Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1985, Side 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. NOVEMBER1985.
3
HÖSKULDIBIRT
OPINBER ÁKÆRA
Höskuldi Skarphéðinssyni, skip-
herra hjá Landhelgisgæslunni, var í
flyrradag birt opinber ákæra í Saka-
dómi Reykjavíkur fyrir hegningar-
lagabrot og brot í opinberu starfi. Þess
er krafist að Höskuldur verði dæmdur
til refsingar og til greiðslu sakarkostn-
aöar.
Höskuldi er gefið að sök að hafa í
bæjarþingsmáli sínu gegn Landhelgis-
gæslu Islands og ríkissjóði „orðið sér
úti um og látið leggja fram við þing-
festingu málsins í bæjarþingi þann 19.
mars 1985 til grundvallar stefnukröf-
um sínum um greiðslu risnu vegna
starfs síns sem skipherra hjá Land-
helgisgæslunni tímabilið 1. apríl til 30.
júní 1984 röng sönnunargögn, fjórar
staðgreiðslunótur yfir keypt vínföng í
Vínbúðinni, Snorrabraut 56, Reykja-
vík, sem allar voru tilbúnar að efni og
dagsetningum”.
Staðgreiðslunóturnar fjórar eru
samtals að f járhæð 4.870 krónur.
Mál þetta hefur vakið töluverða at-
hygli. Vegna þess samþykkti nýliðið
þing Farmanna- og fiskimannasam-
Höskuldur Skarphéðinsson skip-
herra.
bandsins vantraust á forstjóra Land-
helgisgæslunnar. Þingið krafðist þess
einnig að Höskuldur yrði nú þegar lát-
inn taka við sínu fyrra starfi en frá því
í vor hefur hann ekki stýrt varðskipi.
Var hann á biðlaunum þar til nýlega er
honum var falið að annast námskeið
fyrir kafara á vegum Landhelgisgæsl-
unnar. -KMU.
TF—SIF, hin nýja björgunarþyrla
Landhelgisgæslunnar, kom til landsins
í gær. Lenti hún á Reykjavíkurflugvelli
klukkan 16.30 eftir fimm daga ferðalag
frá Frakklandi. Lokaáfanginn í gær
var frá Sumburgh á Hjaltlandseyjum
með viðkomu í Færeyjum og Horna-
firði.
Flugstjórarnir Páll Halldórsson og
Benóný Ásgrímsson flugu þyrlunni
heim. Með um borð var Jón Pálsson
yfirflugvirki.
Við flugskýli Landhelgisgæslunnar
tóku á móti þýrlunni og áhöfn hennar
meðal annarra Jón Helgason dóms-
málaráðherra, Gunnar Bergsteinsson,
Óveðrið heilsaði upp á vegavinnuskúrana eins og gjörla má sjá á myndinni.
Grundarfjörður:
RASK AF VÖLD-
UM ÓVEÐURSINS
Frá Bæring Cecilssyni, fréttaritara
DV í Grundarfirði:
Umhleypingasamt hefur verið hér
eins og viðast hvar annars staöar á
landinu að undanförnu. Tvær óveðurs-
hrinur gerði hér um daginn. I hinni
fyrri fauk vagn á hvolf. A hann hafði
verið hlaðið sperrum sem eiga að fara í
íþróttahúsið hér í Grundarfirði, en það
er núíbyggingu.
Sama dag fuku tveir skermar af
sjónvarpssendi sem er á Akurtröðum.
Þar með varð sjónvarpslaust í Grund-
arfirði og á utanverðu Snæfellsnesi.
Síðar heilsaði svo önnur vindhviða upp
á vegavinnuskúra rétt fyrir innan bæ-
inn með þeim afleiðingum að einn
þeirra hvarf út á haf og annar lagði af
stað á eftir honum. Þeir sem eftir voru
snerust við eöa fóru á hliðina.
Þá urðu fiskitrönurnar skammt frá
Grundarfirði einnig fyrir barðinu á
óveðrinu, svo og trillur sem fuku á hlið-
ina.
Fiskitrönur fuku um koll og fleira lauslegt var á ferð i vindhviðunum.
DV-myndir Bœring
ÁLFTÁRÓS BAUÐ UEGST
forstjóri Landhelgisgæslunnar, Gunn-
ar Ásgeirsson, umboðsmaöur
Aerospatiale á Islandi, fréttamenn og
f jölskyldur flugliðanna.
Þyrlan er af gerðinni Dauphin SA
365N. Hún kostar með öllum búnaði
tæpar 135 milljónir króna.
Landhelgisgæslan hafði sams konar
þyrlu á leigu meðan á smíöi þessarar
stóð. Leiguþyrlunni var skilaö í sumar.
-KMU.
Álftárós hf. átti lægsta tilboðið í inn-
réttingu nýju flugstöðvarinnar á
Keflavíkurflugvelli. Tilboðin, sem
voru fimm talsins, voru opnuð í gær.
Tilboð Álftáróss í alla verkþættina
f jóra hljóðar upp á 569 milljónir króna,
sem er um 87 prósent af kostnaöar-
áætlun.
Næstlægsta tilboðið kom frá Hag-
virki, 625 milljónir króna, sem er 96
prósent af áætlun. Aðrir sem buðu voru
Istak, Flugtak og G. Pálsson.
Tilboðin verða nú skoðuö nánar. Bú-
ist er við að samið verði um verkið um
áramót. Verkinu á að vera lokið 1.
apríl 1987. -KMU.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
24. og 25. nóv. 1985.
Nýr framb j óðandi til
borgarst j órnar
Brynhildur K. Andersen
húsmóðir í Reykjavík.
Ég leita stuðnings þíns og legg áherslu á eftirfarandi:
— að bæta kjör heimavinnandi húsmæðra
— að gera mæðrum kleift að annast börn sín heima
— að létta fólki kaup á fyrsta íbúðarhúsnæði
— að auka aðstoð við aldraða í borginni
- að sjúkrarými fyrir aldraða verði aukið sem fyrst
— að efla skilning á mikilvægi starfsfólks sjúkrahúsa
— að auka þjónustu í verslun og viðskiptum í borginni
— að stuðla að endurhæfingu ungmenna sem ánetjast hafa
_____________________vímuefnum,___________________
Stöndumvörð umheimilin
og fjölskylduna.
Takið þátt í prófkj örinu.