Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1985, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1985, Side 28
28 DV. MIÐVIKUDAGUR 20. NÖVEMBER1985. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Lystisnekkja hennar: áhöfnin er 49 manns en með þjónum og öðru starfsliði vinna alls 270 manns á skipinu. Madonna fær ekki f rið í Hollywood Hún er ríkasta kona í heimi — glæsilegoggáfuð Þeir sem áhuga hafa á að giftast til fjár ættu að fylgjast vel með Nabilu Khashoggi. Hún er afburða- falleg, greind og síðast en ekki síst... ríkasta stúlka í heimi og einhleyp, tuttugu og þriggja ára. Nabila er dóttir arabíska milljóna- mæringsins Adnan Khashoggi. Talið er að eignir hennar séu jafnvirði eins og hálfs milljarðs Bandaríkjadala. Hún stýrir tveim fyrirtækjum í eigu föður síns og er velta þeirra milljónir dala á ári. Nabila vinnur í París og New York og á þar glæsiíbúðir en helst vill hún vera í glæsilegri villu sem hún á á frönsku rívíerunni. Þar er fullbúið einkadiskótek og’ kvik- myndahús. „Nabila eyðir þúsundum á auga- bragði," segir vinur hennar. I versl- unarleiðangri í París eyddi hún á einum degi um einni og hálfri milljón dala (60 milljónir ísl.) í kjóla, skó, skartgripi og feldi. Eitt sinn var Nabila á siglingu um Miðjarðarhafið. Hún fann ekki eina einustu flík sem hana langaði til að klæðast og bað því þjónustustúlkuna að henda innihaldi fataskápsins fyrir borð. Eitt djásnið í eigu Nabilu er snekkjan hennar. Þetta er 3500 tonna skip og er áhöfnin 49 manns. Meðal „fylgihluta" er þyrla, diskó- tek, kvikmyndasalur, sem tekur rúmlega hundrað manns í sæti, og *> svo 800 kvikmyndaspólur til að velja úr. Flestir eru þó á einu máli um að Nabila sé dugnaðarforkur til vinnu enda hvílir mikil ábyrgð á henni. „Mér finnst ég ekki vera rík pabba- stelpa, ég vinn hörðum höndum eins og aðrir. Ég vinn reyndar svo mikið að ég hef engan tíma til að velja mér eiginmann. Ég fæ bréf og gjafir frá karlmönnum úti um allan heim en ég kæri mig kollótta. Maðurinn minn yrði að vera fallegur, metnaðargjarn og nægilega efnaður til að geta stað- ið undir fjölskyldu," sem sagt mjög ríkur ef miðað er við smekk Nabilu. Nabila Khashoggi: rikasta stúlka í heimi. Annette Nilsson knattspyrnuhetja Annette Nilsson er besta knatt- spyrnukona Svíþjóðar og það er talið að miklu leyti henni að þakka að knattspyrna kvenna er orðin vinsælasta íþróttagreinin þar í landi á eftir karlaknattspyrnunni, ef svo má aðorði komast. Annette lék reyndar í strákalið- um langt fram á unglingsár því það voru engin kvennalið til. Hún segir að margir strákar hafi þolað það mjög illa þegar hún „sólaði" þá upp úr skónum. Einn þeirra varð svo reiður að hann sparkaði viljandi í hnéð á henni þegar hún var fjórtán ára með þeim afleiðingum að hún gat ekki staðið við ferminguna sína og var marga mánuði að ná sér. Annette og félagar hennar í sænska kvennalandsliðinu eru reyndar Evrópumeistarar en svo langt hefur karlalandsliðið aldrei komist. Og af hverju er hún að þessu? „Bara gaman.“ Ekki bara góð í fótbolta heldur líka stórglæsileg. Annette Nils- son er frægasta knattspyrnu- konaSvíþjóðar. Madonna ætlar að flytja frá Hollywood. Hún er búin að fá nóg af því að geta ekki verið í friði fyrir aðdáendum sínum. Hún skilur ekkert í þessu, það er engin Ma- donna í símaskránni nema hús guðsmóðurinnar og samt vita allir hvar hún á heima. Madonna og maður hennar, leik- arinn Sean Penn, ætla að flytja á rólegan stað, helst upp í sveit. Annars er það helst að frétta af hjónunum að þau munu leika í sinni fyrstu mynd saman. Hún á að heita Blind Date og er talið líklegt að Richard Benjamin fái þann mikla heiður að leikstýra þeim. Hjónin eru engir nýgræðing- ar á hvíta tjaldinu. Hún er fræg (svona fyrir utan plöturnar sínar) fyrir að leika í myndinni Desperate- ly Seeking Susan og hann m.a. fyrir Fálkann og snjómanninn. Madonna í banastuði. Nú er henni ekki lengur vært í Hollywood. Simmons, bassaleikari Kiss, er bara ansans ári trúverðug- ursem kona. Bassaleik- ari Kiss leikur kyn- skipting Gene Simmons meikaði sig allt- af voða, voða mikið þegar hann var bassaleikari í þungarokks- hljómsveitinni Kiss. Og sjáið árangurinn: Nú er hann búinn að leika kynskipting í kvikmynd. My ndin heitir Too Young to Die. Kynskiptingurinn heitir Velvet Ragnar. Meðal skemmtilegustu atriða kvikmyndarinnar er ást- arsena milli Velvets Ragnars og kvenkarakters sem Vanity, fylgi- fiskur Prince, leikur. Annað óborganlegt er þegar Simmons syngur lag sem heitir It Takes a Man Like Me to Be a Woman Like Me.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.