Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1985, Page 6
6
DV. LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985.
Greifinn af Monte Christo
Salatborð í
gamla bcenum
Bixinu við göngukafla Lauga-
vegs hefur farið fram, síðan það
varð að Greifanum frá Monte
Christo. Samt hefur verðlagið
haldizt óbreytt, enda var það of
hátt fyrir. Bezti kostur staðarins
er, að þangað er hægt að skjótast
í súpu með brauði og salatborð með
eftirréttum fyrir 290 krónur, ekki
aðeins í hádeginu, heldur einnig á
kvöldin.
Utlit staðarins hefur lítið breytzt.
Hann er orðinn notalegri, án þess
að ég geti fest hendur á orsökunum.
Andrúmsloftið er fremur suðrænt.
Veggir eru ljósir og þar hanga
eldhúsáhöld, aðallega koparpönr,-
ur, svo og körfur, þurrkaðar jurtir
og hvítlaukur. Myndir af við-
skiptavinum veitingahúsa eru
blásnar í gler meðfram inngangi
og í gluggunuhi út að götu.
Viðskipti
í síma
Fremur rúmt er um gesti í 44
gylltum stálstólum með tágasetum
við bleikdúkuð borð, þar sem logar
á kertum og munnþurrkur eru úr
pappír. í lofti eru vængjaviftur og
á gólfi teppi. Innst er snyrtilegur
bar eða skenkur og þar til hliðar
setukrókur. Á miðju gólfi er svo
salatborðið. Að tjaldabaki er nið-
ursoðin tónlist, fremur hávær.
Yfir borðum hanga tágakrónur,
nema fornfáleg Ijósakróna yfir
setukróknum. Þar sátu gjarna
vinir hússins og stunduðu viðskipti
gegnum síma. Ekki fer eiiis illa á
því í Greifanum og í Sombrero, því
að þar gerðist það í miðjum sal, en
hér úti í horni.
Þetta er frekar afslappaður eða
slakaður staður. Gestum finnst
jafnvel, að þeir fengju að sitja í
setukróknum og stunda viðskipti í
síma, ef þar væri rúm fyrir fleiri.
Þjónusta er ágæt, færir gestum
stundum óumbeðið ísvatn á borð
og man stundum, hver. pantaði
hvað. Og fumlaus er hún sem skó-
luð væri.
Greifinn er einn þeirra staða, sem
fer illa að vera tómur og vel að
vera fullur af gestum. Mannmergð
samsvarar suðrænu útliti staðar-
ins. Þá vantar eiginlega ekkert
nema Miðjarðarhafseldhús til að
fá dæmið til að ganga upp. En því
er ekki til að dreifa. Eldamennskan
er afar lítið spennandi.
n
Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og blóm fyrir umhvurfi og þjónustu, en krónupeningarnir tákna verðlagið.
Jónas Kristjánsson
skrifar um
veitingahús
Gersamlega
hugmyndasnauöur
Fastaseðillinn er gersamlega
hugmyndasnauður, hinn dæmi-
gerði matseðill íslenzkra veitinga-
húsa. Hann skiptist að jöfnu milli
fisk- og kjötrétta. Auk forrétta,
aðalrétta og eftirrétta er boðið upp
á ýmsa smárétti og barnarétti.
Ennfremur tvenns konar fondue,
bæði kjöts og osta. Skemmtilegasti
titillinn á seðlinum er „Steik Gor-
don Blue“, sem líklega á að tákna
Cordon Bleu nautasteik.
Vínlistinn sýnir örlítið meiri til-
þrif en almennt gerist, hýður í
rauðvínum upp á Chateau Cant-
enac Brown og Santa Christina og
í hvítvínum Riesling Hugel,
BernkastelerSchlossberg og Hoch-
heimer Daubhaus. Þótt við bætist
Tio Pepe er þetta samt lítið í sam-
anhurði við það, sem hægt væri að
hafa, svo sem ég hef rakið á öðrum
stað.
I hádeginu var boðið upp á tvo
rétti dagsins, að súpu og salatborði
inniföldu. Súpan var rjómalöguð
rósa- kálssúpa sæmileg. Pönnus-
teikt rauðspretta var ágæt, mildi-
lega elduð, borin fram með óþörfum
dósakræklingi, hvítum kartöflum
og smjöri, sem blessunarlega var
haft í sérstakri skál til hliðar.
Á salatborðinu voru tvenns kon-
ar flautur, heilhveiti- og ostabrauð.
Ennfremur fimmtán skálar með
tvenns konar sósu, þreytulegum
sveppum, möskuðum eggjum, tóm-
ati, gúrku og sýrðri gúrku, papriku,
maís, blaðlauk og kotasælu, svo og
blönduðu hrásalati. Ennfremur
voru þar appelsínubátar, melónu-
Hádegismatseöill
•'C3 1 3§: I f'
42J Nau/asmásteik meb raubvínssósu
3JJ Pönnusteikf raubspretta meb kraikHngi
Súpa og salatbarfylgir
290 S/ípa og salatbar
Fastaseöill
190 Rjómalögub bumarsúpa
27J Ra'kjnk-okteil/ meb hvítvinssósu og ristubu braubi
160 Frönsk lauksúpa
2J0 Gratinerabir krœkJingar í hvítvínssósu
320 irivitlauksristabir sniglar meb hvítlauksbraubi
39J Pönnusteiktýsa meb mkjum og krceklingi
JIO Gufusobin smálúba meb bvítvínssósu
46J Pónnusteiktur skötuselur meb hrísgrjónum og karrísósu
v 49J Gratinerabir sjávarrétiir meb ristubu braubi
jlO SHdarbakki meb rúgbraubi og hvítum kartöf/um
890 Hvítláuksristabur humar
68/ Pónnusteiktar svínakótekttur meb grábostasósu
J9J Steik Gordon B/ue meo smjórsteiktum kartöflum
620 luimbasteik Monte Christo með bearnaise-sósu
690 Enskt buffmeb /auk oghvítum kartöflum
790 Piparsteik ab hattigreifans meb bakabri kartöf/u
210 Súkkuláðihjúpabur ananas meb rjóma
180 1 'anilluís meö rjóma, súkkulaðisósu og ískexi
2J0 B/andaðir ávextir með Gra/td Marnier og rjóma
297 Djúpsteiktur camembert með rifsberjasósu
27J Kaviar með lauk og eggjaraubu
J20 Bufj tartar meb eggjaraubu, lauk og kapers
}20 Djúpsteiktar rœkjur með ristuðu braúbi
29O E.ggjakaka meb rœkjum og spergli eba skinku og sveppum
9jo Kjótfondue ( minnst fyrir tvo)
JJ0 Ostafondue
200 v Hamborgari eba samloka ebagri/labar pylsur meðfrónskum
bitar og vínber, sem kjörið var að
nota til eftirréttar.
Þetta salatborð er svo sem ekki
fallégra eða betra en gengur og
gerist á stöðum, sem bjóða slíkt og
er alls ekki í fremsta flokki. Eigi
að síður er það alfa og ómega stað-
arins. Ekki má heldur gleyma, að
það er hið eina slíka í gamla mið-
bænum. Ég man að minnsta kosti
ekki eftir öðru.
Rækjukokteill var góður, borinn
fram með mildri hvítvínssósu, sítr-
ónu og ristuðu brauði með smjöri
í álpappír. Eggjakaka með svepp-
um var fremur þurr. Humarsúpa
var vel rjómuð og með miklu aí
þeyttum rjóma ofan á, en humar-
bitarnir voru of þurrir.
Staðlað
meðlæti
Kræklingur var borinn fram heit-
ur undir gífurlegu magni af sósu
með skán og með ristuðu brauði
brenndu. Meðlætið var hinn sami
„garnitúr“, sem fylgdi öllum for-
réttum og aðalréttum staðarins,
tómatsneið, tvær gúrkusneiðar,
sítrónusneið og salatblað. Krækl-
ingur er betri upp úr dósinni en
gratineraður á þennan hátt.
Pönnusteiktur skötuselur var
ágætur, vel kryddaður, borinn fram
með rækjublönduðum hrísgrjónum
og mjög sterkri karrísósu. Gufu-
soðin smálúða var stórum lakari,
afar þurr, borin fram upprúlluð í
fylgd með hvítvínssósu og kartöfl-
um. Hún var prófuð tvisvar og
reyndist ofelduð í bæði skiptin.
Lambasteik Monte Christo var
næstum hæfilega snöggt elduð og
sæmilega meyr. Henni fylgdu miðl-
ungi soðnar gulrætur og rósakál,
svo og bökuð kartafla og frambæri-
leg bearnaise-sósa. Enn betri var
pipar- steik, hæfilega hrásteikt, en
henni var spillt með afar sterkri
og ekki góðri piparsósu og gassa-
lega elduðu brokkáli og sveppum.
Kaffi var sæmilegt, þótt í þynnra
lagi væri, borið fram með áfengu
konfekti og innifalið í verðinu.
Súpa, salat og eftirréttur kosta
290 krónur sem fyrr segir. Miðju-
verð rétta dagsins í hádeginu er 390
krónur, að súpu, salati og eftirrétti
inniföldu. Á fastaseðli er miðjuverð
þriggja rétta máltíðar með kaffi og
hálfri flösku af víni á mann 1258
krónur. Það er dæmigert meðal-
verð íslenzkra veitingahúsa.
Jónas Kristjánsson
OPIÐ TIL KL. 41 DAG
,r N/erB'! o
^a^ð.nbe8,
/A A ▲ A ▲ ▲
V/SA
Jlg
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sífni 10600