Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Qupperneq 4
GuUinog glansandi Þægilegt rautt og svart dress. Buxurnar eru úr glans- efni og viö þær stuttur kjóll eða mussa úr glimmer- efni. Utan yfir er síður frakki úr sams konar efni og buxurnar og hann má að sjálfsögðu nota inni við. Jólakötturinn, sá gamli ógnvaldur, er sagð- ur sækjast eftir þeim sem ekki fara í ný föt á jólunum. Hvort sem fólk trúir því eða ekki þá er það venja hjá mörgum nð fá sér ný spariföt fyrir jólin sem síðan eru notuð á árshátíðirnar og þorrablótin eftir áramótin. Það er því um að gera að vera hagsýnn í innkaupum og saumaskapnum og fá sér eitt- hvaðsem nota má oftaren einu sinni og við fleiri en eitt tækifæri. Tískan er erfitt og dýrt fyrirbæri að elta og • sumirsegja að hún fari í hringi, kannski svipað ( ’ kötturinn þegarhann leikursérog revnir ao ná í skottið á sjálfum sér. Kannski er heilmikið til í þessu því nú í svartasta skammdeginu er ekki annað að sjá en gull og glimmerséu ofarlega í hugum tískukóng- anna og það erekki langtsíðan t.d. gull og silfurskór þóttu það fínasta sem hægt var að vera í. Það má sannarlega merkja áhrif frá tísku sjötta áratugarins í tískunni nú en það þýðir m.a. silfur, gull og glans. Nú eru gull- skór aftur inni, ef svo má segja, og lítið sést af lakkskónum sem voru allsráðandi í sumar og haust. Þó að tískukóngarnir séu að sjálfsögðu löngu farnir að móta sumartískuna fyrir næsta ár, þá er ennþá svart skammdegi hjá okkur og jólin, hátíð Ijóssins, nálgast óðum. Það er ekki hægt að segja annað en að klæðn- aðurinn um þessi jól komi til með að bæta við þá birtu því gull- og silfurblærinn og glansandi efni eru greinilega allsráðandi. Litadýrðin erlíka mikil og rauði liturinn er að ryðja sér inn í bleiku og fjólubláu línuna sem hefur verið svo áberandi í vetur og haust. Þessi? íitir, eins og allir aðrir, eru með en oftast eru þeir betrumbættir með glansáferð eða einhvers konar munstri. Rauði liturinn er mikið notaður með gullá- ferðinni og það má reyndar líka segja um svart en svart er samt ekki eins áberandi og oft áður í vetrartískunni, enda er litadýrðin það sem gildir. Efnin, sem notuð eru hvað mest, eru t.d. silki, fínt flauel, viscose og satín. Eins og áður sagði er áferðin oftast glansandi og fötin eru höfð frekar þröng, sérstaklega þó pilsin. Buxur eru ekki rajög Hefðbundinn klæðnað- ur fyrir herra en samt sérstakur: fjólublá skyrta með kraga og jakki í brúnum lit með giansáferð og flauels- buxur í sama stil. Við þetta er hann í þægi- legum rúskinnsskóm. áberandi en þær eru flestar frekar víðar og oft úr sams konar efnum og blússurnar. Pilsin og kjólarnir eru frekar stutt ög þá cru oft notaðar þykkar sokkabuxur með gull- eða silfurþráðum undir. Einnig má sjá skósíð pilsog kjóla. Það er ekki bara fatnaðurinn sem er gull- ogsilfursleginn heldur líka veskin, hanskarn- ir, beltin, varalitir, augnskuggar og allur andlitsfarðinn. Allt á að vera í stíl, gullslegið og glansandi frá hvirfli til ilja. Herrafatnaðurinn er nokkuð hefðbundinn en þó má líka sjá meira af flaueli, silki og satíni þar. Bindi og hálstau víkja nú fyrir lágum rúllukrögum eða þá að hálstauinu við hvítu skyrturnar er bara sleppt. Rauð jakka- föt með líningum og án bindis eru t.d. ágætis tilbreyting frá hefðbundnum, dökkum jakka- fötum með bindið reyrt upp í háls. Vitanlega er þetta samt smekksatriði eins og klæðnaður hlýtur alltaf að vera. Ný föt fyrir jólin er regla hjá sumum en aðrir nota bara það sem til er í fataskápnum og bæta kannski einhverjum smáhlutum við, eins og t.d. belti, skóm eða hönskum, til þess að fara ekki í fyrrgreinaan óvin, jólaköttinn. Það má gera heilmikið fyrir svartan kjól með því að setja á hann gullbelti og fá sér stóra gulleyrnalokka, a.m.k. gulllit- aða lokka við. Herrarnir geta t.d. sleppt bind- inu eða fengið sér rúllukragapeysu undir jakkafötin, svo eitthvað sé nefnt. Það er um að gera að láta hugmyndaflugið ráða en línan er sumsé gyllt, silfruð og glansandi og ef I einhver hefur áhuga á að eltast við slíkar línur þá fylgja hér nokkrar myndir til nánari glöggvunar. - SJ. ■.¥ *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.