Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 19
DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. 71 Inga Huld Hákonardóttir skrifar frá Kaupmannahöfn. það í 30 þúsund eintökum. Segið svo að Danir séu ekki ljóðelskir. Björnkjær sagði í blaðaviðtali ný- lega að mest áberandi aldurshóparn- ir á kránum væru unga fólkið, og svo aftur þeir sem komnir væru á fimm- tugsaldur, fráskildir og leituðu nú í annað sinn á hjónabandsmarkaðinn. (Eða vildu „fá sér gott í klofið'h sagði íslensk stelpa einu sinni. Það var reyndar áður en Aids kom.) „Til- burðirnir geta orðið nokkuð æðis- gengnir þegar líða fer á nóttina," sagði Björnkjær. Endað á morgunkrá Hann endar sínar skoðunarferðir gjarnan á morgunkrá í Nýhöfninni, Café Öresund eða í Nýhöfn númer 17. Morgunkrárnar opna klukkan fimm þegar næturstaðirnir loka. Ilminn af nýbökuðum rúnnstykkjum og heitu kaffi leggur á móti slæptum gestunum. Það fást líka harðsoðin egg. Sést hefur til manns sem pantaði sér þrjátíu egg og gerði alvarlega tilraun til að torga þeim öllum. Óg svo er öl og snafs og dansmúsík. Menn fá sér snúning ef heilsan levfir. En margir eru orðnir framlágir og sunnr farnir að þynnast upp. Það hefur verið fullyrt í mín eyru að annar hver næturhrafn, sem enn er á ferli á þessum tíma sólarhrings, sé af íslensku bergi brotinn, en ekki sel ég það dýrar en ég keypti. Held það hljóti að vera eitthvað orðum aukið. Vona það hálfpartinn. Því þótt það sé hressandi að koma úr reykjarsvælu krárinnar út í kalt. grátt morgunloftið og möstrin á gömlu skútunum í Nýhöfninni ruggi sér vinalega í takt við göngulag þess sem drukkið hefur alla nóttina, þá hefur margur framtíðardraumurinn, mörg glæst áætlunin og margur efn- ismaðurinn og -konan farið fyrir lítið á ranglinu eftir - Dauðarútunni. - ihh NALGAST MATVÖRUDEILD Þaö er löngu orðinn þjóölegur siöur aö gera vel viö sig og sína í mat um hátíðarnar. Við höfum á boð- stólum alla matvöru, hátíðarmat sem meðlæti. Og vitaskuld alla hreinlætisvöru. Sem sagt: Allt sem til þarf. og því er ekki seínna vænna að fara að huga að jólatindirbún- ingnum. Við erum reiðubúin tíl aðstoðar. Viljum aðeins rninna á að það er óþarft að þeytast urn alít þegar hægt er að fá alit til jólanna í eínni ferð í Vöruhús Vesturlands. VEFNAÐARVÖRUDEILD Jólakötturinn gengur ekki laus lengur. Og þó svo væri þyrfti enginn að lenda í honum því við eigum fjölbreytt úrval fatnaðar á alla fjöl- skylduna. Til dæmis buxur og _ skyrtur frá Melka. Einnig skóáalla fjölskylduna. í stuttu máli sagt: Allan fatnað, frá toppi til táar, yst sem innst. GJAFAVÖRUDEILD Láttu ekki tal um gjafaaustur jól- anna slá þig út af laginu. Það er góður siður að gleðja aðra. Líttu inn í gjafavörudeildina hjá okkur og þú sannfærist um að jólagjafir eiga fullan rétt á sér. Við eigum ávallt smekklegt úrval gjafavöru, s.s. bækur, leikföng, búsáhöld o.fl. RAFTÆKJA- OG SPORTVÖRUDEILD Hafi einhver haldið að gjafavara fengist aðeins í gjafavörudeildinni leiðréttist það hér með. í sportvöru- og raftækjadeild fæst fjölbreytt úrval raftækja og tómstundavöru. Nyt- samar jólagjafir, smáar og stórar. Og hér velur fjölskyldan sjálfri sér stór- gjöfina. BYGGINGAVÖRUDEILD Það eru ekki bara húsbyggjend- ur sem eiga erindi við okkur. byggingavörudeild Vöruhúss Vest urlands sást sjálfur jólasveinninn velja sér 1. flokks áhöld til leik- fangasmíðinnar. Þannig tekur bygg- ingavörudeildin ekki hvað minnstan þátt í jólaundirbúningnum. Góð áhöld gleðja alla. Það er óneitanlega kostur að fá allt sem þarf í einni ferð. Ferð í Vöruhús Vesturlands sparar sporin og er þess vegna ferð til fjár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.