Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Qupperneq 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR1986.
3
GREKHJM12% AF TEKJ-
UM ÁRSINS í SKATTA
—það er 0,6% hækkun f rá skattgreiðslum f fyrra
Beinir skattar til ríkisins og
sveitarfélaganna verða á þessu ári
að jafnaði 12% af launatekjum.
Þessir skattar eru reiknaðir af
tekjum á síðasta ári og nema 15,5%
af þeim. Ríkið fær 5,9% og sveitar-
félögin 96%- Fyrirframgreiðsla
beinu skattanna fyrri hluta þessa
árs verður 65% af álögðum skött-
um í fyrra.
Fyrirframgreiðslan í fyrra var
57%, 1984 var hún 63% og 1983
70%. Fyrirframgreiðslan hverju
sinni er miðuð við að skila um
helmingi áætlaðrar skattaálagn-
ingar ársins. Núna áætlar fjár-
málaráðuneytið að 47-48% álagðra
skatta á árinu skili sér fyrri helm-
ing þess. Fyrirframgreiðslan er
innheimt á fimm gjalddögum eins
og verið hefur.
Ef hlutur ríkisins í beinu skött-
unum er skoðaður sérstaklega,
kemur í ljós að hann hækkar um
0,2% af tekjum á þessu ári,
greiðsluárinu, úr 4,4% í 4,6%.
Upphafleg fjárlagatillaga gerði
hins vegar ráð fyrir lækkun í 3,8%.
Munurinn liggur í því að frestað
var framhaldi tekjuskattslækkun-
ar. Ríkið hefur aldrei tekið jafnlítið
í beinum sköttum og i fyrra, á
seinni árum.
Þannig var hlutur ríkisins 4,9%
af tekjum á greiðsluárinu 1984, en
árin þar á undan á bilinu 5,4%-
6,3% og var hæst 1979. Hlutur
sveitarfélaganna vex einnig í ár,
úr 7% í fyrra í 7,4% af tekjum
ársins. Það er sama hlutfall og
1984, en árin þar á undan var hlut-
fallið 6,8% í nokkur ár. Rétt er að
undirstrika að allar þessar hlut-
fallstölur eru meðaltal.
Svokölluð skattvísitala hækkaði
um 36% frá í fyrra. Það er sama
og hækkun launatekna. Tekju-
skattur verður reiknaður þannig:
Af fyrstu 272 þúsund krónunum
greiðast 20%, af næstu 272 þúsund-
um 31% og af því sem er umfram
544 þúsund greiðast 44%. Fyrir
álagningu dragast ýmsir liðir frá.
Persónuafsláttur er 47.600 krónur,
nema 83.300 hjá einstæðu foreldri.
Þá eru barnabætur 10.200 með
fyrsta barni en 15.300 með öðrum
börnum. Að auki koma 10.200
krónur vegna barna yngri en sjö
ára. Þá er til tekjutengdur barna-
bótaviðauki upp á 20.400. Einstæð-
ir foreldrar fá hærri bætur. Flytja
má 136 þúsund krónur milli hjóna,
vinni annað þeirra aðallega fyrir
launatekjum.
Á þessu ári verður eignaskattur
einstaklinga 0,95% af hreinni eign
yfir 1.248 þúsund krónur. Sjúkra-
tryggingagjald verður 2% af út-
svarsstofni yfir 402.560 krónum.
HERB
Viðtalið
Hrafn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra náms-
nanna. DV-mynd KAE
Hrafn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri LÍN:
„Tilviljun að ég var
að skipta um skip”
„Góð samvinna við samstarfsfólkið
er grundvallaratriði. Kringumstæð-
urnar eru kannski ekki eins og
maður vildi hafa þær,“ sagði Hrafn
Sigurðsson, nýsettur framkvæmda-
stjóri Lánasjóðs ísfenskra náms-
manna, í viðtali við DV. En verkefnið
taldi framkvæmdastjórinn vera
áhugavert en framvinda málsins
væri óráðin.
Hrafn Sigurðsson er viðskipta-
fræðingur að mennt. Hann lauk námi
frá Háskóla íslands haustið 1972. Þá
hóf hann störf hjá Hagrannsókna-
deild Framkvæmdastofnunar (nú-
verandi Þjóðhagsstofnun) og vann
þar í rúmt ár.
Frá 1974 hefur Hrafn starfað hjá
Sláturfélagi Suðurlands en hætti þar
um áramótin. Fyrst starfaði hann
sem aðalbókari, síðan skrifstofu-
stjóri og síðustu árin sem íjármála-
stjóri SS. Hann var ráðinn til starfa
hjá Hagvangi l.janúar sl. sem rekstr-
arráðgjafi en lét af því starfi til að
taka við Lánasjóðnum.
„Það er tilviljun að ég er að skipta
um skip á meðan þetta ríður yfir,“
svaraði Hrafn aðspurður hvemig
stæði á tilkomu hans í framkvæmda-
stjórastöðuna. Sem kunnugt er á-
kvað menntamálaráðherra, Sverrir
Hermannsson, að setja Hrafn í þessa
stöðu sl. föstudag. Um leið vék ráð-
herrann Sigurjóni Valdimarssyni úr
starfi.
Hrafn mætti til vinnu á nýja vinnu-
staðnum í morgun.
Hann var spurður um fyrri afskipti
af lánasjóðnum sem hafa aðeins
verið í því forminu að þiggja náms-
lán.
„Eg segi ekki að samviskan hafi
verið betri en mér þótti gott síðastlið-
ið haust þegar ég greiddi námslánin
að fullu,“ sagði Hrafn.
Aðspurður um áhugamál sagðist
hann hafa gaman af svo ansi mörgu.
Dálítill spilamaður kvaðst hann vera
en mikill áhugamaður um handbolta,
helst ekki sleppa úr leik. Hann hefur
stutt Víkinga í gegnum þykkt og
þunnt í mörg ár.
Hrafn sagðisthafa ánægju af ferða-
lögum.
„En það er einn staður sem mér
finnst alveg óendanlega gaman að
heimsækja og það er London," sagði
hann.
Hrafn Sigurðsson er kvæntur
Guðrúnu Hannesdóttur bankastarfs-
manni og eiga þau tvö börn.
ÞG
SfcóUtu\
tékuxtl1
staita
I3.jaivttaí-
Gleðileg* «ý,í ar'
Vetrarönn 13/1-9/4.
Kennarar:
Klassísktækni,
Anna og Bára.
Stepp, Draumey.
Jass, Bára,
Anna, Margrét A„
MargrétÓ.,
Agnes, Sigrún,
Irma og Sigríður.
Deirdre Lovell
choregrapher.
azzballettskóli Báru
Suðurveri, sími
83730
Bolholti, sími
36645
, Gjald, 2x í viku,
kr. 4.500,-
Gjald, 3x í viku,
,kr. 5.700,-
Endumýjun
skírteina
laugardaginn
11. janúar.
Framhaldsnemendur
frákl.2-5.
Nýir nemendur
komi eftirkl. 5.
Félag islenskra
danskennara FÍD.
Innritun nýrra
nemenda í síma
83730.
Gestakennari frá
NEWYORK
kemurífebrúar.