Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1985, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1985, Page 3
DV. LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985. 3 Borgarráð: VEini GREIÐA- BÍLUM LEYFI TILEINS ÁRS „Við sóttum um framlengingu á starfsleyfí sem var tekið fyrir á borg- arráðsfundi í annað sinn í gær. 1 fyrra skiptið 13. desember sl. var bókað að borgarráð treysti sér ekki til að framlengja leyflð um eitt ár. Bókunin var ekki samþykkt á síðasta borgarstjórnarfundi en málinu vísað aftur til borgarráðs. I gær var málið tekið fyrir aftur í borgarráði og leyfið veitttil eins árs.“ Þetta sagði framkvæmdastjóri Greiðabíla á Steindórsplani, Guð- mundur Ásmundsson, í samtali við DV í gær. Framkvæmdastjórinn sagði að Greiðamenn væru mjög bjartsýnir enda hefur starfsemi þeirra gengið mjög vel. Afkoma sjö- tíu fjölskvldna hefði verið í hættu ef framlenging á starfsleyfmu hefði ekki fengist. „Við sjáum mikinn árangur af okkar starfí. Þjónusta okkar hefur mælst afskaplega vel fyrir,“ sagði Guðmundur. Hann sagði að allar líkur væru á því að þeir þyrftu strax á næsta ári að leita að annarri að- stöðu „við erum að sprengja allt utan afokkurhér“. Eins og menn eflaust rekur minni til stóð mikill styr um Steindórsstöð- ina í fyrra og leigubílaakstur var lagður niður á stöðinni en greiða- þjónustan tekin upp í staðinn. Mikill ágreiningur var á milli leigubifreiða- stjóra af öðrum stöðvum og enn telja 'menn að einhver „ skæruhernaður" sé í gangi. í púströr bílanna á Stein- dórsplaninu hefur oft verið sprautað kvcðu, de!:k hafa verið sprengd, lími spr: utað í læsingar stöðvarhúss og bíla og sitthvað fleira hefur angrað greiðabílstjórana að undanförnu. En framlenging á starfsleyfi fékkst í gær og verður að líkindum sam- þykkt á næsta borgarstjórnarfundi 2.janúar. -j>G INGÓLFUR SELUR FLUGELDA Björgunarsveitin Ingólfur, sem hingað til hefur aðeins verið með flugeldasölu fyrir félaga sveitarinn- ar, verður nú með almenna flugelda- sölu á tveim stöðum i bænum: í Gróubúð á Grandanum og á Lauga- vegi þar sem selt verður úr snjóbíl. Megnið af vörum Ingólfs er flutt inn frá Noregi en einnig er talsverð- ur hluti frá björgunarsveitinni Fiskakletti í Hafnarfirði. Sem dæmi um verð má nefna að fjölskyldupakk- ar eru á kr. 950 og 2200. Ekiðákonu Ekið var á konu á móts við Lækjar- götu 6 um miðjan dag í gær. Var konan flutt á slysadeild, en meiðslin reyndust minniháttar. -KÞ Leiðrétting Sá misskilningur slæddist inn í flugeldablaðið að björgunarsveitirn- ar fjórar: Fiskaklettur, Þorbjörn, Sigurjón og Kyndill stæðu saman að flugeldasölu. Hið rétta er að þær standa saman að innflutningi flug- elda en smásalan er aðskilin. Fiska- klettur er ein þessara sveita með flugeldasölu í Hafnarfirði og Kyndill er aðeins með sölu í Mosfellssveit, Þorbjörn í Grindavík og Sigurvon í Sandgerði. SNJÓFLÓÐK) Á SEYÐISFIRÐI: ÁSTANDIÐ í FIÖR- UNNIER ÓFAGURT „Það ér alveg ljóst að það er ekki glæsilegt um að litast í fjörunni þarna. En við erum heppnir að því leyti að alla olíuna hefur rekið í suður, inn í höfnina. Það voru um 400 tonn sem fóru í sjóinn og nú er unnið á fuilu við að hreinsa það upp. Hins vegar er ljóst að það tekur töluverðan tíma að ná olíunni upp og óvist er hve vel það gengur, tíminn einn verður að leiða það i ljós.“ Þetta sagði Þorvaldur Jóhannes- son, bæjarstjóri á Seyðisfirði, í sam- tali við.DV í gær. Aðspurður hvort örýggisráðstafan- ir hefðu verið vanræktar sagði Þor- valdur: „Það er ljóst að það hefði átt að vera búið að gera eitthvað varð- andi þessa tanka. En það er eins og menn læri ekkert fyrr en óhöppin eiga sér stað. Svo er þetta líka spurn- ing um tíma og forgangsröð. Þarna hafa fallið snjóflóð áður svo það var ljóst að þetta var hættusvæði. Hins vegar áttu menn ekki von á snjóflóði núna.“ Ekki vissi Þorvaldur hvernig stað- ið yrði að bótamálum, taldi hann að það væri tryggingamál. „Það er hins vegar ljóst að margt í þessu máli verður seint bætfc Þetta bætir t.d. ekki fuglalíf í firðinum þó það ráðist auðvitað af því hvernig til tekst með hreinsun i firðinum. Tíminn verður að leiða það í ljós hvaða áhrif þetta hefur," sagði Þorvaldur. 1 samtali við Þórð Ásgeirsson, for- stjóra Olíuverslunar Islands, kom fram að þeir hjá Olíuversluninni vissu af skýrslunni sem siglinga- málastjóri vitnar til. „Það var hins vegar ekki hægt að gera allar þær endurbætur sem þar voru lagðar til í einu. Þetta verður að gera smátt og smátt og því miður var ekki komið að þessum tanki,“ sagði Þórður. væri hugsað um það eitt að ná ol- Ekki sagðist Þórður vita hvernig íunni upp sem fyrst. -SMJ tjónið af þessu slysí yrði greitt, nú Var um vanrækslu að ræða? Þannig var umhorfs á vígvellinum i flugafgreiðslunni á flugvellinum í Vínarborg þegar hildarleiknum lauk. Jólatréð til hægri á myndinni fór ekki varhluta af bardaganum á þriðja degi mestu friðarhátíðar kristinna manna. ^ HRYDJUVERK A ÞRIDJA DEGIJÓLA Farþegar voru að gefa sig fram við afgreiðslulúgu E1 A1 í Fiumic- ino-flughöfninni í Róm vegna flugs til Tel Aviv. Biðröð var við næstu lúgu hjá TWA og þröng var við næsta bar þegar hryðju"erkamenn hófu árás kl. 9.15 að staðartíma í gærmorgun með því að varpa handsprengju að ísraelsku af- greiðslunni. Harðurbardagi Flugvallarlögreglan brá við strax og starfsmenn E1 A1 gripu einnig til vopna en hryðjuverkamennirnir létu rigna yfir þá kúlnahríð úr Kalashnikov-hríðskotarifflum. Sló í harðan bardaga milli hryðju- verkamannanna fimm og flugvall- arlögreglunnar. Þrír hryðjuverkamannanna, sem lögreglan segir að hafi haft á sér yfirbragð manna frá Austurlöndum nær, féllu í skothriðinni i brott- fararsalnum í Fiumicino-flughöfn- inni. Hinir tveir særðust báðir og voru handteknir. „Afgreiðslumaðurinn var að kveðja mig með handabandi þegar ein kúlan hæfði hann en hann brá upp skammbyssu og hóf strax að skjóta á móti,“ sagði ítalskur ferða- maður sem ætlaði með Tel Aviv- fluginu. Hryðjuverkamennirnir vörpuðu ítalskur lögreglumaður á Róm- arflugvelli sést hér á myndinni handsama einn hryðjuverka- mannanna sem sagðir eru arabískir. handsprengjum að öryggisvörðun- um en þessum hildarleik lauk samt með því að réttvísin fór með sigur af hólmi, en æði blóðugan þó. Fjórtán létu lífið og 75 særðust. Önnur árás á Vínarflugvelli Samtímis þessum atburði gerðu tveir arabískir hryðjuverkamenn árás á afgreiðslu flugfélagsins E1 A1 í Vínarborg í gærmorgun með sama hætti, vörpuðu handsprengj- um að viðstöddum farþegum, starfsfólki og öryggisvörðum og skutu af hríðskotarifflum. Drápu þeir tvo og særðu þrjátíu. I allri ringulreiðinni i Schwec- hat-flughöfninni komust hryðju- verkamennirnir undan og út í bif- reið þar sem þriðji maðurinn beið þeirra. Hófst mikill eltingarleikur þar sem arabarnir vörpuðu hand- sprengjum og skutu að lögreglubíl- unum en voru þó króaðir af og yfirbugaðir. Einn þeirra var drep- inn og tveir særðust alvarlega. -GP í viðtali við Magnús Jóhannesson siglingamálastjóra kom fram að það hafði verið bent á snjóflóðahættu þar sem snjóflóðið féll. „Við hjá Sigl- ingamálastofnun gerðum á sinum tíma úttekt á öllum olíubirgðageym- um á Austurlandi. Var þetta árið 1976 og voru þá jafnframt gerðar tillögur til úrbóta. Hins vegar var ekki hægt að krefjast þess að úr- bætur væru gerðar fyrr en reglugerð þar að lútandi var gerð 1982 og gilti hún aðeins um geyma sem voru settir upp eftir það. Ég get ekki lagt mat á það hvort hér hafi verið um van- rækslu að ræða en það var búið að benda á að geymarnir væru á snjó- flóðasvæði og það var lagt til að þeir væru færðir. Einnig var lagt til að fleiri geymar á Seyðisfirði væru færðir en ég hef grun um að það hafi ekki verið gert.“ - En hver greiðir kostnað af hreinsuninni og því tjóni sem meng- unin veldur? „Mengunarvaldur greiðir kostnað í svona málum. Að þessu sinni er mengunarvaldurinn annaðhvort verksmiðjan eða Olíuverslunin. Það er ljóst að það er ófyrirsjáanlegur kostnaður af þessu slysi,“ sagði t' Magnús. -SMJ. „Erfittað segja til um tjónið „Það er erfitt að segja hve mikið tjónið er. Það er hins vegar ljóst að allar fjörur hér eru útataðar og höfn- in er full af svartolíu. T.d. eru trillur hér í höfninni ataðar í svartoliu." Þetta kom frarn í samtali við The- odór Blöndal, verksmiðjustjóra loðnuverksmiðju ísbjarnarins á Seyðisfirði. Varðandi ummæli siglingamála- stjóra um að það hefði verið varað við snjóflóðahættu þarna fyrir löngu sagði Theodór: „Það er alltaf hægt að segja svona eftir að slysin hafa gerst. Það er alveg staðreynd að tankurinn og staðsetning hans var ekki eftir ströngustu kröfum enda er þetta gamall tankur. Ég hafði ekki heyrt um þetta áður en ég kannast við þessa skýrslu sem siglingamála- stjóri er að vitna í. Annars er þessi tankur í eigu Olíuverslunar Islands og þjóna þeir honum algerlega. við kaupum aðeins olíu af þeim. Þetta tjón út af fyrir sig er verksmiðjunni óviðk.omandi.“ Þess má geta að öll verksmiðjan er á snjóflóðasvæði. -SMJ. Eyðmveiran breiðist út á íslandi Um 300 sýni vegna eyðni hafa verió tekin til greiningar á Landspitalanum. Þá eru ótalin þau sýni sem berast frá Blóð- bankanum en blóð allra blóð- gjafa er skoðað. Fjöldi smitaðra er ekki lengur 10. Fleiri hafa bæst í hópinn og miklar likur á því að sjúkdómur- inn eigi eftir að breiðast hér út og fylgja svipaðri þróun og ann- ars staðar i Evrópu, að sögn Sigurðar Guðmundssonar smit- sjúkdómalæknis. Mikið annriki er því hjá þeim sem vinna við greinigu á eyðni- sýnum. Unnið er nótt og dag. Áðstaðan á Borgarspítalanum er mjög léleg eins og er. Kaupin á Vörumarkaðshúsinu eru því góðar fregnir að sögn Sigurðar. -KB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.