Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1985, Side 32
FRÉTTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krénur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1985.
Átti að greiða
29 þúsund
enekki55
Samkvæmt útreikningum eins
rikisbankans átti maður einn aö
greiða um 55 þúsund krónur í vexti
og verðbætur af skuldabréfi sínu.
Hann settist niður og fór að reikna
út hvað honum bæri að greiða. 1
ljós kom aö hann átti að greiða um
29 þúsund í stað 55 þúsund króna.
Þessar upplýsingar komu fram í
ræðu sem Jón Baldvin Hannibals-
son, Alþýðuflokki, hélt á Alþingi
þegar þingmenn hófu umræður um
okurlánaviðskipti.
Samkvæmt útreikningum bank-
ans átti maðurinn að greiða 22
þúsund í vexti og um 33 þúsund í
verðbætur. Maöurinn sem hafði
___ bókhaldsþekkingu, komst að því aö
bankinn hafði reiknað með breyt-
legum vöxtum í staö fastra vaxta.
Samkvæmt því átti hann aðeins að
greiða 9 þúsund krónur. Þá hafði
bankinn notaö vitlausar verðbætur.
Samkvæmt því átti hann aðeins að
greiða 20 þúsund krónur í verð-
bætur i stað 33 þúsund.
„A hverjum degi er lætt fjöl-
mörgum gluggaumslögum inn um
bréfalúguna hjá fólki. Eg spyr því,
í hversu mörgum tilfellum eru
útreikningar afborgana kol-
rangir?” sagði Jón Baldvin.
APH
Sparisjóðsbækur:
Vextimirnei-
kvæðiruml2%
Vextir á sparisjóösbókum eru nú
orðnir neikvæðir um 12 prósent
miðaö við verðbólgu síðasta
mánaðar. I viðtölum við viðskipta-
ráðherra og forsætisráðherra í gær
kom fram að báðir vilja að innláns-
vextir verði hækkaðir á sparisjóðs-
bókum.
Lánskjaravísitaian hækkað um
2,8 prósent í síðasta mánuði. Þetta
þýðir að á ársgrundvelli er nú um
39 prósent verðbólga. Samkvæmt
upplýsingum frá Seðlabankanum
eru vextir á sparisjóösbókum þvi
orðnir neikvæðir um 12 prósent.
Vextimir eru nú 22 prósent og er
talið aö þeir verði að hækka í 28
prósent. APH
LOKI
Það þarf nú að skoða
þetta betur með bí-
flugurnar og blómin i
skólakerfinu!
Akureyrarbær vill kanna víðtækari eignaraðild að hitaveitunni:
Kannar sölu
á hlut sínum í
stórfyrirtækjum
Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni
DV á Akureyri:
„Það getur verið nauðsynlegt að
skjóta af fallbyssum, þó því fylgi
aðallega drunur,” sagöi Sigurður J.
Sigurðsson, Sjálfstæðisflokki, á fundi
bæjarstjórnar Akureyrar í gær-
kvöldi.
Sigurður lagði þar fram tillögu
um að kannaöur yrði möguleiki á aö
selja hlut Akureyrar í Landsvirkjun
til þess að bæta eiginfjárstöðu Hita-
veitu Akureyrar, en skuldir hennar
nema um 1.700 milljónum. En ný til-
laga kom fram og öllu víðfeðmari:
Kannaður yrði sá möguleiki aö
selja hlut bæjarins í fyrirtækjum
hans, eins og Slippnum, Utgerðar-
félagi Akureyringa og Krossanesi.
Jafnframt yrði kannaður möguleiki
á víðtækari eignaraðild að hitaveit-
unni.
Orð Sigurðar hér að framan sagöi
hann í lokaumræöunni um nýju til-
löguna. Hún var samþykkt sam-
hljóða, 11—0. „Eg lít svo á að með
þessari samþykkt hafi mín tillaga
verið afgreidd, ” sagði Sigurður.
I umræðum um nýju tillöguna var
orðalagið „eignaraðild ríkisins”
lengi vel inni. Gunnar Ragnars,
Sjálfstæðisflokki, sagði á loka-
stundu: „Eg er á móti orðalaginu:
eignaraðild ríkisins”.
Tekið var undir það og gert hlé á
fundinum til að breyta orðalaginu.
„Víðtækari eignaraðild” kom í stað-
inn. „Hva, vilja menn ekki selja rík-
inu hitaveituna. Eg myndi selja Þor-
steini hana strax á morgun ef hann
vildi kaupa,” sagði Jón G. Sólnes,
Sjálfstæðisflokki, í miðju hléinu.
Allir bæjarstjórnarmenn ítrekuðu
að ekki væri verið að samþykkja sölu
á neinu, aðeins að kanna möguleika
á sölu.
Stjórnarfundi Sambands íslenskra samvinnufélaga var fram haldið i morgun. Menn biða afstöðu stjórnar-
innar til samstarfs við Íslenska skipafélagið sem Hafskipsmenn stofnuðu á dögunum. Á myndinni, sem
tekin var á tíunda tímanum í morgun, kemur Valur Arnþórsson stjórnarformaður á fundinn og Erlendur
Einarsson forstjóri tekur á móti honum. DV-mynd GVA.
Hólmfriður Karlsdóttir, ung-
frú heimur.
Hófíger-
ir lukku
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyui,
fréttaritara DV í Englandi:
Það hefur verið mikið að gera hjá
Hólmfríði Karlsdóttur, nýkrýndri
Miss World, undanfama viku.
Strax morguninn eftir aö hún vann
titilinn kom hún bæði fram í út-
varpi og sjónvarpi hér á Englandi.
I gærkvöldi kom Hólmfríður, eða
Hófí ems og hún er kölluð hér, fram
í þætti Def O’Connorr á ITV
sjónvarpsstöðinni. Þátturinn fór í
loftið klukkan 20, sem er besti tími
sjónvarpsútsendinga og þar sem
ITV er vinsælasta sjónvarpsstöð
Bretlands má búast við að með
þættinum hafi fylgst um sjö
milljónir áhorfenda.
Viðtaliö sem þáttastjórnandinn
tók við Hólmfríði stóö yfir í tæpar
tíu mínútur og komst Hólmfríður
mjög vel frá honum. Þau ræddu um
Island og komst gestgjafinn að því
að það kemur meira frá Islandi en
þorskur og Magnús Magnússon,
eins og hann hélt. Myndi Hólmfríði
langa að leika í kvikmyndum? „Eg
hef ekki hugsað mikið um það en er
ekki á móti því að prófa,” sagði hún
ámjöggóöriensku.
100-200 milljónir
bar á milli um Hafskip
— enn óljóst um Atlantshaf ssiglingar og tap Útvegsbankans
Á milli hugmynda Eimskips og
kaupverðs Islenska skipafélagsins á
innanlandsdeild Hafskips bar 100—
200 milljónir króna. Eimskip bauð
9,5—12,2 milljónir dollara, 400—510
milljónir króna. Islenska keypti á 15
milljónir dollara, 625 milljónir
króna.
Jafnframt er sá reginmunur á að
Eimskip vildi fá eignir og viðskipta-
sambönd Hafskips en Islenska
keypti til þess meðal annars að
ákveðnir einstaklingar ættu þess
kost áfram að standa í skipaútgerö-
inni, þá líklegast með SlS.
Islenska á nú þau fjögur skip, sem
voru í eigu Hafskips, auk ýmissar að-
stöðu. Skipadeild SIS á sex og hálft
skip. Ljóst er að gangi saman milli
þessara aðila verður SIS langstærsti
hluthafinn með liklega 65—75%.
Þaö skýrist fyrst í dag hvort SlS
gengur til formlegra samninga. I
dag er einnig von á niðurstöðu um af-
drif Atlatnshafssiglinga Hafskips.
Rætt hefur verið við erlenda aðila
um samvinnu eða sölu. Náist ekki
saman um það verður þessi deild
Hafskips lögð niður.
Hugsanlegt og líklegt tap Utvegs-
bankans eftir allt öldurótið kringum
Hafskip ræðst endanlega með
afdrifum Atlatnshafssiglinganna.
Eftir sölu innanlandsdeildarinnar
munu enn standa eftir skuldir hátt á
annað hundrað milljónir. Það er þó
óstaðfest.
HERB