Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Blaðsíða 2
2 DV. FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985. Afnám vísitölu á skammtímalán ársgamalt áform í ríkisstjórninni, segir Steingrímur: „Bankamir taki áhættu af skammtímasveiflunT „Afnám vísitölu á skammtíma- lán, til þriggja ára eða skemmri tíma, var fyrst til umræðu í rikis- stjórninni um síðustu áramót. Úr framkvæmdum hefur ekki orðið þar sem verðbólgan hefur ekki haldist i þeim skorðum sem við vonuðumst eftir. Ætlunin er að koma þessu á um næstu áramót," segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra. Jafnvel þótt verðbólgan sé ekkert minni eða viðráðanlegri en fyrir ári? „Við stefnum auðvitað að því að ná verðbólgunni aftur niður og hún verður að nást niður. Og bank- amir verða að taka þátt í því. Þeir verða að bera áhættuna af skammt- ímasveiflum ekkert síður en lán- takendur. Það veitir' öllum að- hald.“ Samkvæmt þessu vom fyrstu fregnir af hugsanlegum breyting- um í þessu efni nú, um að á bak við byggi sérstök tillaga Þorsteins Pálssonar íjármálaráðherra, stór- lega ýktar. Þetta er sem sé árs- gömul fyrirætlun ríkisstjómarinn- ar og núna eru umræður teknar upp aftur fyrir frumkvæði bæði forsætisráðherra og fjármálaráð- herra. Verði af því að vísitölubinding skammtímalána falli niður, fást skammtímalán eingöngu á þeim markaðsvöxtum sem bjóðast í bankakeríínu á hverjum tíma. Allt er í óvissu um það hvort vextir verða gefnir frjálsir með nýjum seðlabankalögum þrátt fyrir ákvæði í þeim um það. Lögin áttu upphaflega að taka gildi um ára- mótin en liggja enn sem frumvarp í viðskiptaráðuneytinu. í því er raunar ákvæði sem heim- ilar Seðlabankanum að breiða vængi sína á ný yfir vextina við sérstakar, tímabundnar aðstæður. í Seðlabankanum eru uppi raddir um að erfitt verði að beita slíku ákvæði nema af afar sérstökum tilefnum. Það jafngildi nánast yfir- lýsingu ríkisstjómar um neyðar- ástand. Eins og stendur eru vextir á óverðtryggðum lánum undir verð- bólgu og ávöxtun slíkra lána skilar naumast eða ekki raunvöxtum. Á meðan lifa bankamir á verulega neikvæðum raunvöxtum á innlán- um á almennar sparisjóðsbækur sem enn em aðeins 22% á ári í 37% verðbólgu. Raunvextir á verð- tryggðum útlánum eru nú á hinn bóginn 4-5%, samkvæmt ákvörðun Seðlabankans. Það er samdóma mat allra að þetta séu allt of háir raunvextir. Um það segir Steingrímur Her- mannsson: „Við þekkjum raun- vexti upp í 7% í Bandaríkjunum og niður í 1,5% í Sviss. Ég tel 3% raunvexti í rauninni algert hámark og vil að við stefhum að minnsta kosti niður í þá tölu. En til þess verðum við fyrst að treysta mjög peningalegan spamað og ná þann- ig og með aðhaldi í fjárfestingu almennt og opinberum rekstri sæmilegum jöfnuði á peninga- markaðnum." HERB Stjórn Arnarflugs á fundinum í gær. Lengst til hægri er stjórnarformaðurinn, Haukur Björnsson. Baki í myndavélina snúa Anna Sverrisdóttir og Ómar Ólafsson, fulltrúar starfsmanna, og Agnar Friðriksson framkvæmdastjóri. Fjær eru Grétar Br. Kristjánsson og Guðmundur Pálsson, fulltrúar Flugleiða, og Axel Gíslason, aðstoðarforstjóri Sambandsins. DV-mynd PK. TAP ARNARFLUGS17 MILUÓNIR KRÓNA Rekstrartap Amarflugs fyrstu níu mánuði ársins nam um 17 millj- ónum króna. Þessar niðurstöður voru kynntar á fundi stjórnar Amarflugs í gær. Búast má við að þegar árið í heild verður gert upp sýni tölur enn meira tap því að venjan er í rekstri íslenskra flugfélaga að þau tapi á . síðasta ársfjórðungi. í frétt frá stjóm Arnarflugs segir að mikil hækkun vaxtagjalda sé meginástæðan fyrir því að afkoman sé ekki betri en raun ber vitni, þrátt fyrir gífurleg umsvif. Þau hafi aldr- ei verið meiri í sögu félagsins. Amarflug hafi meðal annars verið stærst flugfélaga í pílagrímaflugi á liðnu sumri. Til að fjármagna þann umfangsmikla rekstur hafi félagið þurft að taka á sig mikinn ófyrir- séðan vaxtakostnað á liðnum mánuðum. Liðlega 50 milljóna króna bati varð á rekstri Arnarflugs á tímabil- inu frá júlíbyrjun til september- loka. Heildárvelta í septemberlok var liðlega 1.008 milljónir króna, borið saman við 309 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Starfsmenn Arnarflugs em nú á bilinu 120-130. Á liðnu sumri, þeg- ar umsvifin voru mest, vom starfs- menn samtals 485. -KMU. Dómurinn kom öllum mjög á óvart Bankakerfid tekið í gegn: RÆNINGJA BÆU — segir Jón Baldvin Hannibalsson „ Það er krafa þjóðarinnar að al- þingismenn fari ekki heim fyrr en búið er að taka til i bankakerfinu," sagði Guðrún Helgadóttir, Alþýðu- bandalagi, á Alþingi í gær. Hún og nokkrir aðrir þingmenn vildu að rækilega yrði hrært upp í bankakerf- inu, sem Jón Baldvin kallaði reyndar ábyrgðaiaust ræningjabæli. Á dagskrá var fmmvarp Guðmund- ar Einarssonar, Bandalagi jafnaðar- manna, þess efnis að viðskiptaráð- herra eigi að skipa bankaráð ríki- sviðskiptabankanna og að alþingis- mönnum sé óheimil seta í bankaráði. Þingmenn notuðu tækifærið til að ræða um hlutverk ríkisbankanna. Hafskipsmálið bar oft á góma og það talið vera orðið alþjóðlegt hneykslis- mál. Guðmundur Einarsson sagði að það væri óeðlilegt að Alþingi kysi í bankaráðin og væri þar með að færa arma sína yfir í framkvæmdavaldið. Hann nefndi Hafskipsmálið þar sem milljónum króna væri ausið úr banka án þess að þingmenn hefðu hugmynd hvað væri að gerast. Á meðan sætu þeir á þingi og reyndu að kreista fáeinar krónur í hin og þessi verkefni. Þegar ákveðið var að verja einu söluskattsstigi til hús- næðismála ætlaði allt um koll að keyra. Hins vegar hefði á sama tíma verið að smeygja út um bakdymar í Útvegsbánkanum um fjórum sölu- skattsstigum til Hafskips, Þetta fé ætti nú almenningurað greiða. Hann sagði það vera kaldhæðnislegt að í einu dagblaðanna hefði verið birt auglýsing frá Utvegsbankanum þar sem sagt væri að með því að leggja inn í ríkisbanka væri engin áhætta. Jóhanna Sigurðardóttir, Alþýðu- flokki, sagði að það væru alvarlegir gallar á bankakerfinu. Hún sagði að það ætti að auka sjálfstæði bankaeft- irlitsins. Og innan skamms myndi hún leggja fram frumvarp um að bönkum væri einungis heimilt að lána út ákveðið hlutfall af eigin fé bankans. Hún lýsti yfir stuðningi við frumvarp Guðmundar í megindrátt- um. Það gerði Guðrún Helgadóttir einnig. Hún sagði að það þyrfti að endurskoða bankakerfið algjörlega og bankamir væru stjórnlausir, hún væri nú að vinna að fmmvarpi þar sem gert væri ráð fyrir því að banka- eftirlitið yrði sjálfstæð stofnun. Jón Balbvin Hannibalsson, Al- þýðuflokki, var harðorður í garð ríkisbankanna. Hann taldi eðlilegast að þeir yrðu lagði niður í sinni mynd og reknir af sínum raunvemlegu eigendum eða þeim sem skiptu við þá. Hann kallaði bankana ræningja- bæli sem hefðu undanfama áratugi rænt öllu sparifé af fólki. Það væri ábyrgðarlaust bankakerfi. Páll Pétursson, Framsóknarflokki, sagðist vera andvígur frumvarpinu. Hann sagði það vera undantekningu að þingmenn Framsóknarflokksins sætu í bankaráðum. Hann taldi einn- ig að margt mætti læra af Hafskips- málinu. Það mál væri þó ekki hægt að skrifa á reikning núverandi bank- aráðs. Þetta mál hefði verið að gerast ígegnumárin. . APH Sex útvarpsmál í meðf erð dómstóla „ Niðurstöður dómsins komu okkur öllum mjög á óvart. Við töldum að hér væri ekki um svo alvarlegan glæp að ræða. Erfitt er fyrir löggjafann að meta þennan útvarpsrekstur hér á Ísafírði á þennan hátt í dag með tilliti til þeirra aðstæðna sem giltu í verk- fallinu í fyrra. Fólkið vissi ekkert, frétti ekkert, vissi ekki einu sinni hvaða lög voru í gildi. Símaþjón- ustan lagðist niður, menn vom að frétta af alls konar uppþotum í Reykjavík, byltingum í Háskólan- um og árásum á ráðherra. Okkur þótti ekki ólöglegt að upplýsa hvað væri að gerast ef þess væri nokkur kostur. Það ömurlegasta í þessu máli er að 17 ára skólpiltur er dæmdur sakamaður fyrir að hafa spilað músík í 1 klukkustund," sagði Úlfar Ágústsson, fram- kvæmdastjóri á ísafirði, í samtali við DV í morgun. Úlfar var ásamt níu öðrum dæmdur í fésekt fyrir að hafa starf- rækt ólöglega útvarpsstöð á ísafirði í tvo daga í verkfalli BSRB í fyrrahaust. Þeir Úlfar Ágústsson, Ámi Sigurðsson ritstjóri, Óskar Eggertsson framkvæmdastjóri, Yngvi Kjartansson blaðamaður og Bjöm Hermannsson rafvirki myn- duðu hið svokallaða „útvarpsráð" og hlutu 5000 kr. sekt eða 5 daga varðhald. Magni Veturliðason raf- eindastjóri, Guðmundur Kristins- son rafeindavirki, Bjarní Hákonar- son verslunarstjóri og Jakob Garð- arsson nemi ( 17 ára ) hlutu 3000 króna sekt eða 3 daga varðhald. Þeim dæmdu ber einnig a'ð greiða dómskostnað. í niðurstöðum dómsins segir m.a. að hvorki neyðarréttur hafi rétt- lætt þessa úvarpsstarfsemi né hafi eínkaréttur fallið niður vegna verkfalls. -KB Sex svipuð mál og dæmt var í á ísafirði í fyrradag, vegna ólöglegs útvarpsrekstrar í BSRB verkfall- inu í fyrra, eru nú til meðferðar í dómskerfinu. Þrjú eru í Reykja- vík, eitt á Akureyri og eitt á Siglufirði. „ Auðvitað er einhver hliðsjón höfð af fyrri dómum í svipuðum málum. Þó hafa hér- aðsdómar ekki algjört fordæmis- gildi. Hins vegar hefur Hæstirétt- ur mikið fordæmisgildi. Líklegt er að þessum dómi á ísafirði verði vísað til Hæstaréttar, annað- hvort af domþolum eða ríkissak- sóknara,“ sagði Jón Erlendsson hjá Saksóknara ríkisins sem mun dæma í einu þessara mála.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.