnig í sambandi við aörar fisktegundir. Þaö er vel skiljanlegt að sjómenn vilji veiða sem mest,” sagði Hjálmar. H jálmar sagði að lítið væri hægt að segja um rækjustofninn við Húnaflóa fyrr en rannsókninni væri lokið. Þess má geta að heildarrækjukvót- inn á grunnslóðum og í Kolluál er 8820 tonn á ári. Inni í þessum kvóta er djúprækja ekki. „Djúprækjan er í rannsókn og það eiga eftir að koma sérstakar tillögur um nýtingu henn- ar,”sagðiHjálmar. -SOS Kabarett í Inghóli Frá Regínu Thorarensen, fréttaritara DV á Selfossi: Næstu laugardagskvöld mun Inghóll á Selfossi bjóöa gestum sinum upp á kabarett. Það era Leikfélag Selfoss og stór- hljómsveit Olafs Þórarinssonar sem hafa tekið upp samstarf um þessi skemmtikvöld í kabarettformi. Þar veröur spaugilegum hliðum hvers- dagslifsins og ástarinnar gerö góö skil. Sl. föstudagskvöld var haldin svoköll- uð forsýning á kabarettinum. Hann var svo frumsýndur sl. laugardags- kvöld. Húsfyllir var og mikið hlegið enda skemmti fólk sér hiö besta. Vil ég ráöleggja hverjum þeim sem fer að sjá ástarkabarettinn að hafa með sér minnst þrjá vasaklúta svo að þeir dugi út sýninguna. Aðgangseyrir telst ekki hár. Hann er 1000 krónur fyrir manninn. Þar er inni- falinn góður og fjölbreyttur matur, kabarettinn, eins og áður sagði, og skemmtun til kl. 3 um nóttina. Geta Selfyssingar verið stoltir af leikfélag- inu sínu eftir þessar sýningar enda er tilvalið að hafa heimatilbúin skemmti- atriði í skammdeginu. „Er ekkert að klaga forsætisráðherra” — vegna ummæla í ..kerlingariti „Eg er ekkert aö klaga forsætisráö- herra. Spurningin er bara sú hvort við eigum aö taka þátt í þessu samstarfi eöa ekki. Ur því að við höfum ákveöið að taka þátt í norrænu samstarfi og mér er falið ákveðið verk hef ég reynt að sinna því eins vel og mér er unnt,” sagði Páll Pétursson, forseti Norður- landsráös, í viötali viö DV. Utanlandsferöir þingmanna hafa veriö til umræðu undanfarið. „Þetta er til komiö vegna ummæla forsætis- ráöherra í kerlingatimariti hér í bænum sem heitir Mannlif. Þar lét hann í ljós hneykslun á utanferðum mínum,” sagði Páll. Nú hafa báðir þessir samflokksmenn látið skrá niður utanferðir hvor annars. Niðurstaðan var sú að Stein- grímur hefur vinninginn í utanferöum. Leikar stóðu 48—37 þegar upplýs- ingarnar fengust. „Mín niðurstaða er sú að við eigum hiklaust að halda áfram norrænu samstarfi,” segir Páll. „Við höfum reynt að skera niður ferðir eins og unnt hefur verið. Það vill nú þannig til að þetta árið höfum við afar miklum skyldum að gegna í Noröurlandaráöi. Auk þess að ég er forseti ráðsins er Eiður Guðnason formaður menningar- nefndar, Guörún Helgadóttir formaður upplýsinganefndar og Snjólaug Olafs- dóttir formaður ritaranefndarinnar,” sagði Páll. Hann sagði einnig að hann ætti eftir að fara eina ferö á vegum Norður- landaráös. Förinni er heitiö til Helsing- fors. Þar verður m.a. fundur forsætis- nefndar og samstarfsráðherra- nefndar. Þá mun Páll halda ræðu á finnska þinginu vegna þess aö liðin eru 30 ár frá því að Finnar gerðust aðilar að Norðurlandaráöi. Að þessari ferð lokinni verða ferða- dagar Páls orönir 40 aö meðtöldum brottfarar- og komudögum. APH EKKIYFIRVEGAÐ- AR UPPLÝSINGAR — segir Björn Líndal varaþingmaður um óskaframboðslista forsætisráðherra „Þaö veröur aldrei hægt aö segja að svona yfirlýsingar um áhugaverða frambjóðendur eins og Steingrímur er að gefa í sambandi við framboðsmál í Reykjavík séu yfirvegaðar.” Þetta segir Bjöm Líndal, varaþingmaður Framsóknarflokksins í borginni. Steingrímur Hermannsson, forsætis- ráðherra og flokksformaður, hefur bent á einstaklinga sem hann álítur eftirsókn í til framboðs næst. Hvorki Haraldur Olafsson þingmaður né Bjöm eru þar nefndir. Ljóst er því hvað Harald snertir að Steingrímur tekur beina afstöðu í innanflokksdeil- um Framsóknar í Reykjavík. „Eg bendi á,” segir Bjöm Líndal, „að Steingrímur nefnir enga konu. Þó er ljóst aþ hæfar konur verða flokknum nauösynlegar í næstu kosningum. Svona yfirlýsingar geta hæglega mis- skilist af mörgum ástæðum.” Bjöm segist ekki verða í framboði í bráð. „Eg fer til starfa í Alþjóðabankanum um mitt næsta ár. Þegar ég kem aftur tveim árum seinna á ég ekki von á aö þurfa að hafa áhyggjur af þess konar misskilningi, sem við eram að tala um núna.” HERB toróur-Þinseýjaraýslu. _---- "Aóalfundur felags áfengTSvarnanufnda í Norftur-Þmgeyjarfays u haldinn á Raufarhöfn 15. jan, 1985 þakkar þedm verslunarmónnum sem tóku áskorun aftalfundarins frá 1979 , uin aft hafa ekki o ger ar pfni t'‘l sölu í verslunum sínum, _ _ Áftalfundur 1985 skorar á þær verslanir f Norftur Þingeyoareyslu sem enn "hafa ölgerftarefni til sölu aö hætta þv.x hrft snarasta. fyrir hönd félags áfengisvarnanefnda C Korftur-Þingeyjarsýslu. 'yVO.-r\ UAi &r-^° U. U i Ljósrit af samþykkt aðalfundar áfengisvarnanefnda í Norður-Þingeyjarsýslu um ölgerðarefni. Styr um ölgerðarefni í Norður-Þingeyjarsýslu: „Skipulagðar ofsóknir” — segir Guttormur Einarsson í Ámunni „Það hefur komið í ljós að fyrir tilstilli þessara hálfopinberu áfengis- varnanefnda hafa verslunareig- endur og innkaupastjórar víðs vegar um land verið beittir þrýstingi til að versla ekki með þessar vörar því ella fari stór hluti viðskiptavinanna annað,” segir Guttormur Einarsson í Ámunni og helsti forsvarsmaður Landssambands ámuklúbba í viðtali við DV. Tilefni ummæla Guttorms er samþykkt á aðalfundi félags áfengis- varnanefnda í Norður-Þingeyjar- sýslu er haldinn var síöastliöinn vetur á Raufarhöfn. Þar var skorað á verslunareigendur að hafa ekki ölgerðarefni til sölu í verslunum sinum. I kjölfar samþykktarinnar segir Guttormur að um verulegan samdrátt hafi orðið að ræöa í verslun Amunnar við landsbyggðina og telur hann að skýringuna á því megi finna „í samræmdum og miðstýrðum aðgerðum áfengisvarnanefnda” gegn verslun sinni. Kærir til Verslunarráðs I bréfi til Áma Ámasonar í Versl- unarráði segir Guttormur að sér hafi borist njósn af skipulögðum andróðri og nánast ofsóknum gegn söluvörum sínum víðs vegar um land. Ennfremur segir Guttormur í bréfinu að víða hafi komið í ljós að einstaklingar, tengdir áfengisvarna- nefndum á viðkomandi stöðum úti á landi hafi beitt verslunareigendur og innkaupastjóra þvingunum í viðtölum til aö fá þá til að hætta aö versla við Ámuna því ella myndi verslunin missa viðskipti. Segir Guttormur að svo hafi verið að sjá sem þess hafi verið vandlega gætt að ekki væri unnt að sanna þessar hótanir. I bréfi Guttorms til Verslunarráðs segist hann hafa hald- bæra sönnun fyrir þessum ofsóknum sem sé áskorun áfengisvarnanefnda í Norður-Þingeyjarsýslu til allra verslana í sýslunni þar sem skorað er á verslanir að hafa ekki ölgerðar- efni til sölu. I lok bréfsins segir Guttormur að fyrirtæki sitt hafi orðið fyrir miklu tjóni vegna þessara áskorana áfengisvarnanefndanna og krefst þess að Verslunarráð láti fara fram opinbera rannsókn á öllum málavöxtum til aö hiö sanna komi i ljós. „Við munum áskilja okkur allan rétt til frekari málaferla og opin- berrar umfjöllunar um þetta mál til þess að landsmönnum gefist kostur á að kynnast starfsháttum þessara opinberu nefnda,” segir að lokum í bréfi Guttorms Einarssonar til Verslunarráðs. Ámi Amason 1 Verslunarráði tjáði DV að þeir heföu haft spurnir af málinu og þegar hefði verið sent svarbréf til Guttorms Einarssonar þar sem málaleitan hans var svaraö. Ekki vildi Ámi tjá sig nánar um af- stöðu Verslunarráðs, slíkt yrði að bíða þess tíma er Guttormi hefði boristsvarbréfið. Engar ofsóknir áfengisvarnanefnda „Við höfum tvisvar sent verslunum í Norður-Þingeyjarsýslu áskoranir um að hætta allri verslun með ölgerðarefni,” sagði Dagný Marinósdóttir í Sauðanesi, formaður áfengisvarnanefnda í Norður-Þing- eyjarsýslu, í samtali við DV. „Það gleður mig mjög ef menn era áhyggjufullir yfir minni sölu á ölgerðarefnum, það sýnir það að aögeröir okkar hafa einhvern árangur borið. Hér hefur ekki verið um neinar ofsóknir eða annað slíkt að ræða og ekki kannast ég við neinar hótanir gegn verslunum,” sagði Dagný. Að sögn Dagnýjar tóku sumar verslanir áskoranimar til greina og hættu sölu á ölgerðarefnum, „en hins vegar sé ég þetta í flestum verslunum ennþá, því miður,” sagði Dagný Marinósdóttir. hhel

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.