Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Page 1
DAGBLAÐIЗVISIR
5. TBL. -76. og 12. ÁRG. - ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1 986.
Forsætisráðherra um brottvikningu framkvæmdastjóra Lánasjóðsins:
Sverrir braut lög
—en bauð fyrst Sigurjóni árslaun efhann segði upp sjálfur
„Það er ekki gott fordæmi að ganga
gegn lögum,“ sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra í
morgun um brottvikningu fram-
kvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra
námsmanna. Braut Sverrir Her-
mannsson menntamálaráðherra þá
lög? „Það segir um réttindi og
skyldur opinberra starfsmanna að
sé maður sakaður um vanrækslu
skuli hann fá áminningu og fyrir-
mæli um úrbætur. Sinni hann þeim
ekki getur fyrst komið til brott-
vikningar. Það stefnir því í mála-
ferli og skaðabætur út af þeim
aðgerðum sem við erum að tala
um,“ sagði forsætisráðherra.
Bréf starfsfólks Lánasjóðsins til
hans um að athuga embættisfærslu
menntamálaráðherra í málinu
verður lagt fyrir ríkisstjórnina í
dag. Þar fer það i salt þangað til
Sverrir Hermannsson kemur heim
úr utanlandsferð, í næstu viku. „Eg
er persónulega þeirrar skoðunar
að það þurfí að taka til hendinni í
sjóðnum," sagði Steingrímur í
morgun, „en það eru til ýmsar leið-
ir í því“. Varst þú þá ósammála
aðgerðum Sverris? „Eg greini ekki
frá ríkisstjórnarfundum en það eru
til ýmsar leiðir, sumar mildari en
aðrar."
Þessi orð hljóta að þýða að þú
hafir verið ósammála? „Ja, það
voru mjög skiptar skoðanir í ríkis-
stjórninni þegar Sverrir kynnti
þetta mál þar ítarlega, ég get sagt
það. Og ráðherra verður að gæta
þess áð fara að lögum. Sverrir taldi
málið hins vegar svo stórt og svo
brýnt að taka á því að hann sagðist
ekki breyta ákvörðun sinni.“
Tíminn segir i morgun „vitað að
einhverjir þingmenn Framsóknar-
flokksins muni ekki taka því þegj-
andi að ráðherra skuli nota vald
sitt“ eins og Sverrir gerði. Ertu
sammála? „Já, og veit að það á eftir
að verða mikið fjaðrafok út af
þessumáli."
Er það rétt að Sverrir hafi boðið
Sigurjóni Valdimarssyni árslaun
ef hann vildi segja upp sjálfur? ..Já,
það er rétt,“ sagði forsætisráðherra
i morgun.
-HERB
Landsmenn kvöddu jólin í gærkvöldi. A Akureyri kom á annað þúsund manns saman á þrettándagleði íþróttafélagsins Þórs. Margt
var til skemmtunar. Bálköstur, púkar, tröll, álfar, jólasveinar, þjóðdansarar, Óskar frá Iðnaðarbankanum i sparifötunum og Bjössi
bolla. Gleðinni lauk með frábærri flugeldasýningu. DV-mynd
FRJALS FJOLMIÐLUN
GENGUR ÚR fSFJLM
Ákveðið hefur verið, að Frjáls
fjölmiðlun, útgáfufélag DV, hætti
þátttöku í Isfilm, sem stofnað var
í desember 1984 til að annast sjón-
varps- og útvarpsrekstur, þegar ný
útvarpslög tækju gildi. Var þetta
ákveðið fyrir skömmu af hálfu
Frjálsrar fjölmiðlunar og sam-
þykkt af öðrum aðilum ísfilm, sem
eru Almenna bókafélagið; Árvak-
ur, útgáfufélag Morgunblaðsins;
Haust, fyrirtæki Indriða G. Þor-
steinssonar og fleiri; Reykjavíkur-
borg; og Samband íslenskra sam-
vinnufélaga.
Ástæðuna til brottfarar Frjálsrar
fjölmiðlunar úr samstarfinu i ísfilm
segja forráðamenn félagsins vera
þá, að þeim þyki þetta samstarf að
athuguðu máli ekki vera heppileg-
astur kostur til útvarps- og sjón-
varpsrekstrar. Frjáls fjölmiðlun
hefur á hinn bóginn ekki tekið
neina ákvörðun um samstarf við
aðra aðila um rekstur útvarps eða
sjónvarps. En á næstunni verða
þessi mál skoðuð í nýju ljósi á
vegum félagsins.
Ekki er annað vitað en, að aðrir
aðilar að fsfilm hyggist halda
áfram þátttöku sinni í félaginu og
það muni sækja um leyfi til að reka
útvarp og sjónvarp. ísfilm keypti á
síðasta ári myndverið Ismynd, sem
annast upptöku á auglýsinga- og
kynningarmyndum og hefur að-
stöðu til framleiðslu á sjónvarps-
efni. Félagið hefur einnig staðið
að gerð einnar kvikmyndar, Gull-
sands, sem Ágúst Guðmundsson
stjórnaði.
-sos.
„Kæriþetta
tilJafn-
réttisráðs
ídag”
— segirHelgaKress
„Þetta er ..prinsippmál'' sem
varðar ekki bara mig heldur
stöðu kvennarannsókna við
Háskóla íslands. Mitt rannsókn-
arefni er íslensk kvennabók-
menntasaga. Mig langaði að
kenna hana vegna minna eigin
rannsókna. Það er mikill áhugi
fyrir þeim og mikil þörf fyrir
þennan þátt í íslenskum bók-
menntum," sagði Helga Kress.
dósent í almennum bókmenntum
við Háskóla Islands.
Helga hefur ákveðið að kæra
stöðuveitingu menntamálaráð-
herra í stöðu lektors í íslensktmi
bókmenntum til Jafnréttisráðs.
Ráðherra veitti Matthiasi Viðari
Sæmundssvni stöðuna. Hann
fékk aðeins 4 atkvæði á móti 26
sem Helga fékk í atkvæða-
greiðsiu sem l'ram fór í heim-
spekideild um veitingu þessarar
stöðu.
„Ég geri einnig ráð fyrir því
að Háskólinn muni mótmæla
þessari stöðuveitingu því að
þetta er einnig brot á þeirri reglu
að Háskólinn geti haft áhrif á
stöðuveitingar innan skólans."
sagði Helga Kress. -APH
VanndOOþús.
íGetraunum
Einn maður var með 12 rétta og
14 raðir með 11 rétta í Getraun-
um um helgina. Hann fékk heilar
900 þúsund krónur fyrir vikið.
Þetta er einn stærsti vinningur
í Getraunum sent einstaklingur
hefur hlotið í vetur.
Vinningshafinn notaði „OLIS"
kerfið svokallaða sem er u.þ.b. 9
þúsund raðir og kostar í kringum
32 þúsund kr. Hann keypti
seðlana hjá knattspyrnudeild
Fylkis og sölumenn Fylkis fylltu
þá út fyrir hann. -KB