Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Síða 14
14 DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR1986. Spufriingin Trúirþúáálfa? Arnfríður Snorradóttir húsmóð- ir: Ekki beinlínis en þeir hafa sjálf- sagt verið til meðan þeir höfðu frið. Jú, og eílaust eru þeir til ennþá. Guðbjörn Guðjónsson sölumað- ur: Nei, maður gerði það þegar maður var krakki en ég held að fólk trúi ekki á þá í dag. Pálheiður Einarsdóttir, húsmóðir með meiru: Þetta er stór spurning. Ætli ég verði ekki að gera það eins og ýmislegt annað, allavega á þrett- ándanum. Þeir eru ekki verri en hvað annað. Erla Þórarinsdóttir listakona: Auðvitað, ég er ekkert í vafa um það. Og mér finnst gott að þeir séu til, það væri tómlegt án þeirra. Ásgeir Pálsson íþróttakennari: Ég trúi á álfa og hef alltaf gert. Ef ég á að segja þér eins og er þá er ég nefnilega álfur sjálfur. Jenný Gunnarsdóttir nemi: Nei, ég veit ekki hvað álfar eru. En ég hef farið á álfabrennu og sá þá þar. Ég veit samt ekki hvað álfar eru. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Dapurleg dagskrá ríkisfjölmiðla Skattgreiðandi skrifar: Það er sama hve langt líður á þessa öld, ekkert fær umbreytt þeirri áþján sem alþingismenn og nefndir, sem kosnar eru af þeim, hlekkja okkur við og gera þjóðlífið í þessu landi ömurlegra en á sér stað í nokkru nálægu landi vestrænu. Einn heiðursmaður hér í borg hefur oft gripið til eftirfarandi orðtaks: „Það er loftgott á íslandi en and- rúmsloftið er þrúgandi." Hér á hann við að allar þær reglur, boð, bönn og hræsni sem hér viðgengst og gerir ekkert annað en kúga fólk og um- breyta því í smáborgara, strax við skólagöngu. Og allt fellur í sama farveg. Dag- skrá ríkisfjölmiðlanna um hátíðir verður full hræsni og dapurleika, gagnstætt því sem gerist í öðrum löndum. Tökum sem dæmi fólk sem ekki gerir víðreist í heimsóknir til ann- arra. Það situr gjarnan fram eftir kvöldi á aðfangadagskvöld við lestur bóka eða við eitthvað annað sem hugurinn stendur til. Hvað er á móti því að Ríkisútvarp- ið leiki létta, ljúfa tónlist fram eftir nóttu á þessu kvöldi? Þetta er gert um allan hinn sið- og tæknivædda heim. Hvers vegna ekki hér? Er guði þjónað eitthvað sér- staklega hér á landi með þeirri hræsni að ekki megi vera annað en þrugl og dapurleiki í ríkisfjölmiðlun- um? í Keflavikurútvarpinu, sem bless- unarlega er hægt að grípa til hér á höfuðborgarsvæðinu, var einmitt leikin þessi létta og ljúfa tónlist alla nóttina, til jóladagsmorguns. Ekki endilega jólalög, sem minna á kirkju og kvaðir, hræsni og helgisiði. Þetta voru jólalög í útsetningu ýmissa valinkunnra hljómsveitarstjóra, Roy Anderson, Manchini og allt aftur til Kostelanets. Á stórhátíðum er eins og djöfullinn hlaupi í ríkisfjölmiðlana og yfir- drepsskapurinn og hræsnin sitja í fyrirrúmi í tónlist og mæltu máli. Menn eru fengnir til að lesa einhvern bamalegan þvætting, sem enginn hlustar á, eða einsöngvarar eru látn- ir góla passíur eða óratóríur og öllum dauðleiðist þetta. Það er ekki svo vel að svarið við þessu sé einfaldlega þetta: Lokið þá bara fyrir tækin. Það er svo margt fólk sem vill gjarnan heyra í tækjun- um en ekki þessa eindæma hræsni og helgislepju. Og það skal svo tekið fram að lokum að hljóðvarp, rás 1, er hin merkilegasta stöð og mikið og gott efni þar á boðstólum nema á stór- hátíðum. Rás 2 sér svo um grað- hestamúsíkina fyrir lýðinn. Sjónvarp talar enginn um. Það á engan rétt á sér yfirleitt, vegna vangetu fjárhagslega, og er þungur baggi á þjóðinni. „Rás tvö sér svo um graðhestamúsík fyrir lýðinn.“ Skúespil Orri skrifar: Þá eru þingmenn farnir í jólafríið sitt eftir að hafa hespað af þýðingar- mestu mál þjóðarinnar í einum hvelli. Gjörbylting alþýðuflokks- manna í fjárlagagerð fékk klóró- formið eins og vænta mátti. Það Fjármálaráðherra ætti að kynna sér lánskjaravísitölusvínaríið betur. virðist betra að fara hefðbundnar leiðir, þær hafa fært okkur heim sanninn um að hér geti fólk lifað sæmilega ef það vinnur 16 tíma úr sólarhringnum og sendir bömin á uppeldisstofnanir, sem kostaðar eru af almannafé, kemur sér upp smá „business" eða nær sér í umboð, svo ekki sé talað um ef það getur nú sett á stofn verslun. Hinir asnarnir, sem ekki liafa vit á því að féfletta náung- ann, geta bara lapið úr skelinni. Nú eru athafnamennirnir, sem lánuðu þeim blönku fé með „pínulitlum" vöxtum, sloppnir. Nú minnist enginn á okur þar sem Hafskipin hafa skyggt á þá. Þeir ættu því að geta byrjað á nýjan leik, bara að passa sig svolítið betur næst. Nú bíður þjóðin í ofvæni eftir nýju hneyksli, fjárglæfrum sem geta skyggt á Hafskip og Útvegs- bankann. Þeir eiga skilið að fá að sleppa fyrir horn, rétt eins og okrar- arnir. Dánumennimir á Alþingi kusu sína menn aftur í bankaráðin eins og vænta mátti, þeir treysta sínum mönnum best til þess að gæta fjár- hirslanna. Varla trúir þjóðin því að þeir menn, sem sáu henni fyrir birtu og yl frá Kröflu, gæti ekki hagsmuna hennar eins og venjulega. En þótt þeim verði á mistök upp á nokkur hundruð milljón krónur þá vita þeir að kjósendur fylgja flokkum sínum rétt eins og hundar húsbændum. Nú er þó sumum farið að skiljast að með því að kjósa þetta yfir sig á ný þá heitir það á íslensku „að kyssa á vöndinn". En íslendingar eru fyrir löngu orðnir blóðugir um varirnar af þessum vöndum en kyssa á þá samt. Velbekomme. Já, nú er skúespilið á Austurvelli hætt í bili. Sjónvarpið hafði þá minna að gera um jólin en ella. Dæmalaus var viðtalsþáttur við fjármálaráð- herrann nýlega. Spyrjendur komust hreinlega ekki að með spumingar sínar þar sem utanaðlærð romsa var síþulin yfir þeim og landslýðnum öllum í svoddan þaula að Örnólfur Thorlacius gæti kannað hvort ekki hefði þar verið slegið heimsmet. Fjármálaráðherra ætti að kynna sér lánskjaravísitölusvínaríið örlítið betur fyrir næsta þátt. Ereinhver meiri- háttar? Helga Finnbogadóttir skrifar: Ef einhver veit um heimilisfang aðdáendaklúbbs Grafíkur í Reykja- vík og myndi svara þessu bréfi er hann alveg meiriháttar. Það er nefnilega þannig að ég veit ekki um heimilisfang aðdáendaklúbbs Graf- íkur en vil endilega fá að vita það. Aðeins eitt lag Tvær úr Breiðholti skrifa: Okkur langar að koma nokkrum fátæklegum orðum á framfæri. Við spyrjum hvers vegna rás tvö sé svona einhæf. T.d. þegar einhver söngvari kemst í fyrsta sæti og fellur svo nokkrum sætum neðar þá heyrist aðeins þetta eina lag á rás tvö en ekki neitt annað lag á þeirri plötu. Þessa sögu er að segja af okkar besta söngvara, Herberti Guðmunds- syni. Hann gaf út fyrir skömmu sína fyrstu plötu sem nefnist Dawn of the human creation. Ekki heyrist annað lag af henni en Can’t walk away. Þetta er rosalega góð og vönduð plata sem allir ættu að hlusta á því það er hvert lag mjög gott. Herbert! Við viljum þakka þér fyrir þessa plötu og vonum að þú haldir svona áfram. Takk fyrir! Haltu áfram Herbert.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.