Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Page 16
16
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR1986..
Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir |þn
Danir sem ja
um landsleiki
Eric Hyldstrup, framkvæmda-
stjóri danska Iandsliðsins, stend-
ur i ströngu þessa dagana við að
útvega Dönum landsleiki fram að
heimsmeistarakeppninni. Danir
hafa þegar samið um leik við
N-íra sem áætlaður er í Dublin
27. mars. Landsleik við Búlgari
sem verður í Búlgaríu 9. april og
útileik við Belga 12. mai. Þá hefur
Hyldstrup einnig fengið já frá
Pólveijum en þeim leik hefur ekki
enn verið fundinn staður í tima-
töflunni. Sá leikur mun fara fram
á Idrætsparken.
Næst á dagskrá hjá Dönum er þó
keppnisferð til Mið-Austurlanda en
danski hópurinn, sem fer þangað,
mun eingöngu verða skipaður leik-
mönnum sem leika með dönskum
liðum. Þar munu Alan Simonsen og
fleiri kappar fá tækifæri til að sanna
sig.
-fros
Redbergslid í
Sigurður komst f yrstur í úrslit
- varð í sjötta sæti á Evrópumeistaramótinu í sundi í Mónakó 1947
Tveir góðirtil
Akureyrar-
Logi Einarsson, sem lék í marki
Leifturs, Ólafsfirði, í 2.deild í
knattspyrnunni sl. sumar, hefur
tilkynnt félagaskipti í l.deildarlið
Þórs á Akureyri. Snjall mark-
vörður og það mun einnig hafa
ráðið ákvörðun hans um félaga-
skipti að Þorsteinn Ólafsson,
fyrrum landsliðsmarkvörður,
mun þjálfa markverði Þórs í
sumar. Þess má geta að Logi leik-
ur einnig handknattleik - með 1.
deildar liði KA á Akureyri. Hann
hefur staðið sig þar vel í vetur en
nú er orðið nær öruggt-að KA
heldur sæti sínu í 1. deild.
Þá hefur Sigrún Sævarsdóttir
tilkynnt félagsskipti úr Breiða-
blik í Þór, Akureyri. Hún hefur
tvö síðastliðin sumur leikið með
Breiðabliki í knattspymunni sem
framvörður eða framherji. Áður
en hún hóf að Ieika með Breiða-
bliki lék hún með KA á Akureyri
og skoraði mikið af mörkum.
- -hsím
Vinningar í H.H.Í. 1986: 9 á kr. 2.000.000; 108 ákr. 1.000.000; 216 ákr. 100.000; 2.160 ákr. 20.000; 10.071 ákr. 10.000;
122.202 á kr. 5.000; 234 aukavinningar á kr. 20.000. Samtals 135.000 vinningar á kr. 907.200.000.
Redbergslid hefur nú sex stiga for-
skot í deildinni með 23 stig, Warta
basli með Dratt
—tryggði sér 21:19 sigur
á lokamínútunum og hef ur nú sex stiga
forskot í Allsvenskan
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni,
fréttaritara DV í Svíþjóð:
Redbergslid hélt áfram sigur-
göngu sinni í Allsvensken á
sunnudaginn er liðið vann Drott
á heimavelli sínum, 21-19. Lengi
leit þó út fyrir sigur Drott því liðið
hafði yfir, 17-9, er tíu mínútur
voru liðnar af siðari hálfleiknum.
Þá fór stórskyttan snjalla, Björn
Jilsen, í gang og leikurinn snerist
Redbergslid i hag sem náði að
tryggja sér sigurinn á lokamínút-
unum. Fimm aðrir leikir voru
leiknir í Allsvenskan um helgina
og urðu úrslit þessi:
Ystad-Frölunda,.............25-29
Warta-Hellas,...............29-23
Kristiansstadt-Karlskrona...24-29
H43-Lugi,...................21 27
Kroppskultur-Guif,..........23-22
hefur 17 og Drott og Lugi 16. Fjögur
efstu lið deildarinnar leika um deild-
arbikarinn í úrslitakeppni. Liðin
taka ekki með sér stigin úr forkeppn-
inni í úrslitin. Þar munu öll liðin
byrja án stiga.
-fros
í íþróttaannál DV fyrir árið 1985
var þess getið að einn fræknasti
sundmaður okkar, Eðvarð Þór
Eðvarðsson frá Njarðvík, væri
fyrsti islenski sundmaðurinn sem
hefði náð að komast i úrslit á
Evrópumeistaramóti i sundi.
Þessi fullyrðing er ekki á rökum
reist. Okkur hefur verið bent á
að Sigurður Jónsson, KR-ingur,
margfaldur íslandsmethafi og
meistari í sundi, hafi orðið fyrstur
íslendinga til þess.
Á Evrópumeistaramóti, sem haldið
var í Mónakó 10.-14. september 1947,
voru íslenskir sundmenn meðal
keppenda. Á þessu móti náði Sigurð-
ur Jónsson þeim snjalla árangri að
komast i úrslitin í 200 metra bringu-
sundinu. Sigurður var þvi fyrsti ís-
lenski sundmaðurinn sem vann það
afrek að komast í úrslit á stórmóti.
Evrópumeistari í 200 m bringu-
sundinu varð Bretinn R. Romaine á
2:40,1 mín. en Sigurður varð sjötti á
2:54,0 mín. Rétt er að geta þess, að
Sigurður, KR-ingur, var sá eini af
úrslitamönnunum í 200 m bringu-
sundinu í Mónakó sem synti bringu-
sund. Hinir notuðu flugsundsaðferð-
ina. Þetta var nokkrum árum áður
en bringusund og flugsund voru
aðskilin í tvær sérstakar sundgrein-
ar.
Síðan líða nær 38 ár þar til annar
íslenskur sundmaður - sem sagt
Eðvarð - kemst í úrslit á sams konar
móti. Til gamans má geta þess að um
lok síðari heimsstyrjaldarinnar var
Sigurður Jónsson fremsti bringu-
sundsmaður íslands. Setti fjölmörg
Islandsmet. Síðan kom alnafni hans
úr Þingeyjarsýslu fram í sviðsljósið.
Til aðgreiningar voru þeir kallaðir
Sigurður KR-ingur og Sigurður Þin-
geyingur. Þegar Sigurður Þing-
eyingur fór að bæta fslandsmet Sig-
urðar KR-ings gafst sá síðarnefndi
ekki upp eins og oft varð raunin
þegar gamlir meistarar voru sigraðir.
Hann bætti einfaldlega árangur sinn
og einvígi þeirra nafnanna er einn
af hápunktum íslenskrar sundsögu.
Erfitt að spá fyrir um úrslit í keppni
Happanúmer til sölu!