Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Qupperneq 25
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR1986.
25
* '
Peningamarkaður
Innlán meö sérkjjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn-
stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningam-
ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn-
vextir em 29% og ársávöxtun 29%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði
án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu er 33,5% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36%
nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt-
ingu. Tvisvar á ári má taka út án þessa frá-
dráttar.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og
42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5%
vöxtum. Hærri á. öxtunin gildir hvejm mánuð.
Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging
auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
36% nafnvöxtum og 34% ársávöxtun eða
ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 22%, eftir 2 mánuði 25%, 3 mánuði 27%,
4 mánuði 29%, 5 mánuði 31%, eftir 6 mánuði
37% og eftir 12 mánuði 37%. Ársávöxtun á
óhreyfðu innleggi er 37%, eða eins og á 3ja
og 6 mánaða verðtryggðum reikningum reyn-
ist hún betri. Vextir færast einu sinni á ári.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, þann mánuð.
öndvegisreikningur er bundinn til 18
mánaðar, verðtryggður og með 7% nafnvöxt-
um á binditímanum. Eftir það reiknast sömu
vextir og á 3ja mánaða reikning í bankanum.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með
34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára^en
innleysanleg eftir þrjú ár, 10.09.88. Nafnvextir
7%. Vextir, vaxtavextir og verðbætur greiðast
með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamið-
um, skírteini til mest 15 ára, innleysanleg
eftir 5 ár, 10.09.90. Vextir eru 6,71% á höfuð-
stól og verðbætur, reiknaðir misserislega og
greiddir út gegn framvísun vaxtamiða. Verð-
bætur greiðast með höfuðstól við innlausn.
Með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxta-
auka, til 18 mánaða eða 10.03.87. Vextir eru
meðaltal vaxta á 6 mánaða verðtryggðum
reikningum bankanna og með 50% álagi.
Vextir, vaxtavextir, vaxtaauki og verðbætur
greiðast með höfuðstól við innlausn. Gengis-
tryggð skírteini eru til 5 ára, 10.09.90. Þau
eru bundin safngjaldeyrinum SDR og bera 9%
vexti. Vextir og vaxtavextir greiðast við inn-
lausn með höfuðstól, í samræmi við stöðu
SDR.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð-
tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau
eru seld með afföllum og ársávöxtun er al-
mennt 12-18% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til
einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings,
annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl-
skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa,
annars mest. 177-221 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund.
Lánstími er21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns-
rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir
í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir
og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til
vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri
en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok
tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig
22%.
Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22%
nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6
mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur.
Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6
mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím-
ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45%
á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því
0,125%.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í janúar 1986 er 1364
stig en var 1337 stig í des. 1985. Miðað er við
grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 1. ársfjórðungi 1986
er 250 stig á grunninum 100 frá janúar 1983
en 3699 stig á grunni 100 frá 1975.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 1.-10.1.1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM sjAsérlista flll Ífli if ll
INNLAN 0VERDTRYGGÐ
SPARISJÚÐSBÆKUR Úbundin innstæða 22,0 22,0 22,0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22,0 22,0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 25,0 26,6 25.0 25.0 23,0 23.0 25.0 23.0 25.0 25,0
umán.uppsögn 31,0 33.4 30.0 28,0 26.5 30.0 29.0 31.0 28,0
12 nián. uppsöqn 32,0 34,6 32,0 31.0 33,3
SPARNAÐUR - LÁNSRÉTTUR Sparað 3-5 mán. 25,0 23,0 23.0 23.0 23,0 25.0 25.0
29,0 26.0 23.0 29,0 28,0
innlAnsskírteini Til 6 mánaða 28,0 30,0 28,0 28,0
tékkareikningar Avisanareikningar 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0
Hlaupareikningar 10,0 10,0 8.0 8.0 10.0 10,0 8.0 10,0 10.0
INNLÁN VERÐTRYGGÐ
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0
6mán. uppsögn 3,5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0
INNLÁN GENGISTRYGGÐ
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8,0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 8.0
Sterlingspund 11.5 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 11,0 11.5 11.5
Vestur-þýsk mörk 5.0 4.5 4.25 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5
Danskar krónur 10,0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0
ÚTLÁN ÖVERÐTRYGGD
ALMENNIR ViXLAR (forvextir) 30,0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0
VIÐSKIPTAVlXLAR (forvextir) 34,02) kgc 34.0 kge 32.5 kge kge kge 34.0
almennskuldabrEf 32,03) 32,0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0
viðskiptaskuldabréf 35.02) kge 35.0 kge 33,5 kge kge kge 35.0
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 31.5 31.5 31.5 31.5 31,5 31.5 31.5 31.5 31.5
ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ
SKULDABRÉF AÖ21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengri en 21/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ÚTLÁN TIL FRAMLEIDSLU
SJANEÐANMALS!)
1) Lán til innanlandsframleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 9,75%,
í Bandaríkjadollurum 9,5%, í sterlingspundum 13%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%.
2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréíum er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í
Hafiiarfirði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj.
3) Vaxtaálag á skuldabréf tii uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og
óvcrðtryggð lán, nema í Alþýðubankanum og Verslunarbankanum.
Sandkom Sandkorn
Kvikmyndir Kvikmyndir
Stjörnubíó - Silverado
★★
★ ★ ★ ★ Frábær ★ ★ ★ Góð ★ ★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit
Hetjur vestursins
sem eiga fyrir góðu kvöldi
á barnum, þá einu sinni að
þeir leggja af stað. Verður
fróðlegt að sjá hvað kemur
út úr breytingunum á
Hollywood því hingað til
hefur Laufdal ekki skort
hugmyndaflugið.
Undrandi
Kanar
Silverado.
Leikstjóri: Lawrence Kasdan.
Handrit: Lawrence Kasdan &
Mark Kasdan
Tónlist: Bruce Broughton.
Aðalleikarar: Kevin Kline,
Scott Glenn, Rosanna Arqu-
ette og Kevin Costner.
Lawrence Kasdan hefur með Sil-
verado farið á vit gömlu vestranna
þar sem hetjudýrkunin er algjör
og þrátt fyrir að hetjumar íjórar,
sem Qallað er um, eigi að baki
vafasama fortíð, þá er það góðsem-
in sem ræður gjörðum þeirra og
óhræddir takast þeir á við vondu
kallana sem ekkert hugsa um
annað en eigin hag.
Það sem kemur manni mest á
óvart er hversu ófrumleg vestra-
mynd Silverado er. Það hefði mátt
búast við meiru frá Lawrence
Kasdan, leikstjóra úrvalsmynd-
anna tveggja, Body Heat og The
Big Chill. Og handritshöfundinum
Lawrence Kasdan sem á handrit
að ekki minni myndum en Raiders
Of The Lost Ark og The Empire
Strike Back hefur heldur ekki
tekist nógu vel upp í sköpun per-
sónanna í myndinni, sérstaklega á
þetta við um þær fáu kvenpersónur
sem koma við sögu
Eins og áður sagði fjallar Sil-
verado að meginefni til um fjóra
karlmenn sem hittast á leið sinni
til Silverado. Emmett (Scott Glenn)
er sá fyrsti sem kemur við sögu.
Efir að hafa bjargast naumlega
undan nokkrum bófum heldur
hann til Silverado. Á leið sinni
hittir hann Emmett (Kevin Kline
sem hafði farið illa út úr viðskipt-
um sínum við aðra bófa. Næst ligg-
ur leið þeirra til smábæjarins Tur-
ley, þar sem bróðir Emmett, Jake
(Kevin Costner) er í haldi. Honum
Fjölskylduspilið góða,
Trivial Pursuit, sem átti
raunar að heita því vísa
nafni Mímisbrunnur.
Kolvitlaus
svör
Það eru engar ýkjur að
fjölskylduspilið fræga Tri-
vial Pursuit hefur farið um
hér á landi eins og eldurinn
í sinunni á gamlárskvöld.
Nánast hvar sem komið er
sitja heilu fjölskyldurnar
kófsveittar yfir spilinu.
Virðist það nú álíka nauð-
synlegt á hverju heimili og
biblían þótti hér áður fy rr.
En þetta er svo sem í lagi.
Hitt er aftur verra að svörin
við spurningunum í spilinu
eru mörg hver kolvitlaus
eða þá brengluð: Við tökum
sýnishorn:
Spurt er: Hvaða Hoflend-
ingur var kjörinn íþrótta-
maður heims árið 1974?
Svar: Sigurður Greips-
son!
Spurt er: Hvaða íslenska
söngkona tók þátt i söng-
keppni í Cardiff árið 1985?
Og þar er gefið svarið:
Ásmundur Sveinsson og
Ríkharður Jónsson!
Úr hófi keyrir þó þegar
spurt er: Hvaða þjóðhöfð-
ingi var myrtur 31. október
1984?
Svarið er nefnilega:
Kjartan Jóhannsson!
Þetta verður látið nægja
um fjölskylduspilið vin-
sæla, Trivial Pursuit, að
sinni.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
Svo seni fram hefur komið
í fréttum hefur Ólafur
Laufdal sagt upp öllu
starfsfólki skemmtistaðar-
ins Hollywood. Mun hann
ætla að breyta innrétting-
um staðarins og ráða nýtt
ogfersktfólk.
Margir munu undrandi á
þessum breytingum sem
um er rætt því ekki er betur
vitað en skemmtistaðurinn
sé fullur út úr dyrum flest
kvöld vikunnar. Eftirtekj-
an mun þó ekki í samræmi
við aðsóknina. Staðreyndin
mun nefnilega vera sú að
það er að miklum hluta
námsfólk sem sækir
Hollywood. Sá þjóðflokkur
hefur allajafna ekki mikil
peningaráð og gerir því litið
að þvi að kaupa áfenga
drykki. Og auðvitað er
engin von til þess að staður-
inn beri sig almennilega á
rúllugjaldinu einu saman
því oft hefur gestum verið
boðið upp á úrvals
skemmtikrafta sem kosta
sitt og vel það.
Segja kunnugir að með
breytingunum ætli Laufdal
að stíla upp á „öðruvísi“
gesti, það er að segja gesti
Verndararnir á Vellinum
verða ærið oft kringlóttir í
framan þegar þeir hafa
samskipti við landann og
eru til af því margar sögur.
Alþekkt er þýlyndi það og
sleikjuskapur sem margir
íslendingar eru haldnir
gagnvart öllu því sem út-
lenskttelst.
En það eru fleiri hliðar á
málinu. Islendingar eru
nefnilega fádæma duglegir
við að gera sig skiljanlega á
útlensku. Talandi dæmi er
sagan um lögregluþjóninn
sem kom að biluðum bíl af
Vellinum á miðju Mikla-
torgi. Reyndi hann allt
hvað hann gat til að koma
bílnum í lag á milli þess sem
hann bablaði við Kanana
sem stóðu eins og saltstólp-
ar við ökutækið. Þó urðu
þeir fyrst hlessa þegar lög-
regluþjónninn gafst upp á
að eiga við bilinn, fórnaði
höndum og sagði: „Só
sorrý, böt wí will hev tú ít
ðis kar!“
Kaninn leikur stundum
lausum hala í höfuðborg-
inni.
Sumir lögðu hátíðarnar í
aðdrætti.
Fékksér einn
ogfóraf stað
Ýmislegt gerðu menn sér
til dundurs yfir hátíðarnar
sem nú eru nýafstaðnar.
Sumir lögðu kapp á að
skemmta sér sem mest og
best meðan aðrir iðkuðu
aðdrætti. Sumir slógu
þessu tvennu svo bara
saman.
Til að mynda fréttist af
einum úti í Eyjum sem var
önnum kafinn við að hlaða
bíl sinn vörum úr bygginga-
vörudeild Kaupfélags Vest-
mannaeyja þegar að hon-
um var komið. Við eftir-
grennslan kom í ljós að
maðurinn var í annarri ferð
sinni og töluvert við skál.
Nýjustu fréttir herma að
ekki hafi reynst unnt að
yfirheyra manninn þá þeg-
ar. En því er væntanlega
lokið nú þegar þetta er
skrifað.
' Fjórir kaldir byssumenn tilbúnir til atlögu.
er reddað snarlega eftir skemmtileg
viðskipti þeirra félaga við lög-
reglustjóra bæjarins. Fjórði félag-
inn, Mel (Danny Glover), bætist í
hópinn eftir að hafa komið þeim til
hjálpar þegar í harðbakka slær.
Saman ríða þeir félagar til Sil-
verado. Þar ræður ríkjum landeig-
andi einn sem á Emmett grátt að
gjalda. Hefur hann ráðið til sín
frægan byssubófa sem lögreglu-
stjóra. Það verður því blóðbað
mikið í lokin þegar sakirnar eru
gerðar upp.
Silverado er hin ágætasta afþrey-
ing en lítið meira. Hraði er í mynd-
inni og margt atriða sem eru virki-
lega vel gerð. Eins og áður sagði
er lítið vandað til kvenpersónanna
■ í handritinu. Sérstaklega geldur
hin ágæta leikkona Rosanna Ar-
quette þess. Á þeim fáu stöðum sem
hún kemur við sögu er hún eins
og illa gerður hlutur sem fær
nokkrar setningar til að segja.
Linda Hunt fær öllu bitastæðara
hlutverk en á ósköp erfitt með að
sannfæra sig eða áhorfendur um
tilgang þess. Þeir fjórir, sem fara
með hlutverk kúreka'-vestursins,
þurfa lítið að hafa fynr sínum rull-
um. Nóg er að vera fljótur á byss-
una og segja nokkur vel valin orð
á karlmannlegan hátt. Undantekn-
ing er Kevin Costner, enda stendur
hann nokkuð upp úr af leikurum í
Silverado.
* Silverado verður sjálfsagt ekki til
að gefa vestranum nýtt blóð. í
henni eru allt atriði sem óður hafa
verið gerð. Lawrence Kasdan er
hæfileikamikill kvikmyndagerðar-
maður og á örugglega eftir að koma
; með eftirtektarverðari mynd síðar
meir.
Hilmar Karlsson.
Ólafur Laufdal.
Vill
meira