Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1985, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1985, Blaðsíða 25
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. NOVEMBER1985. 25 Peningamarkaður Innián með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru íyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn- stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarn- ir eruverðtryggðir og með 8% nafnvöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn- vextir eru 29% og ársávöxtun 29%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 33,5% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 34% nafnvöxtum og 34% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 36% nafnvöxtum og 39,2% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30'%, ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5% vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 34% nafnvöxtum og 34% ársávöxtun eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 22%, eftir 2 mánuði 23,5%t 3 mánuði 25%, 4 mánuði 26,5%, 5 mánuði 28%, eftir 6 mánuði 29,5% og eftir 12 mánuði 31,6%. Ársávöxtun á óhreyfðu innleggi ér 34,1%, eða eins og á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum reikningum reynist hún betri. Vextir færast tvisvaráári. Utvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán- aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt- um sé hún betri. Samanburður er gerður mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila ársfjórðung. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með 34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp- vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn- an mánaðar bera trompvexti sé reikningurinn eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóó- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára en innleysanleg eftir þrjú ár, 10.09.88. Nafnvextir 7%. Vextir, vaxtavextir og verðbætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamið- um, skírteini til mest 15 ára, innleysanleg eftir 5 ár, 10.09.90. Vextir eru 6,71% á höfuð- stól og verðbætur, reiknaðir misserislega og greiddir út gegn framvísun vaxtamiða. Verð- bætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxta- auka, til 18 mánaða eða 10.03.87. Vextir eru meðEÚtal vaxta á 6 mánaða verðtryggðum reikrnngum bankanna og með 50% álagi. Vextir, vaxtavextir, vaxtaauki og verðbætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Gengis- tryggð skírteini eru til 5 ára, 10.09.90. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR og bera 9% vexti. Vextir og vaxtavextir greiðast við inn- lausn með höfuðstól, í samræmi við stöðu SDR. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð- tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er al- mennt 12-18% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 4. ársíjórðungi 1985: Til einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og íleiri 1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings, annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl- skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund. Lánstími er21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eni í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns- rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35 ár. ^ Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirnir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig 22%. Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22% nafnvöxtum reiknast fyrst 11 % vextir eftir 6 mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur. Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím- ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45% á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því 1,125%. Vísitölur Lánskjaravísitala í nóvember 1985 er 1301 stig en var 1266 stig í október. Miðað er við grunninn lOOíjúní 1979. Uyggingarvísitala á 4. ársfjórðungi 1985 er 229 stig á grunninum 100 frá janúar 1983 en 3392 stig á grunni 100 frá 1975. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 11.-20.11.1985 INNLÁN IVIEÐ SÉRKJ0RUM '6 | lllhl sjAsérlista ii || fiiiiiJi li INNLAN óverðtryggð SPARISJDOSBÆKU R Úbundin innstæða 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 '22.0 22,0 22.0 SPARIREIKNINDAR 3ja mán. uppsögn 25.0 26.6 25.0 25.0 23.0 23,0 25.0 23.0 25.0 25.0 6 mán.uppsögn 31.0 33.4 30.0 28.0 28.0 30,0 29.0 31.0 28.0 12mán.uppsogn 32.0 34,6 32.0 31.0 32.0 SPARNAOUR- LANSRETTURSpaiað3-5mén. 25.0 23.0 23.0 23.0 23.0 25.0 25.0 INNLÁNSSKÍRTEINI Sp. 6 mán. ogm. 29.0 28.0 30.0 28.0 26.0 23.0 29,0 28.0 TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 17,0 17.0 8.0 8.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0 Hlaupareikningar 10.0 10.0 8.0 8.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0 INNLÁN VERDTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0 6 mán.uppsögn 3.5 3.5 3.5 3.5 3.0 3.0 3.0 3.5 3.0 INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 8.0 Sterlingspund 11.5 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 11.0 11.5 11.5 Vestur-þýsk mörk 5.0 4.5 4.25 4.0 4,5 4.5 4.5 5.0 4.5 Danskar krónur 10,0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0 ÚTLÁN ÚVERÐTRYGGÐ ALMENNIR VlXLAR (forvextír) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 VIDSKIPTAVlXLAR (forvextir) 34.0 2) kge 32,5 kso 32.5 kge kge kge 34.0 ALMENN SKULDABRÉF 32.03) 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 VIÐSKIPTASKULÐABRÉF 35.02) kge 35.0 kge 33,5 kge kgc kge 35.0 HLAUPAREIKNINGAR yfirdrAttur 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31,5 ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF Að 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Lcngrien21/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 ÚTIÁN TIL FRAMLEIDSLU SJÁNEÐANMÁLS1) 1) Lán til innanlandsframleiðslu eru á 27,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 9,5%, í Bandaríkjadollurum 9,75%, í sterlingspundum 12,75%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%. 2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í Hafharfirði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj. 3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilaiána er 2% á ári, baeði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubankanum og Verslunarbankanum. Sandkorn Sandkorn Hringormar eru algengir i fiski. Þetta er liklega stóri f nendi. Það. er oft talað um lög- frœðingaveldi á íslandf. En ekki mun það vera betra úti í Bandarlkjunum. Þar er aUt morandi í mönnum af þessari stétt, svo mjög að þeir berjast um hvern bita. Þar mun því ekkl vera erfitt um vik að fá þá til að taka að sér mál, þött hæpin séu. Sú saga er höfð cftir Magnúsi Gústafssyni, for- stjóra Coldwater í Banda- rikjunum, að kerling ein, amerísk, hefði eitt sinn fundið orm í fiskblokk sem hún hafði keypt. Vildi kerla nú í mál við fyrirtækið sem hafði selt fiskinn. Kvaðst hún hafa fengið taugaáfall við að sjá orminn og ætti sér vafalaust eftir að versna að mun því við þetta atvik hefði ýfst upp annað hryliingsatvik sem hún hefði orðið fyrir. Það var líka viðkomandi ormum. Ekki mun kerlingin hafa verið I miklum vandræðum með að fá sér lögfræðing, þött forsendurnar væru svona og svona... Kveður við annan tón Hver kannast ekki við auglýsingar sem byrja á: „Fiskverkunarfólk óskast ...”? Oftast eru þær i þurr- kuntulegum stíl þar sem lífsleiðinn drýpur af hverju orði. En nú kveður við annan tón. Hið margfræga fyrir- tæki Þormóður rammi aug- lýsti nýlega eftir starfsf ólki f frystihús. Þar eru sigl- firskar húsmæður ákallað- ar með svofelldum eggjun- arorðum: „Nú er tæklfæri til að bregða sér út á vinnumark- aðinn! Þetta tækifæri opnar ykkur möguleika á nokkrum eftirtöldum at- riðum: TUbreytlng frá heimUis- störfum, þátttaka í aukn- ingu þjóðartekna, tekju- möguleikar fyrir báða aðila (okkur og ykkur), kunn- ingsskapur við gott fólk, út- víkkun á s jóndeUdarhringn- um... Verið óhræddar. Látið ekki aldur eða önnur smáat- riði verða ykkur fjötur um fót...” Hvað skyldu annars margar hafa sótt um? Bráóum koma biessuft jólin og þá hafa meuu vœntanlega gjör- nýtl ÖU þau jólatUboð sem eru í gangi. Féll á eig- in bragði Söluhemaður er uú hafinn fyrir blessaða friðar- hátiðina sem nálgast óðum. Er öllum meðulum beitt og ekkert til sparað, svo að kaupmenn geti nú prangað sem mestu inn á lýðinn. Fyrirtækið Nesco hefur, sem kunnugt er, auglýst girnileg jólatilboð samfara ljúfum tónum. En svo gerð- ist það á dögunum að sam- keppnisaðili, Japis, aug- lýsti „jólatilboð nr. 1”. Nesco-mönnum ofbauð frekjan því þeir þóttust eiga allan rétt á orðinu „jólatfl- boð”. Þeir kærðu þvi Japis til Sambands auglýsingastofa. Þar var mállð tekið fyrir og Japismenn heðnir að gera grein fyrir sinu máli. Það var auðsótt þvi þeir drógu einfaldlega npp elntak af Samúel frá 1982. A baksiðu blaðsins var auglýsing frá Japis og þar stóð stórum stöfum „jólatilboð”. Það voru því Japis-menn eftir allt saman sem áttu hugmyndina. Siðanefnd SlA visaði mál- inufrá. Af hraóa hmdninum Liklega er hvergi sagt eins margt ljótt eins og við hraðahindranimar á götum Reykjavíkur og annarra þéttbýlisstaða. Þessi leyni- vopn, sem eiga að s já um að balda ökubraða niðri, gefa ökumöunum oft ærlegan skell. Það er nefnilega erfitt að greina fjárans bindran- imar úr fjarlægð. Og þvi fer sem fer. Bæjarblaðið á Akranesi hafði af því spurnir að ónefndum bæjarfulltrúa hefði orðið hált á svellinu í þessum efnum. Sá hinn sami er sagður vera mik- U1 bvatamaður hraða- hindrana af þessu tagi. Svo um daginn var hann á dauðasiglingu inn Vestur- götuna á Skaganum. Hafði hann þá steingleymt að samþykkt sú sem hann hafði barist sem mest fyrir var orðta að veruleika. Hins vegar f ékk farkostur bæjar- fuUtrúans að finna fyrir því þegar hann sentist yfir bunguna, með braki og brestum. Já, svona getur það verið. Umsjón: JóhannaS. Slgþórsdóttir. Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir BÍÓHÖLUN - VÍGAMAÐURINN * * * SÁ NAFNLAUSISNÝR AFRJR Vigamaöurinn Leikstjóri: Clint Eastwood. Handrit: Michael Butler. Kvikmyndun: Bruce Surtees. Tónlist: Lennie Niehaus. Aöalleikarar: Clint Eastwood, Carrie Snodgress og Michael Moriarty. Clint Eastwood hefur gert það sem enginn hefur þorað að gera í Hollywood í nokkur ár. Hann tók sig til og gerði vestramynd - bann- orð í Hollywood síðan Cimino gerði mesta „kvikmyndaflopp“ aldarinn- ar, Heavens Gate, sem fjallaði ein- mitt um villta vestrið. Eastwood hefur efni á að gera það sem hann vill og lét engar hrakspár hindra sig í að gera Vígamanninn (Pale Rider). Fyrir utan að leika aðalhlutverkið leikstýrir hann myndinni og framleiðir. Og áhætt- an hefur svo sannarlega borgað sig fyrir hann. Vígamaðurinn er vel heppnuð kúrekamynd í anda myndanna sem hann gerði með Sergio Leone á árum áður. Eftir sterkt byrjunaratriði, þar sem áhorfandinn fær smjörþefinn af því sem koma skal, kemur nafn- laus kúreki (Clint Eastwood) ríð- andi inn í smábæ og bjargar einum gullgrafara úr klónum á mönnum LaHoods sem er á góðri leið með að ná undir sig öllum jörðum. Kúrekinn gengur vasklega til verks og gullgrafarinn Hull Barret (Michael Moriarty) fær hann til að koma með sér í heimabyggð sína þar sem allt hefur verið lagt i rúst af mönnum LaHoods. Þar klæðist þessi vígamaður prestakraga, þorpsbúum til mikill- ar undrunar. Kúrekinn hefur mikil áhrif á gullgrafarana og fyllast þeir eldmóði og neita jafnvel að selja reiti sína fyrir ágæta pen- ingaupphæð. Kúrekinn hefur sér- Clint Eastwood bregst ekki þegar hann er kominn í vestrabúninginn sinn. staklega mikil áhrif á mæðgur einar. Hrífast þær báðar af honum þótt sitt á hvorn mátann sé. LaHood fær nú til liðs við sig frægan vígamann sem skartar lög- reglumerki og er hann með sex óálitlega menn með sér. Á nú að hrekja gullgrafarana á brott fyrir fulitog allt.... Vígamaðurinn er spennandi strax frá upphafi og er virkilega gaman að sjá Clint Eastwood aftur í gervi sem verið hefur hans vöru- merki. Sem leikstjóra tekst honum alltaf best upp í kúrekamyndum og er Vígamaðurinn sönnun þess. Kvikmyndun Bruce Surtees er mikilfengleg á köflum. Má geta þess að myndin er látin gerast að vetri til og er snjóföl yfir landinu - sannarlega ekki algeng sviðsetn- ing í vestramyndum. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um frammistöðu Eastwoods. Hann er fæddur í hlutverk sem þetta: nafnlausi vígamaðurinn sem mikil dulúð hvílir yfir. Hann varð frægur fyrir þetta hlutverk. Aðrir leikarar falla að sjálfsögðu í skugg- an en þar er margt ágætra karakt- erleikara. Vígamaðurinn hefur komið vestramyndum aftur upp á pall- borðið hjá framleiðendum í Hollywood og eru þekktir menn þegar teknir að fást við gerð slíkra mynda. Mætti segja mér að ekki verði langt þangað til við fáum að sjá Clint Eastwood aftur í kúreka- mynd. Hilmar Karlsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.