Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 11
DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. 63 Út yfir gröf og dauða í Gunnlaugs sögu ormstungu segir frá því að Gunnlaugur, 12 ára, bað föður sinn, Illuga svarta, höfðingja á Gilsbakka í Hvítársíðu, um farar- eyri því hann íysti til útlanda. Illugi neitaði. strákur reiddist og fór að heiman. Hann leitaði til Þorsteins Egilssonar (Skallagrímssonar), höfð- ingja á Borg i Borgarfirði, og var með honum í einh ver misseri. Þorsteinn sá átti dótturina Helgu sem hlotið hafði viðurnefnið hin fagra. Er ekki að sökum að spvrja að með þeim tókust ástir. Þegar Gunnlaugur var 18 vetra gaf faðir hans honum leyfi til utanfarar. Fyrst vildi þó Gunnlaugur festa sér Helgu. Þorsteinn, faðir hennar, tók heldur dræmt undir það bónorð en strákur var þrár og hætti ekki íyrr en Þorsteinn lofaði að Helga skyldi vera heitmey hans í þrjá vetur, þó ekki festarmey’ Svo sem títt er um mikla garpa tafðist Gunnlaugur, sakirhetjulundarsinnar, einum vetri lengur í útlandinu. Á þriðja sumri frá utanfór Gunn- laugs bað Helgu Hrafn nokkur Önundarson frá Masfelli. Þorsteinn sagði honum að spyija aftur eftir eitt ár, hélt það væri betra að bíða aðeins lengur eftir Gunnlaugi. Að ári fékk Hrafn þau svör að ef Gunn- að þeir skryppu yfir pollinn til hóhn- göngu, hann mætti til að drepa Gunnlaug þar scm konan „nýttist" honum ekki scm skyldi sakir ástar á Gunnlaugi. í þeirri hólmgöngu féllu þeir baðir. Helga var gefin Þorkatli í Hrauns- dal en hún „varð honum líttunn- andi, því at hon verðr aldri afhuga Gunnlaugi, þótt hann væri dauðr“. Tvöfalt siðferði í Kjalnesinga þætti segir frá þvi að Kollur í Kollafii-ði átti dóttur sem hót Ólöf og var kölluð hin væna. Andríður í Brautarholti átti son sem hét Búi. Sá neitaði að blóta og ganga með vopn og var því dæmdur skóggangsmaður 12 ára gamall af Þorsteini Þorgiímssyni (Helga bjólu syni) ffá Hofi. Einhverjum ánmi síðar gerði sá stutti sér lítið fyrir og . drap Þorstein en brenndi hof það sem hann hafði til að blóta guðum sínum. Búi faldi sig síðan í helli en frændur Þorsteins drápu föður hans í hefhdarskyni. Smnarið eftir segir Esja, fósti-a Búa, honum að skip hafi komið að landi og með því stýrimaður, Öni. víkvei-skiu. Maðurinn sæti á tali við Ólöfu hina vænu hvem dag „og ætla menn at hann muni glepja hana“. viðureign en Búi fer og rænir ólöfu og flytur hana í helli sinn og eru þau þar um veturinn. Um vorið skilar Búi Ólöfu heim og skal hún bíða hans í þrjá vetur, ' svo sem siður var. Sjálfur fór hann utan frá Hrútafirði eftir að hafa drepið sex menn semveittu honum eftirför. Tveir flýðu. í Noregi afrek- aði hann m.a. að barna Fríði, dóttur Dofra konungs í Dofrafjöllum. Uppi á íslandi fæddi Ólöf dóttiu' sem Búi var faðir að. Síðan rændi Kolfiðr Ólöfu nauðugri og að óvilja föður hennar. Það er skemmst frá því að segja að þegar Búi kom aftui' til íslands drap hann Kolfinn og sagðist taka Ólöfu með sér „þar til henni býðst forlag, því at ek vil nú þó ekki elska hana, síðan Koifíðr spillti henni". Heyr mannsbana í Gísla sögu Súrssonar er sagt frá því að Þorgrímur, Gísli, Þorkell og Vésteinn ætluðu að sveijast í fóst- bræðralag. Þegar þeir takast í hend- ur hættir Þorgrimtu- við. Klofnaði kvartettinn og fóru saman Vésteinn og Gísli, en Þorkell bróðir hans fór rneð Þorgrími. ÞeirbræðurGísli og Þorkell bjuggu j)ó saman. Einhverju sinni heyrir Þorkell Ásgerði, konu sina, óg Auði', konu ok leitum okkur raðs.“ í framhaldi af þessum samræðum skilja Súrssynir félag sitt. Stuttu seirrna er Vésteinn veginn um nótt á bæ Gísla. Gísli hefhir sín um jólin með því að drepa Þorgrim goða á svipaðan hátt og flýr stuttu síðar í Geirþjófsfjörð. Þórdís, systir Gísla, hafði verið gift Þorgrími, en giftist nú Berki, bróður Þorgríms, til að eggja hann til að hefna Þorgríms; hann átti semsé að drepa bróður hennar. Áður en það tókst var Þorkell, bróðir þeirra, jiá drepinn af svein- staula sem Bergur hét og er látið að því liggja að hann sé sonur Vé- steins. Sagan segir síðan frá því hvernig Gísli verst allri aðfór lengi vel og var Auður, kona hans, jafiian með honum í útlegðinni. Þar kom |m) aðGísli vardrepinn af Eyjólfi nokkrum. Eyjólfur fer sfðan til Þórdísar og Bai'kar og lýsir víginu. Þá bregður - svo við að Þórdís reynir að drepa Eyjólf fy-rir bróðurvigið. Bóndi hennar kemur þó í veg finii' það. Segir hún þá skilið við Börk. Hann hafði jú brugðist henni. Hverjum var Guðrún verst? Varla er hægt að tala um ástir í Eftir það byrjar hin fræga þríhym- ings-ástarsaga Kjartans, Guðrúnar og Bolla. Guðrún vildi fara utan með Kjartani en hann biður hana að bíða sín heldur í þrjá vetur. Guðrún segist engu lofa um það. Það segir sig sjálft að ekki kom Kjartan til Islands að þeim tíma liðnunr. Þá biður Bolli, fóstbróðir Kjartans, henna- og segir henni hvert „orðtak manna var á um vináttu þeirra Kjartans og Ingi- bjargar konungssystur (Ólafs), ok kvað þat nær sinni ætlan, at kon- ungur myndi heldr gifta honum Ingibjörgu en láta hann lausan, ef þviværi atskipta". Þegar Kjaitan kom til Islands voru þau Guðrún og Bolli gift. Giftist Kjartansiðan Hrefhu. Ekki gat Guðrún frú sætt sig við að önnur kona ætti Kjartan og skipar Bolla að drepa hann. Þegar Bolli færist undan segist Guðiún skilja váð hann ef hann ekki láti að vilja hennar. Auðvitað drap Bolli Kjartan. Þqrgerður Egilsdóttir, móðir Kjartans, var ekki alveg sátt við þessi málalok og sendi aðra syni sína til að drepa Bolla. Þeir fongu með sér Helga Harðbeinsson, sem veitti Bolla banasárið. Gekk sá síðan til Guðrúnarsem hafði „knýtt um sik blæju" og „tók blæjuendann ok þeiraði blóð af spjótinu því inu sama. laugur kæmi ekki fyrir veturnætur skyldi brúðkaup Hrafns og Helgu haldið. Það cr skemmst frá að segja aðpunnlaugur kom ofseint. Á Alþingi sumarið eftir skoraði Gunnlaugur Hrafn þennan á hólm. Hlaut Gunnlaugur þar sár og taldi Hrafn sig þar með sigurvegara. Gunnlaugur vildi skora hann aftur á hólm en tveimur dögiun seinna vai' hólmganga bönnuð á Island. Nú voru góð rúð dýr. Þegar líða tók á sumarið heimsótti Hrafh Gunnlaug og stakk upp á því Búa líkaði illa og fer að heimsækja konuna á hverjum degi og sitja hinum megin við hana. Kolfiðr hét annar maður í þeiiri sveit og þegar hann fréttir af sam- sætinu fer hann líka að mæta hvem dag; dregur sér stól og sest fyrir firaman konuna. Gengvu' þetta svo fram eftir vetri. Þeir sátu í kringum konuna, töluðust aldrei við, en þó aldrei viö ólöfu í cinrúmi. Þar kom þó að Kolfiðr di'ap aust- manninn og skorar síðan Búa á hólm. Kolfiðr verður sár í þeirri Gísla, ræðast við. Auður brigslar Ásgerði fyrir að hafa gefið sig Vé- steini fyrir hjónaband og Ásgerður vill meina að Auður hafi gert slíkt hið sama með Þorkatli. Þorkell heyrir hvert orð sem þær mæla og segir: „Heyrundrmikit Heyrörlygi Heyrmál mikit Heyr manns bana.“ Auður tekur til orða og segir: „Oft stendr illt afkvenna hjali ok má þat vera, at hér hljótist af í verra lagi, Islendingasögum án þess að taka sögu Guðrúnar Ósvifíu-sdóttur í Laxdælu með. Fimmtán vetra var hún gefin Þorvaldi í Garpsdal. En þar sem hún var lítt hrifin af þeim ráðahag skildi hún við hann þegar hún var 17 ára. Næst giftist hún Þórði Ingunnar- syni, sem yfirgaf konu sfna, Bróka- Áuði, fyrir hana. Samför þeirra ku hafa verið góð, en Þórður þessi drukknaði af völdum galdra sem þótti ekki hetjulegur dauðdagi í þá tíð. er hann lagði Bolla í gegntun með. Guðrún leit til hans ok brosti við“. Síðan blekkti Guðrún Þorgils Hölluson til að drepa Helga; kom þessu leiðindamáli úr sínum hönd- um, þvi vinir og frændur Helga hefndu sín á Þorgils. Þegar svo allir þessir kappar voru fallnir í valinn, sættir höfðu tekist með Bollasonum og Kjartansmönnum, giflástGuðrún Þorkatli Eyjólfssyni sem drukknaði, andstætt hetjusið, við Bjamarey á Breiðafirði. - SúsannaSvavarsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.