Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Blaðsíða 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. JÁNÚAR1986. 9 Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Reagan boðar efnahags- aðgerðir gegn Líbýu Reagan Bandaríkjaforseti heldur fund með fréttamönnum í kvöld, fyrsta blaðamannafund forsetans í fjóra mánuði. Er búist við að málefni hryðju- verkamanna og meint samráð Líbýu við hryðjuverkastarfsemi verði efst á baugi hjá forsetanum. Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að beita sér fyrir nýjum efnahagsþving- unum gegn stjórn Líbýu og áskilur hún sér allan rétt til hernaðaríhlut- unarsíðar. Á blaðamannafundinum er búist við að Reagan útskýri frekar til hvaða aðgerða Bandaríkjastjórn ætlar að grípa í fordæmingu sinni á stjórn Gaddafis og hvers konar sam- ráð hún hafi við bandalagsþjóðir um slíkar aðgerðir. Sálfræðihernaður Larry Speakes, talsmaður Hvíta hússins, sagði að Bandaríkjastjórn hefði nú mjög aukið allan þrýsting á stjórn Líbýu og endurspeglaðist sá þrýstingur best í nýlegum yfirlýsing- um Gaddafis þar sem hann segist enga ábyrgð bera á hermdarverkun- um í Róm og Vín á dögunum. Líbýskar sjálfsmorðssveitir Gaddafi hefur ásakað Bandaríkja- stjórn um að reyna að þröngva Líbýumönnum í stríð með því að safna saman 40 herskipum undan strönd lands síns. Hefur hann hótað árásum líbýskra sjálfsmorðssveita á bandaríska borg- ara ef Bandaríkjamenn láta til skar- ar skríða. Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur vísað ásökunum Gaddafis á bug og segir að allur Miðjarðarhafs- floti Bandaríkjanna sé aðeins 24 skip. Nevado de Ruiz í Kólumbíu: Öngþveitiá hættusvæðum Falskar viðvaranir um yfirvofandi hættu og óröggsöm stjórn yfirvalda ollu allsherjar fumi og fáti þúsunda íbúa í nágrenni eldfjallsins Nevado de Ruiz í gær. Eldfjallið hefur undanfarna daga spúið mikilli ösku yfir nágranna- byggðarlög en svo virðist sem hraun- gos hafi ekki orðið. Ofsahræddir íbúar þorpsins Mariquita flúðu heimili sín í gær eftir að yfirvöld höfðu gefið út við- vörun um yfirvofandi aurflóð er stefndi á bæinn. Ekkert varð úr aurflóðinu. „Það ríkti fullkomið öngþveiti, hver og einn öskraði skipanir út í loftið og enginn vissi hvað var að gerast né hvað átti að gera. Skipuleg Charles de Gaulle íkosn- inga- baráttu Sonarsonur og alnafni Charles de Gaulle hershöfðingja reynir nú að hasla sér völl í frönskum stjórnmálum. Charles de Gaulle yngri er 39 ára gamall lögfræðingur í al- þjóðarétti og starfandi í París. De Gaulle sækist nú eftir út- nefningu hins hægri sinnaða UDF flokks fyrir kosningar í Frakklandi er haldnar verða í mars næstkomandi. De Gaulle yngri er nýliði á sviði franskra stjórnmála og verður framboð hans að vera staðfest af kjörf'undi UDF sem haldinn verður á miðvikudag. Ekki er búist við öðru en hann hljóti tilnefningu flokks síns. Afi Charles de Gaulle yngri lést árið 1975 en nafn hans nýtur enn mikillar virðingar i Frakklandi. Er ljóst að einungis nafnið mun verða hinum nýja frambjóðanda til framdráttar í kosningabar- áttunni. stjórn yfirvalda var ekki til,“ sagði einn björgunarmannanna. Ríkisstjórnin lýsti á laugardag yfir neyðarlögum á svæðinu umhverfis eldQallið og skyldu þau vera í gildi þar til annað yrði ákveðið. Yfir sjö þúsund íbúar á neyðar- svæðinu hafast við í tjöldum utan hættusvæðisins á næturnar en halda í heimahagana á daginn. Yfirvöld telja að enn sé mikil hætta á aurflóðum eins og því er í nóvember drap að minnsta kosti 23 þúsund manns í einu vetfangi. „Við erum þreytt á þvi að lifa eins og tatarar. Við skiljum vel að ástand- ið er alvarlegt en við kjósum samt að vera flutt að heiman þegar um raunverulegt hættuástand er að ræða,“ hefur dagblaðið E1 Espec- tador eftir einum flóttamannanna. Marcos segir að Aquino og Corazon njóti stuðnings kommúnista. Átta þúsund eða hundrað þúsund? Corazon Aquino, forsetaframbjóð- andi á Filippseyjum, skoraði í gær á Markos forseta að færa sönnur á ásakanir um að skæruliðar komm- únista styddu við bakið á sér í kosn- ingabaráttunni. Hún skoraði einnig á Markos að draga til baka fullyrðingar hans um að hún myndi láta handtaka hann ef hún ynni sigur í forsetakosningun- um í næsta mánuði. Aquino gaf út yfirlýsingar sínar á fjölmennum fundi með innlendum og erlendum verslunarmönnum og bankamönnum í Manila. Á sama tíma hélt Markos kosn- ingafund í útjaðri höfuðborgarinnar og fullyrti enn að skæruliðasamtök kommúnista styddu beint við bakið á Aquino og ætluðu sér aukin völd í skjóli hennar ef hún sigraði í kosn- ingunum. „Látum ekki Filippseyjar verða að annarri Indónesíu þar sem yfir ein milljón manna lét lífið í borgara- styrjöld er kommúnistar í ríkisstjórn báru ábyrgð á,“ sagði forsetinn á fundinum. Ríkisútvarpið í Manila fullyrti að yfir eitt hundrað þúsund manns hefðu mætt á fundinn hjá forsetanum en sjónvarvottar töldu fundarmenn vart hafa verið fleiri en átta þúsund. ■ , Litið yfir ísauðnir Suðurskautslandsins. ISLOD SCOTTS Þrír breskir landkönnuðir, sem ganga í slóð landafundamannsins Scotts á Suðurskautslandinu, eiga tíu daga eftir ófarna að suðurpóln- um. - Ferðin er búin að taka þá tvo mánuði. Þrímenningarnir ætla að reyna að afreka það, sem Scott kafteinn stefndi að 1910, en það var að komast á suðurpólinn. Scott komst á pólinn 1912 en leiðangursmenn fórust á heimleið. - Mennirnir hafa ekki birgðir til 1412 km göngu til baka, svo að eins hreyfils flugvél á að taka þá upp. Robert Swan (28 ára), Roger Mear (35 ára) og Gareth Wood (33 ára) lögðu af stað frá McMurdo-sundi 2. nóvember og hafa gengið á skíðum yfir Beardmore-jökul, dragandi á sjálfum sér sleða. Það sást síðast til þeirra úr flugvél 10. desember en þá voru þeir nær hálfnaðir. Mennirnir eru ekki í neinu sam- bandi við umheiminn því að talstöð hefði reynst þeim of íþyngjandi. Breytturtónn íBandaríkja- mönnum Fréttaritari Prövdu, málgagns sovéska kommúnistaflokksins, í New York segist hafa orðið var við nýjan tón á meðal talsmanna Bandaríkjastjórnar til Sovét- manna og hafa fundið fyrir ákveðinni viðhorfsbreytingu á meðal bandarísks almennings gagnvart Sovétríkjunum. Gennady Vasilyev, fréttaritari í þrjú ár í New York, segir að gagnkvæmur nýársboðskapur leiðtoga austurs og vesturs sé enn frekara dæmi um aukna þíðu í samskiptum stórveldanna. ,í dögun hins nýja árs ein- kenndust heillaóskaskeytin nú aftur af hvítum dúfum eftir langa ijarveru,“ sagði Vasilyev. Fréttaritarinn sagði ennfremur í grein sinn að nú væri að koma fram árangurinn af leiðtogafund- inum í Genf en sagði það miður að í vissum gerðum Bandaríkja- stjórnar færu ekki alltaf saman orð og athafnir. Kenndi hann þar um haukun- um í ríkisstjórninni er alls ekki gætu sætt sig við bætt samskipti við Sovétmenn. Franskirfíug- umferöarstjór- aríverkfall Öll flugumferð lagðist næstum niður í gær í Frakklandi vegna eins dags skæruverkfalls franskra flugumferðarstjóra. Krefjast flugumferðarstjórar hærri launa og betri ellilífeyris. Franska þingið hefur nýsam- þykkt lög þar sem allsherjar- verkföll stétta í samgönguiðnaði eru mjög takmörkuð. Flugumferðarstjórarnir njóta eindregins stuðnings starfs- greina annarra verkalýðsfélaga er tengjast flugmálum. Yfirvöld á Orlyflugvelli í París, er sér um mestallt millilandaflug við höfuðborgina, sögðu að það hefðu aðeins orðið 14 brottfarir og komur í millilandaflugi i gær Venjulegast eru þær yfir 130 á dag. Metfækkun inn- flytjenda tilísrael Á síðasta ári fluttust færri innflytjendur til ísrael en nokkru sinni frá stofnun Ísraelsríkis árið 1948. í fyrra komu alls 11.298 inn- flytjendur til landsins helga. 41 prósent færri en árið á undan. Heildartalan frá því í fyrri inniheldur vfir átta þúsund fal- asha gyðinga er fluttir voru til ísrael frá Eþíópíu. Innflytjendur frá Sovétríkjun um á síðasta ári voru 352, næst um því sami fjöldi og árið undan. Aðeins rúmlega þúsund gyð- ingum var veitt brottfararleyfi frá Sovétríkjunum í fyrra og fluttust langflestir búferlum til Bandaríkjanna. Minnkandiveró- bólgaþýskra Verðbólgan komst niður í 2,2% að meðaltali síðasta árið i Vest- ur-Þýskalandi. Hún hafði verið 2,4% árið 1984. Er þessi lækkun þökkuð því hvað þýska markið styrktist gagnvart öðrum gjald- miðlum, einkanlega Banda- ríkjadalnum. Verðlag á innan- landsframleiðslu hélst stöðugt og launahækkanir í lágmarki. Lífs- kjaravísitalan var sú lægsta síð- an 1969.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.