Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 15
DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. 67 Chui þykir nóg um áganginn og sýnir reiði sina. ist vera Chui, honum til mikillar gleði. Það hafði lengi verið talið næsta ómögulegt að taka myndir af hlé- barðaynju með unga sína og sumir dýraljósmyndarar hafa sagt það erf- iðasta viðfangsefni sem þeir geti tekist á við. Scott tókst hins vegar að venja dýrin þrjú við nærveru sína og á næstu vikum tókst honum að ná einstæðum myndum. Þá skráði hann fjölmargt hjá sér um hegðan þessara tignarlegu dýra. Svo mikill var áhugi hans að hann var hjá dýrunum á jóladag 1983. Chui verðurfræg Það fór ekki hjá því að fregnin af þvi sem Scott var að gera bærist út og áður en langt um leið fóru ferða- menn að leggja leið sina á þær slóðir þar sem hann var við athuganir sín- ar. Svo fór að ágangurinn varð of mikill og sjálfur segir Scott um það að sér hafi fundist hann hafa brugð- ist trausti Chui þegar flest.var um fólkið og greinilegt var að henni líkaði ekki hve margir flykktust að henni og ungunum hennar. Ungarnir voru dálítið ólíkir í útliti og hegðan, og gaf Scott öðrum nafnið Dökkur en hinum Ljós. Ljós, var, eins og nafnið gefur til kynna, ljósari en hinn og varari um sig en hinn var ekki eins fælinn og átti það til að vera dálítið stríðinn. Chui kýs einveruna í janúar 1984 flutti Chui sig allt í einu til með unga sína. „Mig langaði mikið til að sjá þau aftur,“segir Scott, „en í hjarta mínu var ég þö glaður yfir því að dýrin voru farin. Þau voru loks orðin frjáls.'* Chui hefur ekki sést siðan og hefur þannig fært sönnur á það að of mikill ágangur leiðir til þess að þessi varfærnu dýr fara sínar eigin leiðir í orðsins fvllstu merkingu. Scott heldur hins vegar áfram athugunum sínum og myndatöku og af og til leyfir hann fréttamönnum, ljósmyndurum og öðrum að koma með sér til þess og kynnast hlébörð- unum, sem hafa nú fengið tækifæri til þess á Maraverndarsvæðinu að gleðja fólk á þann hátt sem við sjáum á meðfyigjandi myndum í stað þess að leggja því til feldi. Þýð: ÁSG The Leopt. -d’s Tale er gefin út aí'Elm Tree Books. Jóíakortin eru komin á sinn staö og jólaskrautið þekur borð og hillur. Kertamarkaðurinn hefurfestsig í sessi. Kertin eru í hundraðatali, af öllum gerðum og stærðum. VANTIÞIG HUGMYND AÐ GÓÐRIGJÖF ÞÁ FÆRÐU HANA HÉR Við nefnum sem dæmi: Vasatölvur, penna og pennasett, skjalatöskur, undirlegg úr leðri og statífá skrifborðið, hnattlíkön, margs konar þrautir og spil, Ijósálfa og töfl. GALLERÍ EYMUNDSSON er alveg sérstök deild. Þar finnur þú glæsilegt - úrval gallerímynda í vönduðum álrömmum í stærðunum 60x80 og 50x60. Takmarkað upplag af hverri einstakri mynd. Einnig eigum við geysilegi úrval mynda í smellirömmum á ótrúlegu verði. Auðvitað geturþú líka valið staka mynd og við römmum hana síðan inn fyrir þig á staðnum. NYR TIME MANAGERÍ Við höfum öll ný gögn í hið frábæra Time Manager sett. Ómissandi eign fyrir allt athafnafólk: Time Manager er til í leðri og er hreint tilvalinn fyrirþá sem vilja taka sig saman um veglega jólagjöf. OG KÓRÓNAN Á ALLT SAMAN: Sjálfur jólapáppírinn, merkispjöidir og slaufurnar frá okkur standast að sjálfsögðu allan samanburð nú sem endranær. Ekki mega blessaðir jólapakkarnir vera sviplausir. EYMUNDSSON KOMINN MEÐ JÓLASVIPINN Austurstræti 18 RITFANGADEILDIN BREYTIR UM SVIP OG VERÐUR ALLSHERJAR JÓLAMARKAÐUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.