Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Síða 11
DV. MÁNUDAGUR 6. JANÚAR1986. 11 BORGARNES- HREPPUR KAUP- IR SAMKOMUHÚSK) — hillir undir að kvikmyndasýningar hefjistaðnýjuí Borgarnesi eftir rúmlega árs hlé Frá Sigurjóni Gunnarssyni, fréttaritara DV í Borgarnesi: 2. janúar 1986 undirrituðu fulltrúar Ungmennafélagsins Skallagríms og sveitarstjóri Borgarneshrepps samn- ing þar sem Borgarneshreppur keypti eignarhluta Ungmennafélags- ins í samkomuhúsinu í Borgarnesi. Rúmt ár er liðið síðan Ungmenna- félagið hætti starfsemi í húsinu og bauð Borgarneshreppi sinn hluta til kaups. Á móti átti Borgarneshreppur hlut í húsinu. Miklir rekstrarerfiðleikar hafa verið enda reksturinn að mestu byggst á kvikmyndasýningum og dansleikjahaldi. Hafði rekstrar- grundvelli verið kippt undan með aukinni videovæðingu og stækkun Hótel Borgarness þar sem stór salur var tekinn í notkun. Matsnefnd var kosin til þess að meta eignina og skera úr um hlut Ungmennafélagsins og Borgarnes- hrepps. Var matið 2.500.000 og í samningi aðilá ákveðið að hluti Ungmennafélagsins væri 67% og Borgarneshrepps 33%. Einnig voru í samningi þessum kaup á innan- stokksmunum sem Ungmennafélagið átti og var mat þeirra 400.000. Samningur þessi hefur fengið grænt ljós hjá hreppsnefnd Borgar- neshrepps en á eftir að fá endanlegt samþykki á aðalfundi Ungmennafé- lagsins sem fyrirhugaður er í janúar. Hvað Borgarneshreppur ætlar að gera við húsið er ekki endanlega ljóst. Vitað er þó að áhugi er á að þarna verði haldið uppi kvikmynda- sýningum og unglingastarfi sem og leikstarfi. Líklegt er talið að auglýst verði eftir áhugasömum aðilum sem taka vilja húsið á leigu og reka þar starfsemi sem að ofan greinir. Samkomuhúsið í Borgarnesi. Námsstyrkir í breskum háskólum Fimmtán íslenskir nemendur stunda nú framhaldsnám í breskum háskólum og öðrum æðri mennta- stofnunum þar í landi án þess að greiða skólagjald. Tveir nemendur fengu styrki frá British Council en þrettán frá FCO, breska utanríkis- ráðuneytinu. Heildarupphæð styrkj- anna er um 3,4 milljónir íslenskra króna. Námsgreinarnar, sem styrkþeg- arnir stunda, spanna breitt svið en þær eru t.d. klínisk sálarfræði, kvik- myndatækni, fiskeldi, kjötvísindi, skipaútgerð og fjármál, pianónám, flug- og geimréttur. Um þessar mundir er auglýst eftir umsóknum um styrki vegna skóla- ársins 1986-7. Umsóknir eiga að ber- ast Breska sendiráðinu í Reykjavík fyrir 15. mars n.k. Umsækjendur þurfa að hafa lokið háskólaprófi. Þá skal vakin athygli á öðrum styrkjum sem nefnd háskólarektora í Bret- landi úthlutar á ári hverju vegna rannsókna erlendra fræðimanna. ÞG ENN VANTAR Á GRUND- VALLARVERD TIL BÆNDA Landssamtök sláturleyfishafa telja að verulegt fjármagn vanti til þess að sláturleyfishafar geti í raun og veru greitt fullt grundvallarverð t.il bænda. Samkvæmt lögum skal grundvall- arverð fyrir sláturíjárafurðir hausts- ins vera að fullu greitt fyrir 15. des- ember ár hvert. Þrátt fyrir 449 millj- ónir króna sem ríkisstjórnin útveg- aði að láni til að brúa bilið segir stjórn landssamtakanna að enn vanti fjármagn. Landssamtök sláturleyfishafa áskilja sér rétt til að gera athuga- semdir við þá útreikninga um fjár- þörf, sem fyrirgreiðsla ríkisstjórnar- innar er byggð á, strax og þeir liggja endanlega fyrir, segir m.a. í fréttatil- kynningu frá þeim. - ÞG AUGLYSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGBRA SPARISKÍRTEINA RlKISSJÓæ FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* 10.000 GKR. SKÍRTEINI 1972-1. fl. 25.01.86 kr. 24.360,86 1973-2. fl. 25.01.86-25.01.87 kr. 13.498,99 1975-1. fl. 10.01.86-10.01.87 kr. 7.006,46 1975-2. fl. 25.01.86-25.01.87 kr. 5.288,55 1976-1. fl. 10.03.86-10.03.87 kr. 5.037,69 1976-2. fl. 25.01.86-25.01.87 kr. 3.935,91 1977-1. fl. 25.03.86-25.03.87 kr. 3.673,52 1978-1.fi. 25.03.86-25.03.87 kr. 2.490,85 1979-1. fl. 25.02.86-25.02.87 kr. 1.646,98 FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1981 -1 - fl- 25.01.86-25.01.87 kr. 717,78 ‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðsferfram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Athygli skal vakin á lokagjalddaga 1. flokks 1972, sem er 25. janúar n.k. Reykjavík, janúar 1986 SEÐLAB ANKIÍSLANDS Barna- dansar THOMAS STAUDT Samkvæmis dansar kennir jazzballettog discodansa. Stórkostlegur dansari. Þýskalandsmeistari 1984 og 1985 i diskódansi. Freestyle Einka timar Innritun daglega í símum 20345, 74444 og 38126 kl. 13til 18. Kennsla hefst 8. janúar. Keflavík Suðurnes sími 8249

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.