Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Qupperneq 8
8 DV. FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985. Údönd ÚUönd Útlönd ÚUönd Delha: Einn maður látinn og tugir slas- aðir eftir gaslekann Einn maður lést í morgun og fleiri en tíu menn eru alvarlega veikir af völdum gaslekans í Delhí gær. Um 350 menn eru að ná sér eftir að hafa andað að sér súlfúrtríoxíði sem slapp út úr verksmiðjunni og lagðist yfir markaðshverfi í elsta hluta borgar- innar. Óloftið dreifðist um norðurhluta borgarinnar aðeins einum degi eftir að Indverjar minntust ársafmælis gaslekans í Bhopal, sunnan við Del- hí, sem varð 2.500 mönnum að bana. Sérfræðingur stjórnarinnar sagði upphaflega að gasið, sem slapp í gær, væri ekki eitrað. Flestir sem urðu í vegi gassins fengu að fara heim af spítala, rauð- eygir og hóstandi. Þrír starfsmenn við verksmiðjuna voru handteknir. Gaslekinn varð þegar 40 tonna tankur gaf sig. Mobutu náðar Mobutu, forseti Zaire, náðaði um helgina allmarga refsifanga og veitti öðrum töluverða eftir- gjöf í tilefni af því að 20 ár voru liðin frá því að hann komst til valda í byltingu hersins. Þeir sem dæmdir höfðu verið í hámark 3ja ára fangelsi voru náðaðir en hinir sem lengri dómar hvíldu á fengu þriggja ára styttingu refsi- vistar. Þetta tók þó ekki til flóttafanga, dæmdra morðingja, ræningja eða þeirra sem stolið höfðu úr sjóðum þess opinbera. Tsjasov svarar Nóbels- gagnrýni Évgení Tsjasov, sovéski læknirinn, annar af tveim leiðtogum samtaka lækna gegn kjarnavá sem munu taka við friðarverðlaunum Nóbels, varði sig í gær gegn gagnrýni á Vesturl- öndum um að hann hefði tekið þátt í ófrægingarherfreð gegn Andrei Sakharov. Tsjasov sagði að hann ætti aðeins jafnmikið í verðlaunun- um og 140.000 aðrir læknar sem aðild ættu að samtökunum. íhaldssamir stjórnmálamenn á Vesturlöndum, með Helmut Kohl í broddi fylkingar, hafa sent bréf til Nóbelsverðlaunanefndarinnar í Osló þar sem þeir ráðast á veitingu friðar- verðlauna til Tsjasovs. Tsjasov sagði í viðtali við vestur- þýska sjónvarpsstöð að hann væri Sakharov ósammála varðandi kjarn- orkuafvopnun en að skoðanir sínar væru á engan hátt opinberar skoðan- ír sovéska ríkisins. Hann vitnaði í bandarískan lækni sem hefði sakað íhaldsmenn um að nota Sakharov sem peð í herferð sinni gegn kommúnismanum. ÍSmMSHií Fiskveiðar Evrópubandalagsþjóðanna munu dragast verulega saman á næsta ári ef stjórnarnefnd bandalagsins fær einhverju um ráðið, Tillaga EB: STORMINNKAÐAR HSK- VEIÐAR í NORÐURSJÓ Stjórnarnefnd Evrópubandalags- ins hefur lagt til að fiskveiðar banda- lagsþjóða verði minnkaðar til muna til að forða vissum fisktegundum frá útrýmingu, að sögn embættismanna bandalagsins í gær. Skýrslur fiskifræðinga sýna að makríll og þorskur, sérstaklega í Norðursjónum, eru í hættu vegna ofveiði. Fiskveiðimenn í bandalag- inu hafa aukið veiðar á makríl vegna kvótakerfis sem hefur meinað þeim að veiða annan fisk. Stjórnamefndin mun leggja til að hlutur bandalagsins í þorskveiði í Norðursjó verði skorinn niður um 28 prósent. Ef farið verður að tillög- um nefndarinnar verður það mikið áfall fyrir útgerð í Bretlandi, Holl- andi og írlandi. Þó er það talið minnka nokkuð áfallið að hægt verð- ur að leyfa aukna síldveiði. Lagt verður til að makrílveiði við Skotland og írland verði minnkuð um næstum 21 prósent. Sjávarútvegsráðherrar bandalags- ríkja verða að samþykkja kvótana áður en þeim verður úthlutað. Schluter með hnífinn á lofti Danska stjórnin opinberaði í dag áætlanir um niðurskurð í ríkisút- gjöldum sem ætlað er að bæta skuldastöðuna við útlönd. Stjómin hyggst minnka neyslu hjá því opinbera og hjá almenningi, draga úr nýbyggingum og auka skatt á orku, að sögn Poul Schlúter forsæt- isráðherra. Opinberar ágiskanir gera ráð fyrir að áætlanirnar verði til þess að eftir- spum á neytendamarkaði minnki um átta milljarða danskra króna árið 1986. Skuldir við útlönd eiga einnig að minnka. Þær eru núna 22 millj- arðar danskra króna en verða 16 milljarðar í árslok 1986, samkvæmt áætlununum. Fé til byggingaframkvæmda á vegum stjórnarinnar verður haldið við 2,5 milljarða króna. Lánastofn- unum verður ekki leyft að lána fé til almennings til kaupa á vörum. Tak- mörk verða sett á lán til lagfæringa á húsum. Seðlabankinn hefur verið beðinn um að vara banka við að lána almenningi mikið fé og að auglýsa ekki slík lán. Fjárútlát til sveitarfélaga verða mjög skert á næsta ári. Til að þessar áætlanir nái sam- þykkt þingsins verður flokkur radik- ala að styðja þær. Poul Schlúter sagði í gær að hann vissi ekki hve mikinn hluta þeirra radikalar myndu styðja. Schlúter hyggur á niðurskurð í ríkisútgjöldum. Samþykkja radikalar? MIKHAIL OG RAISA VIN- SÆLU EN NANCY OG RON Ketilbjörn Tryggvason, DV, V-Berlín: Fáir menn hafa verið eins mikið í Raisa og Mikhail voru vinsælli hjá Þjóðveijum eftir leiðtoga- fundinn í Genf heldur en Nancy og Ron, að sögn skoðanakann- ana. sviðsljósinu undanfarið og þéir kunningjar Gorbatsjov og Reagan. I tilefni viðræðna þeirra í Genf voru gerðar umfangsmiklar skoðana- kannanir hér í Þýskalandi til að finna út hvert álit manna á þessum tveim þjóðarleiðtogum væri. Undr- aði það margan að úrslit könnunar- innar voru oftast Gorbatsjov í hag. Fyrir honum var borin meiri virðing, hann talinn koma betur fram, vera heiðarlegri og jafnvel myndarlegri en starfsbróðir hans vestanhafs. Reyndar varð munurinn fyrst veru- legur er talið barst að konum þeirra beggja. Hlaut Raisa Gorbatsjov, kona hins nývalda aðalritara í Kreml,um 34 af hundraði fleiri stig við spurningunni hvor konan fólki fyndist geðfelldari. Taka verður fram að þarna var, eins og viða annars staðar, ekkert spurt um eiginlegt innihald þeirra viðræðna er milli þessara tveggja manna fór.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.