Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1985, Blaðsíða 7
DV. LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985.
7
Rokkspildan_________Rokkspildan_________Rokkspiidan
„Þeir syngja rokkið í réttunum . .Stórhljómsveit Bubba Morthens flytur Rokkkalypsó Hauks
frænda.
DV-mynd Gunnar Bender.
Þjórað undir Borg-
artónlist Bubba
á Þorláksmessu
Borgin iðaði af lffi á Þorláks-
messu eins og venja er til á þeim
degi. En eftir því sem leið á kvöldið
fór fólkinu fækkandi. Sumir drifu
sig heim að pakka jólagjöfum, aðrir
settust inn á sal hótelsins við
Austurvöll. A lokunartíma versl-
ananna klukkan ellefu höfðu verið
auglýstir tónleikar, og það engir
minni háttar tónleikar: Bubbi
Morthens ásamt stórhljómsveit,
gjörið svo vel.
„Djamm-sessjón“
Á slaginu ellefu steig mannskap-
urinn á svið. Bubbi tók kassagítar-
inn, Kormákur settist við sneril-
trommuna, Björgúlfur handlék
bassann, Sigurgeir rafgítarinn,
Jens saxófóninn og aldursforset-
inn, Guðmundur Ingólfsson, settist
við hljómborðið. Bubbi bauð gott
kvöld og sagði fullum sal að spilirí-
ið kæmi til með að vera hálfgerð
„djamm-sessjón“. Engin örvænting
greip um sig í áhorfendaskaranum
þrátt fyrir það.
Það höfðu nefnilega ýmsar lýs-
ingar verið gefnar á efnisskránni
þetta kvöld. Tónlistin hafði verið
sögð frá stríðsárunum, jafnvel
eldri. Með þetta í huga setti maður
sig í þægilegar stellingar og var
við öllu búinn. Samt komu þeir
félagar mér, og örugglega flestum
öðrum, í opna skjöldu.
Samtíningur og sitthvað
Erfiðast finnst mér að reyna áð
lýsa tónlistinni í einu orði. Líkleg-
ast er það ekki hægt.
Þarna ægði öllu saman: swing,
blues, bítlarokki og amerískri
kántrítónlist brá jafnvel fyrir. Öll-
um reglum um framsetningu þess-
arar tónlistar var varpað fyrir róða.
Bassinn, tromman og gítarinn hans
Bubba mynduðu traustan grunn,
síðan skiptust Sigurgeir, Guð-
mundur og Jens á að taka sóló.
Oftar en einu sinni tóku þeir allir
rispu í sama laginu. Lag, sem
kannski hafði byrjað sem bítlaslag-
ari, endaði í hörku swingi!
Bubbi stjórnaði bandinu eins og
herforingi, gaf mönnum grænt ljós
í sóló og ákvað hvenær lögin end-
uðu. Hann söng sjálfur eins og
engill og var ekki í minnstu vand-
ræðum með að ná upp stemmningu
í salnum, tók ásamt hljómsveitinni
ísbjarnarblúsinn, Libba dóna og
fleiri gömul, góð í einum rykk og
söng í milli, „Yeeeeei...“. Yeeeeei
bergmálaði salurinn og menn og
konur réðu sér ekki fyrir kæti.
Guðmundur
axlar harmóníkuna
Það var á slíkum stundum sem
fólk rankaði við sér og var vel með
á nótunum. Það var ekki laust við
að sumir væru hálfhvumsa yfir
samtíningnum s.em Bubbi bar fyrir
þá.
Bubbi virtist vera sér meðvitandi
um þetta því brátt fóru allir nema
hann, Guðmundur og Björgúlfur í
pásu. Um leið og Guðmundur axl-
aði harmóníkuna vissu allir hvað
var í aðsigi. Ljúfir upphafstónar
Paranounar liðu um salinn og allir
tóku kröftuglega undir. Slík var
stemmningin að það lá við að
manni vöknaði um augu. Lagið er
með því betra sem Bubbi hefur
samið og hefur þó margt gott komið
úr þeirri átt.
Leynigesturinn gleymdist
Bubbi tók nokkur gömul og góð
til viðbótar og gestir, sem nú gerð-
ust æ ölvaðri, sönnuðu fyrir sér og
öðrum að þeir kynnu textana.
„Þessu hlýtur að fara að ljúka,"
sagði ég dasaður við Guddu systur.
Mannfjöldinn gerði sig líklegan til
að ýta fremstu borðunum alla leið
upp að sviðinu. í fimmta sinn bað
ég kallinn, sem stóð fyrir aftan
mig, um að reyna nú að drekka það
sem hann væri með í glasinu.
Taumarnir voru farnir að renna
niðUr eftir hálsinum á mér.
En í annað sinn þetta.kvöld var
mér komið á óvart. Eða var þetta
viljandi gert? „Magnús Þór Jóns-
son, MEGAS“ tilkynnti Bubbi: ég
hafði gleymt leynigestinum! Ann-
ars er -það einkenni góðra leyni-
gesta að leynast sem lengst, og
Megas blés í mig nýju lífi.
Rokkkalypsó a la Haukur
Megas virðist hafa sérstakt dá-
læti á gömlum dægurlögum um
þessar mundir. Fyrsta lagið var
sótt í smiðjuna hans Hauks sem,
eins og flestir vita, er frændi
Bubba. Rokkkalypsó var tekið með
áhlaupi: „Þeir dansa rokkið í rétt-
unum. La, la, la, la,...“
Það var bókstaflega allt að verða
vitlaust og ekki hjaðnaði stemmn-
ingin þegar Dísa í dalakofanum
fylgdi í kjölfarið.
Það lag reyndist í lengra lagi og
þegar hér var komið sögu virtist
allt vera að fara úr böndunum.
Fólk var orðið ofurölvi og lét öllum
illum látum. Frakkagrey, sem sat
við sama borð og ég, vissi ekki
hvaðan á sig stóð veðrið, en ég
skildi hvað klukkan sló enda inn-
fæddur. Ég fór að tygja mig og
klukkan var kortér yfir eitt þegar
ég gekk út í upphaf aðfangadags-
ins.
Þunnur, þynnri, þynnstur
Ef á heildina er litið var þetta
mjög skemmtilegt og ekki síst líf-
legt Þorláksmessukvöld.
Bubbi hefur aldrei verið betri og
sýndi og sannaði að hann er en'n í
fremstu röð í íslenskri popptónlist.
Það er hreint ótrúlegt hvað Bubbi
hefur afrekað og hann er óhræddur
við að reyna eitthvað nýtt. Það
verður spennandi að sjá afrakstur-
inn af upptökunum í Svíþjóð.
En fleiri létu ljós sitt skína þetta
kvöld. Sigurgeir var traustur á
gítarnum og Guðmundur tók sóló
á hljómborðið eftir pöntunum.
Bjartast skein þó Jens Hansson á
saxófónana þrjá feikilega
skemmtilegur spilari sem vex ás-
megin með hverjum tónleikum.
Það sem hins vegar spillti þessari
frábæru skemmtun var ölvunin.
Það'er í góðu lagi að fá sér létt í
glas eftir búðarápið - en að drekka
sig á skallann svona rétt fyrir jólin
finnst mér heldur dapurt. Annars
nenni ég ekki að vera að tuða um
svona nokkuð. Fólk verður bara
að eiga þynnkuna-yfir jólasteikinni
viðsjálftsig.
GLEÐILEGT NÆSTA ÁR!
-ÞJV
Jólatrésskemmtun
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur
jólatrésskemmtun að Hótel Sögu, Súlnasal,
föstudaginn 3. janúar 1986 kl. 15.00.
Aðgöngumiðar verða seldir á skrifstofu félagsins á
8. hæð Húss verzlunarinnar á skrifstofutíma. Miða-
verð 300 kr. fyrir börn og 175 kr. fyrir fullorðna.
Miðarverða ekki afhentir við innganginn.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Happdrætti Styrktar-
félags vangefinna 1986
Vinningsnúmer:
1. vinningur, Subaru station 1800 GL, 4 wd 1986,
nr. 69008.
2. vinningur, Mada 323 Saloon, 4ra dyra, nr. 66947.
3. vinningur, bifreið að eigin vali að upphæð kr.
340 þús., nr. 52778.
4. -10. vinningur, húsbúnaður að eigin vali, hver að
upphæð kr. 1 50 þús. nr. 7404, 7522, 25264, 40645,
45341,51503,75639.
Styrktarfélag vangefinna.
BRAUTARHOLTI 33 - SÍMI: 6212 40
MMC Pajero dísil árg. 1985,
ekinn 35.000 km. Verð kr.
980.000,-
MMC Lancer GLX árg. 1984,
ekinn 26.000 km. Verð kr.
360.000,-
VW Goll árg. 1983, 4ra dyra,
ekinn 64.000 km. Verð kr.
340.000,-
Mazda 626 árg. 1981, ekinn
69.000 km. Verð kr. 290.000,-
Daihatsu Charade árg. 1983,
ekinn 43.000 km. Verð kr.
290.000,-
Range Rover arg. 1982, ekinn
87.000 km. Verð kr. 950.000,-
Mikið urval nýlegra
bíla á staðnum.
RUMGOÐUR SYNINGARSALUR
— REYNDIR SÖLUMENN —
OPIÐ:
Mánud.—föstud.kl. 9.00—19.00.
Laugard. kl. 10.00—19.00.