Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1985, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1985, Síða 6
6 DV. MIÐVIKUDAGUR 20. NOVEMBER1985. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Maður verður að fá tilfinningu fyrir deiginu og sennilega er gott að læra meðferðina með því að nota hendurnar. En við erum búin að prófa að nota hrærivél og það gekk mjög vel. Á námskeiöi meö DV: Gerbaksturinn þolir ekki dragsúg eða kulda „Tíminn fram að jólum fer í alls kyns námskeið. Þetta eru stutt námskeið, tveggja til þriggja daga, bæði dag- og kvöldnámskeið. Nefna má námskeið í gerbakstri, smurðu brauði, veislumat, fiskréttum, glóð- arsteikingu, smáréttum, fatasaumi, vefnaði, almennri matreiðslu og loks ábætisréttum og laufabrauðabakstri fyrir jólin,“ sagði Ingibjörg Þórar- insdóttir, skólastjóri Hússtjórnar- skóla Reykjavíkur, í samtali við neytendasíðu DV. Skólinn var stofnaður árið 1942 og hét þá Húsmæðraskóli Reykjavíkur. Þegar jafnréttismálin urðu ofarlega á baugi var nafni skólans breytt í Hússtjómarskóli. - Eru það samt ekki mest konur sem stunda nám við skólann? „Nemendur eru mestmegnis konur en þó eru karlar fjölmennir á nokkr- um námskeiðanna. T.d. erum við núna með menn úr Trésmiðafélagi Reykjavíkur sem eru að læra al- menna matreiðslu. Karlmenn hafa einnig sótt kvöld- námskeiðin okkar. Þetta eru menn á ölium aldri, algengt að nokkrir taki sigsaman, t.d. vinnufélagar. Saumanámskeiðin hafa eingöngu verið sótt af konum, og þá frekar ungum konum. Tíu eru á hverju námskeiði og eru íjögur í gangi í einu þannig að fjörutíu manns eru á hverju sex vikna námskeiði. Vefnaðarnámskeiðin eru í sjö vik- ur, þrisvar í viku. Þar eru einnig tíu í einu. Einnig er boðið upp á vinnu- stofu í vefnaði. Ef einhver sem verið hefur á námskeiði þarf að komast í vefstól er hægt að fá hann leigðan hjá okkur,“ sagði Ingibjörg. Eftir áramótin verður breyting á starfsemi skólans. Þá hefst fimm mánaða hússtjórnarnámskeið. Á því eru tuttugu og fjórir nemendur sem geta valið um heimavist eða að búa heima hjá sér. Nám í hússtjórnar- deildinni gefur punkta í fjölbrauta- skólunum til matartækni- náms og einnig í mynd- og handmenntarnámi. Töluvert er um að nemendur Kenn- araháskólans sæki þetta nám. Skóla- gjald er 1200 kr. en nemendur greiða allan efnis- og matarkostnað. Gjaldi fyrir námskeiðin er mjög stillt í hóf. T.d. kostar gerbaksturs- námskeiðið, sem stendur í tvo daga, aðeins 550 kr. Nemendur fá mjög góða tilsögn auk þess sem þeir fá að borða það sem kennarinn bakar í tvo daga og fara svo heim með eigin bakstur. Veislumatarnámskeiðin kosta 800 kr. og smurbrauðsnámskeiðin um 700 kr. Námskeið í ræstingu Á námskrá fimm mánaða nám- skeiðsins eftir áramótin er einn lið- urinn þvottur og ræsting. - Hefur aldrei komið til tals að halda námskeið í slíkum fræðum, t.d. fyrir þá sem stunda ræstingar og heimilishjálp hjá borginni. Hann kvæntist síðar ekkju sem einn- ig átti mörg börn. Strax og komið er inn í húsið er rúmgóð forstofa með stórum stiga upp á loftið. Gólfið í forstofunni er úr marmara en allir veggir málaðir með „marmaramálningu" eins og í gömlum, ítölskum kastala. Skrifstofa skólastjóra, setustofa og borðstofa eru á neðri hæðinni, auk eldhússins. Þar eru gólfin úr gamal- dags massífu parketi, hátt er til lofts Margir bjuggu til fléttubrauð sem þarna eru komin í lyftingu. Fremst má sjá jólahringinn með kanilfyllingu. Þetta sýnist flókið en í rauninni er þetta sáraeinfalt mál - maður verður aðeins að vita hvernig á að gera þetta! voru svo þungir að varla var hægt að lyfta þeim með annarri hendinni. Virðuleg húsgögn voru í borðstof- unni, nóg húsrými til þess að hægt sé að dúka fagurlega borð fyrir fjölda manns. Tólfeldavélar Eldhúsið er rúmgott og bjart með tólf eldavélum. Daginn sem DV kom í heimsókn var búið að kveikja á flestum ofnunum og mikill hiti í eldhúsinu. Við ætluðum að taka þátt í gerbakstursnámskeiði með nokkr- um öðrum konum úr Mosfellssveit. Heilmikið er um að kvenfélög úr nágrenninu hafi milligöngu um að félagsmenn þeirra sæki námskeið í skólanum. „Það er mjög áríðandi að hafa hlýtt þegar baka á með geri, ekki bara í eldhúsinu, helst í öllu húsinu. Það má heldur ekki opna glugga fyrr en síðasta platan er farin í ofninn. Gerbakstur þolir ekki trekk,“ sagði Áslaug Sigurgrímsdóttir kennari við áhugasama nemendur sína. Nemendurnir settust fyrir framan kennaraborðið þar sem Áslaug var með alls kyns poka og krúsir með hinum ýmsu mjöltegundum. Kennslufyrirkomulagið er með þeim hætti að Áslaug útskýrir eigin- leika gersins og sýnir aðferðina við baksturinn um leið og hún fram- kvæmirverkið. Þegar búið er að hræra fyrsta hluta deigsins saman er því komið fyrir til lyftingar. Eins og áður var sagt verð- ur að vera heitt í éldhúsinu og ekki dragsúgur.Til þess að flýta fyrir lyft- ingu lét Áslaug heitt vatn í einn vaskinn og lét deigskálina þar ofan í og breiddi klút yfir. Námskeiðið stóð í tvo daga. Fyrri daginn sýndi hún okkur tvílyftingu „Við buðum upp á slík námskeið einmitt fyrir þessa aðila og ræddum við þá stofnun borgarinnar sem sér um ráðningu heimilishjálparinnar. Þessi tillaga fékk ekki góðar undir- tektir, var m.a. borið við að þá þyrfti að meta starfið til hærri launa og á því virtist enginn áhugi,“ sagði Jak- obína Guðmundsdóttir, fyrrverandi skólastjóri skólans. „Það er augljóst mál að slík námskeið ættu að geta verið hagkvæm fyrir það fólk sem stundar þessi störf og raunar alla. í heimilishjálpinni eru bæði ungar stúlkur og piltar og enginn er fæddur með því að kunna þessi störf til hlít- ar,“ sagði Jakobína. Við tökum heils hugar undir þau orð. Áslaug kennari tekur kransinn fullbakaðan út úr ofninum. og gluggarnir stórir með hvítmáluð- um gluggakistum og breiðum körm- um. Á veggjunum hanga fögur mál- verk eftir íslenska meistara en við skólann er til listaverkasjóður sem stendur straum af kostnaði við lista- verkakaup. Þarna er m.a. gullfallegt olíumál- verk af Guðbjörgu í Múlakoti eftir Ásgrím Jónsson, auk mynda eftir Jóhann Briem, Þórarin B. Þorláks- son og fleiri meistara. í borðstofunni tókum við eftir tveimur stórum koparstjökum sem Virðulegthús Hússtjórnarskóli Reykjavíkur er til húsa í gömlu og virðulegu húsi að Sólvallagötu 12. Skólinn var stofnaður árið 1942 en húsið var byggt miklu fyrr sem einkaheimili. Það byggði ekkjumaður, efnaður kaupmaður, sem átti mörg börn. Kennarinn, Áslaug Sigurgrímsdóttir, með nýbakað fléttubrauðið sem hún gaf svo nemendum með kaffinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.