Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Síða 25
24 DV. FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985. DV. FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985. 25 íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir John McEnroe íkeppnisbann Bandaríski tenniskappinn kunni. John McEnroe, Bandaríkjununi lét skapið heldur betur hlaupa með sig í gönur á ástralska meistaramótinu, sem nú stendur yfir í Melbourne. Hann lék í gær við lítt þekktan Júgóslava, Slobodan Zivojinovic, sem er í 66. sæti yfir bestu tennisleik- ara heims.og tapaði í fimm lotum, 2-6, 6-3, 1-6.6-4 og 6-0. 1 síðustu lo- tunni sló Bandaríkjamaðurinn bara eitthvað. Virtist alveg sama um úr- slitin. Hann hafði verið áminntur í leiknum og klukkutíma síðar var hann mættur á flugvöllinn í Mel- boume. Flaug síðan heim. McEnroe hefur verið dæmdur í þriggja vikna keppnisbann fyrir framkomu sína á mótinu í Melbo- ume. Eftir aðra umferðina var hann dæmdur í 1000 dollara sekt og á nú yfir höfði sér stórsekt auk keppnis- bannsins.Fjórir Evrópumenn leika í undanúrslitum mótsins. Svíinn Mats Wilander leikur við Júgóslavann sem sigraði McEnroe.Tékkinn Ivan Lendl leikur við John Lloyd, Englandi. - - hsím Stapleton skoraði sjálfsmark — og Everton tryggði sér þar með sigur í viðureign liðanna íSuper-Cup Sjálfsmark írska landsliðsfram- herjans Frank Stapleton fimm mínútum fyrir leikslok færði Everton sigur í viðureign liðsins við Manchester United í Super- Cupígærkvöldi. Stapleton, sem ekki hefur skor- að mark fyrir Manchester liðið i síðustu sextán leikjum, varð að leika í vöminni sökum mikilla meiðsla i herbúðum liðsins. Markið kom eftir að varamark- vörður Man. Utd., Chris Tumer, hafði hálfvarið skot Gary Line- ker. Stapleton hugðist hreinsa frá marki en sú tilraun hans fór öðmvisi en ætlaö var. Boltinn hafnaði í eigin marki og Manc- hesterliðið verður nú að vinna Norwich með tveggja marka mun í lokaleik sinum í riðlinum til að komast í undanúrslit keppninn- ar. Everton hefur þegar tryggt sér ömggt sæti í undanúrslitum. - fros íslandsmót ílyftingum íslandsmeistaramótið í lyfting- um fer fram 14. desember í Ár- mannshúsinu við Sigtún. Vænt- anlegir þátttakendur þurfa að skrá sig hjá Óskari Kárasyni fyrir 10. desember. Sími 681437. Átta marka sigur Dana — sem náðu að hefna ófaranna frá þvíífyrrakvöld með þvíað vinna stórsigur á Svíum, 27-19 Frá Gunnlaugi Jónssyni, frétta- leikslok er hann raðaði fjórum inn. ritaraDVíSvíþjóð: Mörk Jilson á lokakaflanum dugðu Eftir að Svíar höfðu unnið tíu þó skammt í Kaupmannahöfn því marka sigur á Dönum í fyrrakvöld Danir unnu átta marka sigur, 27-19, leyfði landsliðsþjálfari þeirra, Roger eftir að munurinn hafði verið sjö Carlsen, sér þann munað að hvíla mörk í hléi, 14-7. þrjá bestu leikmenn sína frá fyrri Allir tíu útileikmenn Dana náðu leiknum í seinni landsleik liðanna að komast á markalistann í leiknum. sem fram fór í Kaupmannahöfn í Þrír menn voru hæstir með fjögur gærkvöldi, markvörðinn Claus Hell- mörk en það voru þeir Morten Stig gren og hornamennina Eric Hajas Kristiansen, Kjell Nilsen og Hattes- og Sten Sjögren. Þar við bættist að en. helsta stórskytta þeirra, Bjöm Jil- Ebbinge varð markahæstur son, var í miklu óstuði framan af Svíanna með fimm mörk, Björn Jil- leik liðanna í gærkvöldi. Skoraði son kom honum næstur með fjögur ekki mark fyrr en tíu mínútum fyrir og Lindau skoraði þrjú. - - fros Sjo nyliðar i kvennalandsliðinu — sem tekur þátt í b-heimsmeistaramótínu íhandknattleik íV-Þýskalandi Hilmar Björnsson hefur valið sjö nýliða í landslið kvenna í handknattleik sem tekur þátt í b-heimsmeistarakeppninni i V-Þýskalandi í næstu viku. Möguleikar islenska liðsins geta ekki talist miklir í keppninni þar sem liðið er mjög ungt og reynslu- lítið. Liðið mun leika í riðli með Austurríki, Ungveijalandi og Tékkóslóvakíu og felast mögu- leikar landans í að sigra Austur- riki. Það mundi tryggja íslend- ingum sæti í milliriðli með sterk- um A-Evrópuþjóðum. Lendi liðið i neðsta sæti riðilsins mun liðið leika í botnriðli. Þær sextán stúlkur er munu fara út eru eftir- taldar: Hilmar Bjömsson. Markverðir: Jóhanna Pálsdóttir Gyða Olfarsdóttir Sólveig Steinþórsdóttir, nýliði Aðrir leikmenn: Ema Lúðvíksdóttir Eva Baldursdóttir Inga L. Þórisdóttir, nýliði Ingunn Bernódusdóttir Guðrún Gunnarsdóttir, nýliði Sigrún Blómsterberg Arna Steinsen, nýliði Svava Baldvinsdóttir, nýliði Erla Rafnsdóttir Guðrún Kristjánsdóttir Margrét Theodórsdóttir Anna Guðjónsdóttir, nýliði Valdís Birgisdóttir, nýliði Oddný Sigsteinsdóttir gat ekki gefið kost á sér. Fyrsti leikur stúlknanna fer fram þriðjudaginn í næstu viku erliðiðleikurviðUngveija. - fros Stórkostleg mark- varla hjá Hellgren — tryggði Svíþjóð tíu marka sigur á Dönum Frá Gunnlaugi Jónssyni, frétta- ritara DV í Svíþjóð: Svíar gerðu sér lítið fyrir í fyrra- kvöld og tóku landslið Dana í kennslustund er þjóðimar mættust í, handknattleik í Svíþjóð. Það var öðm fremur stórkostleg markvarsla Claus Hellgren í marki Svía er tryggði þeim tíu marka sigur, 25-15, á erkifjendunum og er það stærsti sigur Svía á Dönum í mörg ár. Hellgren varði sautján skot í leikn- um, þar af tvö vítaköst. Leikurinn var í jafnvægi framan af og munur- inn á liðunum var aðeins eitt mark í hléi, 11-10, Svíum í hag. Bjöm Jilsen var að venju marka- hæstur í liði Svía. Hann skoraði sjö mörk. Þeir Per Öberg og Eric Hajas .gerðu fjögur. Fyrirliði Dana, Röbstorf, var at- kvæðamestur í sinu liði með fimm mörk. Sigurinn var nokkur sárabót fyrir Svía sem máttu þola tap fyrir Dönum á stórmótinu sem fram fór í V-Þýska- landi fyrir stuttu. Þá sigruðu Danir með eins marks mun í leik liðanna um sjöunda sæti mótsins. - fros v'feí' Andreas Thiel, besti markvörður heims, átti frábæran leik, þegar er Myndin var tekin í leiknum. V-Þýskaland sigraði Sovétríkin með sjö marka mun á stórmótinu. DV-mynd Bongarts. Besti markvöröur heims og allir stórkarlamir - í vestur-þýska landsliðinu í handknattleik sem leikur þrjá leiki við ísland um helgina í liðið vantar Thomas Happe frá Essen sem á við veikindi að stríða. Það er bagalegt fyrir þýska liðið því hann hefur haldið vörninni saman. Frá Atla Hilmarssyni, frétta- manni DV í Þýskalandi. Þjóðveijar koma með alla sína bestu leikmenn í landsleikina þrjá við ísland í handknattleiknum um helgina. Eftir íslandsförina verður HM-hópur Vestur-Þýska- lands svo endanlega valinn, það er leikmennirnir sem leika á HM í Sviss eftir tæpa þijá mánuði. Vestur-þýska liðið hefur sýnt mjög misjafna leiki að undan- förnu, til dæmis tapað fyrir Dön- um en unnið heimsmeistara Sov- étríkjanna með sjö marka mun. Þetta átti sér stað á stórmótinu í V-Þýskalandi á dögunum. Samt sem áður eru þeir örugglega með eitt af fjórum bestu landsliðum heims í dag. Uppistaða liðsins er leikmenn sem urðu í öðru sæti í heimsmeistara- keppni pilta í Finnlandi 1983, leik- menn 21 árs og yngri, og síðan silfur- verðlaunahafar á ólympíuleikunum í Los Angeles 1984. Þýska hand- knattleikssambandið vonast til að halda þessu liði saman fram yfir ólympíuleikana í Seoul 1988 og þar ætti liðið að vera á toppnum. Fyrsta verkefnið er hins vegar að verða i einu af sex efstu sætunum á HM í Sviss. Við skulum nú aðeins renna yfir þýsku landsliðsmennina sem hér leika. ANDREAS THIEL, Gummers- bach, 25 ára stúdent. 76 landsleikir. Besti markvörður í heimi í dag að flestra áliti. Heldur Gummersbach- liðinu á toppnum í Þýskalandi með frábærri markvörslu. Hefur verið kosinn handknattleiksmaður ársins í Þýskalandi tvö síðustu árin. SIEGFRIED ROCH,Grosswall- stadt, 26 ára , 31 landsleikur. Hefur átt stóran þátt í velgengni Gross- wallstadt í ár. Ver sérstaklega vel gegn línu- og homamönnum. STEFAN HECKER, Essen, 26 ára stúdent. 35 landsleikir, sterkur al- hliða markvörður sem keppir við Roch um aðra markmannsstöðuna. Þetta voru markverðirnir en aðrir leikmenn liðsins eru ANDREAS DÖRHÖFER, Schwabing, 22ja ára stúdent. 24 landsleikir, 17 mörk. Örvhentur, langskytta. Hefur einnig verið reyndur í hægra hominu en hefur ekki tekist að festa sig í landsliðinu. RUDIGER NEITZEL, Gummers- bach, 22ja ára stúdent. 46 landsleikir, 114 mörk. Sterkur hægri handar skotmaður, sem getur leikið bæði hægra og vinstra megin fyrir utan. Hefur mikinn stökkkraft og skot hans em firnaföst. MARTIN SCHWALB, Grosswall- stadt, 22ja ára stúdent. 47 landsleikir, 133 mörk. Örvhentur og spilar hægra megin fyrir utan. Einn besti sóknar- maður í Bundesligunni í dag. Hefur góða tækni og gpfct auga fyrir sam- leik. Mjög ömggur í vítaköstum, hefur góðan stökkkraft og skot. CHRISTIAN FITZEK, Gummers- bach, 24 ára stúdent. 16 landsleikir, 19 mörk. Línumaður. Sterkur bæði í vörn og sókn og verið í mikilli fram- för síðustu tvö árin. Fljótur að koma sér í færi og öruggur á línunni. STEPHAN SCHÖNE, Dusseldorf, 23 ára stúdent. 14 landsleikir, 14 mörk. Hægri handar skytta, sem spilar vinstra megin fyrir utan. Byrj- aði að leika með landsliðinu í sumar, hefur mikinn stökkkraft og góð skot. MICHAEL ROTH, Grosswall- stadt, 23 ára. 34 landsleikir, 48 mörk. Spilar á miðjunni fyrir utan og hefur leikið mjög vel í vetur. Sterkur í gegnumbrotum. ERHARD WUNDERLICH, Mil bertshofen, 28 ára skrifstofumaður. 128 landsleikir og 461 mark. Leikur allar stöður fyrir utan. Leikur núna í 2. deildinni og skorar að meðaltali 10 mörk í leik. Virðist vera að ná sér á strik aftur eftir heldur lélega leiki tvö síðustu árin. Með langmesta reynslu allra leikmanna þýska liðs- ins og geysilega mikilvægur fyrir þetta unga lið. Það stendur og fellur oftast með honum. WOLFGANG KUBITCHI, Essen. 25 ára stúdent. 20 landsleikir, 26 mörk. Leikur á miðjunni fyrir utan. Hann er með sérstakan stíl, stekkur til dæmis upp af báðum fótum og skýtur. Mjög fljótur og á óvænt skot. JOCHEN FRAAK, Essen, 22 ára stúdent. 53 landsleikir, 157 mörk. Er talinn af þjálfara sínum hjá Essen einn af þremur bestu homamönnum heims í dag - vinstra megin - eða á eftir þeim Ivanovic, Júgóslavíu, og Karschakowitsch, Sovétríkjunum. Skorar mikið úr hraðaupphlaupum. UWE SCHWENKE, Kiel, 26 ára stúdent. 49 landsleikir, 107 mörk. Leikur í báðum homunum, rétt- hentur. Hefur verið besti leikmaður Kiel undanfarin ár og skorar mikið af mörkum, sérstaklega úr hraðaupp- hlaupum og vítum. JÖRN UWE LOMMEL, Essen, 27 ára stúdent. 6 landsleikir og 6 mörk. Leikur í hægra horninu, örv- hentur. Var valinn í landsliðið fyrir leikina í stórmótinu og stóð sig mjög vel, sérstaklega í varnarleiknum. ULRICH ROTH, Schwabing, 23 ára skrifstofumaður. Fyrirliði, 65 landsleikir og 120 mörk. Línumaður. Mjög mikilvægur í vörninni en í sókninni virðist Fitzek vera að ná af honum stöðunni. RICHARD RATHA, Bergkamen, 22 ára stúdent. Nýliði, örvhent skytta fyrir utan. Hefur verið talinn efnilegasti leikmaðurinn í Þýska- landi í mörg ár en hefur ekki fram til þessa haft áhuga á að leika í landsliðinu. Einnig vantar. línumanninn Jörg Löhr frá Milbertshofen. Hann sleit liðbönd fyrir stuttu. Þjálfari liðsins er Simon Schobel og aðstoðarmaður hans er Heine Brand. - hsím Skotar náðu 24. sætinu! — jafntefli, 0-0, í HM „ Við vanmátum þá aldrei, reiknuðum með erfiðum leik og þeir börðust mjög vel. En varnar- leikur okkar var góður sem áður. Við höfum aðeins fengið á okkur fimm mörk í 10 landsleikjum en ég verð að viðurkenna að við vonuðumst eftir sigri í HM-leikn- um í Melbourne,“ sagði Alec Ferguson, landsliðsþjálfari Skota í knattspyrnunni, eftir að Ástral- ía og Skotland höfðu gert jafntefli í siðari HM-leik sínum í Mel- bourne í gær. Ekkert mark skor- að. Þar með tryggðu Skotar sér 24. og lokasætið í úrslitum HM í Mexíkó næsta sumar. Þeir sigr- uðu, 2-0, á Hampden Park í fyrri leik landanna. Betra seint en aldrei geta Skotar sagt og framan af leiknum á ólympíu- leikvanginum voru leikmenn Skota mjög taugaóstyrkir og einkum var fyrirliðinn, Graeme Souness, langt frá sínu besta á miðjunni. Kannski skiljanlegt því hann kom ekki til leiksins fyrr en á þriðjudag eftir stranga ferð frá Ítalíu. Það hefði ekki verið ósanngjamt að Ástralía skoraði tvívegis í fyrri hálfleiknum. Fyrirliðinn, John Kosmina, fékk ■leiknum við Ástralíu opið færi á 22. mín. Skallaði á mark, ótruflaður, af sex metra færi en Jim Leighton varði vel. Ef Kosmina hefði skorað þarna er ekki að vita hvað skeð hefði. Ástralska liðið ákaft hvatt af 30 þúsund áhorfendum. En við þessa markvörslu komst Leigh- ton í mikið stuð - varð ósigrandi fyrir Ástrali. Á 71. mín. varði hann mjög vel frá Zarko Odzarkov - aðeins síðar frá Patikas og var hetja Skota i leiknum. Skoska liðið náði sér aldrei á strik í leiknum. Það var ekki aðeins taugaspennan sem þjáði leikmenn þess, - þeir náðu aldrei saman. Slakt eigið gengi fór í taugarnar á Souness og hann var bókaður á 41. mín. Hann lék sinn 50. landsleik þarna í Mel- bourne. Eftir því sem leið á síðari hálfleikinn varð leikur Skota skárri og Paul McStay, Celtic, fann holur í vöm Ástrala án þess að framherjar liðsins gætu nýtt þær. En Skotar voru auðvitað ánægðir í leikslok, - þeir höfðu náð markmiði sínu. Komist í úrslitakeppnina á HM og er það í fjórða skipti í röð sem þeir gera það. Greinilegt á Ferguson þjálfara eftir leikinn að þungu fargi varafhonum létt. hsím ÍSÍ-menn á ráðstef nu Þeir Hannes Þ. Sigurðsson og Þórður Þorkelsson sóttu fyrir nokkru Evrópuráðstefnu um íþróttamál af hálfu íþróttasam- bands íslands en af hálfu mennta- málaráðuneytisins sótti Valdim- ar örnólfsson ráðstefnuna en hann er formaður íþróttanefndar ríkisins. Ráðstefnan var haldin í Cardiff í Wales dagana 30. sept- ember til 4. október og sóttu hana 89 fulltrúar frá 28þjóðlöndum. Meðal fjölmargra mála sem tekin voru til meðferðar á ráðstefnunni vom hin margumtöluðu lyfjamál. Ráðstefnan tók skýra afstöðu í þeim efnum og samþykkti einróma eftir- farandi ályktun: “ Þátttakendur á Evrópuráðstefnu um íþróttamál skora á þjóðleg og alþjóðleg íþróttasambönd svo og önnur ábyrg samtök að berjast af alefli gegn notkun örvunarefna við íþróttaiðkanir. Notkun örvunarefna er brot á öllum reglum um drengskap og öðrum grundvallarreglum íþrótta um keppni. Slík hegðan er ekki aðeins ósæmandi heldur og stórlega hættuleg heilsufari allra íþrótta- manna. Stöðugt verður að minna íþróttamenn, karla og konur, á af- leiðingar neyslu örvunarefna á heilsufar þeirra. Þeir aðilar sem sniðganga reglur um notkun örvun- arefna útiloka sig sjálfir úr heimi íþróttanna. Þetta gildir jafnt um alla iðkendur íþrótta, karla og konur, lækna, þjálfara og íþróttaleiðtoga." SK. Fitzek skorar gegn Sovétríkjunum Tschoumak, markvörður. á stórmótinu. Frá vinstri: Gagin, Fitzek, Lommel, Kuschnerjuk og Michel Renquin. Jafntefli hjá Waterschei — Renquin aftur tilStandard Frá Kristjáni Bernburg, frétUi- manni DV í Belgíu: Waterschei o" Charleroi gerðu jafntefli, 1-1, í 1. deildinni belgísku í gærkvöld í leik sem Waterschei þurfti nauðsynlega að vinna á heimavelli. Hutka skoraði mark Waterschei á 30. min. en Vossen jafnaði fyrir Charleroi á 60. mín. Eftir það fengu leikmenn Waterschei þrjú gullin tækifæri til að ná forustu á ný, draumafæri eins og belgíska útvarpið sagði en tókst ekki að skora. Ekki var minnst á Ragnar Margeirsson í útvarpinu. Belgíski landsliðsmaðurinn frægi, Michel Renquin, gerði i gær fimm ára samning við Standard Liege. Mun einnig þjálfa hjá iiðinu. Hann kemur frá Sviss, lék með Servette í Genf en lék áður fyrr með Standard. Miklar líkur eru nú á að Anderlecht láti þjálfara sinn. Paul van Himst, hætta. Mikil óánægja með hann og líkur á að hann hætti jafnvel í dag. Sem leikmaður hjá Anderlecht hlaut hann íjórum sinnum gullskóinn og var einu sinni kjörinn besti þiálfari Belgíu eftir að hann hætti að leika. Waterschei er í mikilli fallbaráttu í 1. deildinni í Belgíu. Liðið er í næstneðsta sæti með 10 stig ásamt Molenbeek. Kortrijk er neðst með 9 stig en Charleroi í fjórða neðsta sætinu með 11 stig. - hsím WBA keypti John Reilly — ogNewcastle miðherja Hull City Neðsta liðið í 1. deildinni ensku, West Bromwich Albion, keypti í gær miðherjann hávaxna, George Reilly, fyrir 150 þúsund sterlingspund frá Newcastle. Reilly. sem er 1,91 m á hæð, mun leika sinn fyrsta leik með WBA á laugardag gegn meisturum Everton. WBA hefur aðeins skorað 14 mörk í 19 leikjum í l.deild og vonast til að mörkin verði nú fleiri þegar Reilly kemur í framlínuna. í stað Reillv keypti Newcastle miðherja Hull, Billy Whiteþurst, og greiddi fyrir hann 240 þúsund sterl- ingspund. Það er aðeins 10 þúsund pundmn minna en Newcastle hefur greitt mest fyrir leikmann. Borgaði WBA 250 þúsund pund fyrir John Trewich fyrir fimm árum. - - hsím ÞrírfráReal Madrid íbami — fyrir seinni leikinn gegn Gladbach Þrír leikmenn spánska liðsins Real Madrid missa af seinni leik liðsins gegn Borussia Mönc- hengladbach i Evrópukeppni fé- lagsliða. Rafael Gordillo, Hugo Sanches og Miguel Chendo voru allir dæmdir i eins leiks bann af aganefnd UEFA. Gladbach leik- maðurinn Hans-Gunther Bruns var einnig dæmdur í bann. - fros

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.