Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Blaðsíða 43
DV. FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985. 43 Markaðurinn ÚRVALS svissneskár ryksugur í glæsilegum tískulitum. 1000 vött-5 lítra rykpoki. Rotel 1030, kr. 8.900, Rotel 1060, kr. 9.900, Rotel 1080, kr. 12.400,- EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTADASTRÆTI I0A - SlMI I6V95 Úlfar þormóðsson - Hugmyndir eigenda listaverka um verð eru orðnar mjög afskræmdar. „Unga fólkið verðleggur verk sín of hátt. Þá er ég ekki að tala irni gæði verkanna sem verið er að selja helaur markaðinn,“sagði Úlfar Þor- móðsson, einn af eigendum Gallerí Borgar. Gallerí Borg hefur nú starfað hátt á annað ár og stendur þolanlega að sögn Úlfars. Er það óvenjulegt þegar gallerí í einkaeigu eru annars vegar. „Þetta hefst með því að hafa rekst- urinn þríþættan. Sýningarsalur get- ur ekki borið sig einn sér án þess að aðstoð frá ríki eða bæ komi til. Auk þess að leggja salinn undir einkasýn- ingar tökum við gömul verk í um- boðssölu og höldum uppboð. Á því fljótumvið. Hagnaðurinn af sölu mynda gömlu meistaranna og uppboðunum fer til að borga tapið af sýningarsalnum. Nútímalistin selst einfaldlega ekki nógu vel til að hægt sé að láta hana standa undir galleríi.“ Úlfar sagði að hugmyndir lista- manna og eigenda listaverka um verð listarinnar væru orðnar mjög afskræmdar. Oft láti þeir sögur af háu verði á verkum einstakra meist- ara villa sér sýn. Síðan reynist myndirnar óseljanlegar á því verði. „Verð listaverka er auðvitað mjög afstætt. Verðmætamatið mótast oft af þeim hug sem hver og einn ber til verksins. Hins vegar er reynslan oft sú að markaðurinn stendur ekki undir því verði sem eigandanum finnst sanngjarnt. Ég geri mér ekki að öllu leyti grein fyrir hvað listamenn láta ráða þegar þeir verðleggja verk sín. Hins vegar kémur það oft í minn hlut að fá þá til að lækka verðið, stundum um allt aðhelming." - Væri óráð að lækka verðið enn meira? „Það er ekki hægt að lækka verðið meira. Salan eykst ekki nema fólk fái meiri auraráð og myndrænt upp- eldi og þroski þjóðarinnar aukist," FÆRRI SÝNINGAR - MINNI SALA - Nú er fyrirsjáanlegt að nokkrum galleríum í einkaeigu verður lokað á næstunni. Vænkast þá ekki hagur þeirra sem eftir eru? „Nei, hagur þeirra versnar. Því meira sem um er að vera í myndlist- inni, þeim mun almennari verður áhuginn. Fjöldi sýninga og allt umtal um listina eykur söluna." En hveijir eru það sem kaupa sér listaverk? Það er fullvíst að stór hópur manna lætur það sem er í boði á listaverkamarkaðnum fram hjá sér fara. Það eru helst ódýr grafík og snöggunnar landslagsmyndir sem seljast utan þess hóps sem telst til listunnenda. En hvaða hópur er það? Úlfar svarar því: ÞRÍR HÓPAR VIÐSKIPTAVINA „Það má skipta viðskiptavinunum í þrjá hópa. í fyrsta lagi eru það aðdáendur einstakra listamanna sem kaupa verk þeirra í hvert sinn sem þeir sýna. Siðan eru það þeir sem kaupa list til gjafa. Loks eru það svo þeir sem kaupa dýr verk fyrir sjálfa sig. Sjálfsagt ræður það sjónarmið að festa peninga í viðurkenndri list oft miklu. Verk gömlu meistaranna falla ekki í verði með aldrinum eins og bílskrjóðar sem ganga úr sér á nokkrum árum.“ Hverjir eru það sem fela ykkur aðseljamyndir? „Margar myndanna koma úr dán- arbúum. Nú, sumir eru að taka til hjá sér og vilja einfaldlega losna við myndir sem þeir hafa ekki áhuga á að eiga lengur. Enn aðrir eru að losa peninga sem þeir eiga í myndunum. Við tryggjum nafnleynd, bæði fyrir kaupendur og seljendur. Það er gert til að koma í veg fyrir að sögusagnir fari á kreik. T.d. getur það gerst ef einhver vill selja dýrt verk, þá fer sögubera að gruna að viðkomandi sé að fara á hausinn. Við höfum alltaf ætlað okkur að vera með bestu listina. Við losum fólk við að leita uppi góða listamenn og losum listamennina við átroðn- ing,“ sagði Úlfar Þormóðsson. GK Jólakjör tekur ekki við þessu háa verði - segir Úlfar Þormóösson einn af eigendum Gallerí Borgar fyrir alla semþurfa nýja ryksugu íjólahreingerninguna. ÚTBORGUN kr. 2000,-, síðan 1500 á mánuði. Staðurinn skiptir miklu máli -segir Hjördís Gissurardóttir hjá Gallerí Grjóti Hjördís Gissurardóttir - Sérvitringunum fer fjölgandi; sem betur fer. „Reksturinn hér stendur undir sér hvort sem það stafar af því að við eru á góðum stað í bænum eða hóp- urinn sem selur hér svona góður,“ sagði Hjördís Gissurardóttir, einn þeirrá áttmenninga sem rekur Gal- lerí Grjót við Skólavörðustíg. I Grjótinu eru eingöngu seld verk þeirra sem að salnum standa. Það eru fjórir myndlistarmenn, tveir gullsmiðir, einn keramiker og einn__ höggmyndasmiður. í salnum eru jafnan standandi sýningar á 'verkum þessara listamanna. Þó er skipt um eftir þörfum á viku til mánaðar fresti. Hjördís sagði að meðal viðskipta- vinanna yrðu þau bæði vör við fólk sem keypti verk til að festa fé og til gjafa. Einnig bæri mikið á erlendum ferðamönnum. Fólk er greinilega farið að meta það meira að geta eignast hluti sem hvergi fást annars staðar,“sagði Hjördís. „Sérvitring- unum fer fjölgandi sem betur fer.“ Verð á verkum í Gallerí Grjóti er ákveðið af eiganda hvers verks. Hópurinn sem stendur að galleríinu skiptir sér ekki af því. Síðan borgar hver félagi ákveðna prósentu af sölu til reksturs salarins. „Það er tilfinning hvers og eins sem ræður verðinu,“ sagði Hjördís. „Þess utan er reynt að taka tillit til efnis- kostnaðar og vinnu. Markaðurinn tekur við þessu verði og salurinn ber sig þrátt fyrir að leigan sé nokkuð há. Við verðum vör við að fólk er sjálfstæðara en lengi hefur verið. Það er ekki lengur í tísku að allir séu steyptir í sama mót.“ sagði Hjör- dís Gissurardóttir. GK X irtrirn-n i 1 itOTUlM—i'l I v

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.