Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1985, Qupperneq 29
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. NOVEMBER1985.
29
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Bruce Springsteen er vellauðugur en gleymir ekki að hann er af fátækum kominn. Hér er hann með fólki
sem berst fyrir bættum hag atvinnulausra.
Bruce Springsteen
er ekki nískur!
Rock lét koma fyrir styttum af börnum í garði sínum: „Þau tákna
börnin sem ég eignast aldrei.“
Billy Crystal heitir maður nokkur og er skemmti-
kraftur í Bandaríkjunum. Hann kemur fram í sjón-
varpi og á það til að koma fram í allra kvikinda líki.
Hann hefur brugðið sér í gervi svo ólíkra manneskja
sem Grace Jones, Sammy Davies, Prince og Tinu
Turner!
Við sjáum hann hér á leiðinni að verða Tina Turner
og svo sem Prince.
//.
Cr
ROCK HUDSON
ÞRÁÐIAÐ
EIGNAST BÖRN
Rock Hudson var-ákaflega leiður
yfir að hafa ekki eignast börn, segja
vinir hins látna leikara. Hann gekk
meira að segja svo langt að segja að
hann vildi að hann væri ekki hommi.
Þótt merkilegt sé þá segja vinir
Hudsons að hann hafi tvívegis orðið
ástfanginn af konum og viljað kvæn-
ast.
Þegar ég dey mun enginn bera
nafn mitt. Eg var einbirni sjálfur og
móðir mín hlakkaði ætíð til að eign-
ast barnabörn. Ég er viss um að ég
hefði verið mjög góður faðir,“ sagði
Rock við vini sína.
Vinur Rocks segir leikarann hafa
haft á orði að hann hefði tvívegis
orðið ástfanginn, fyrst af dansaran-
um Veru-Ellen og svo leikkonunni
Marilyn Maxwell.
Hudson og Vera-Ellen voru saman
árið 1949. Þau munu hafa trúlofast
en Hudson sleit trúlofuninni að
kröfu stúdíósins sem taldi feril hans
í hættu ef hann kvæntist.
Nokkrum árum síðar kynntist
hann stórglæsilegri leikkonu, Mari-
lyn Maxwell að nafni, og varð ást-
fanginn upp fyrir haus. Hún virðist
hafa hryggbrotið Hudson en reyndar
vildi hann aldrei segja af hverju þau
hættu að vera saman.
Rock sá alltaf eftir því að hafa
ekki kvænst annarri hvorri. Hann
þráði svo mjög að eignast böm að
hann lét koma fyrir styttum af börn
um í garðinum hjá sér og sagði að
þær merktu börnin sem hann eignað-
ist aldrei. Vinir hans bera honum
allir þá sögu að hann hafi verið
einstaklega barngóður og hafi verið
síleikandi við börn þeirra.
Rock sagði við vinkonu sína: „Ég
er hommi og get ekki annað en ég
vildi að svo væri ekki og ég gæti
eignast konu og börn.“
Bruce Springsteen er sjálfsagt sá
rokkari sem mest hefur grætt á þessu
ári. Platan Born in the USA hefur
selst í milljónum eintaka og hljóm-
leikar hans hafa verið gríðarvel sótt-
ir.
Bruce hefur látið mikið fé af hendi
rakna til atvinnulausra víða um
heim, til dæmis í Bretlandi og
Frakklandi, auk þess til atvinnu-
lausra í heimalandi sínu.
Á dögunum sótti hann fund hjá
baráttusamtökum sem vinna fyrir
atvinnulausa í stáliðnaði í Kaliforn-
íu. Bruce hefur látið 35 þúsund dali
af hendi rakna til samtakanna á
síðustu tveimur árum (nær ein og
hálf milljón íslenskra króna).
Springsteen sagðist hneykslaður á
því hversu sjálfumglaðir Kaliforn-
íubúar væru. „Þegar ég talaði um
atvinnulausa stáliðnaðarmenn á
tónleikum hér héldu allir að ég væri
að tala um einhverja aðra borg en
þeirra eigin.“
Hann
hermir eftir
Tinu,
Grace,
Prince og
Sammy
Stúdíóið vildi ekki leyfa honum
að kvænast Veru-Ellen.
Rock var ástfanginn af Marilyn
Maxwell en honum til mikils
harms batt hún enda á sam-
bandið.
Uppskriftin
blýantur, varalitur ...
. .hárkolla ...