Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Blaðsíða 32
FRETTASKOTIÐ (bb) ■ (78) • (S) Ritstjóm, auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022 Hafir þú ábendingu' eða vitneskju um frétt — hringdu þá í sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið í hverri viku. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Þýsk-íslenska hf.: Sáusjálfir umalla endur- skoðun — löggiltur endurskoð- andi ráöinn um áramótin Frá stofnun Þýsk-íslenska hf. hefur bókhald íyrirtækisins ekki verið endurskoðað af löggiltum endur- skoðanda. Allt bókhald, uppgjör og skattframtöl hafa verið í höndum ;4fianna innan fyritækisins. Undan- farin ár hefur Guðmundur Þórðar- son, framkvæmdastjóri fjármála- sviðs félagsins og lögfræðingur, annast endurskoðun. Nú um áramótin var þessu hins vegar breytt og sér nú Helgi Magn- ússon endurskoðandi um alla endur- skoðun á fjármálum félagsins. Samkvæmt lögum um hlutafélög má endurskoðandi ekki vera starfs- maður, framkvæmdastjóri eða sitja í stjórn viðkomandi fyrirtækis. Guð- jnundur þórðarson, sem séð hefur um ^íessi mál Þýsk-íslenska, er hins vegar bæði framkvæmdastjóri og á sæti í stjórn félagsins. Hlutafélagslögin gengu í gildi 1978 og fyrir þann tíma voru engin ákvæði sem kváðu á um skipun endurskoð- anda. Þessa stundina stendur yfir viða- mikil rannsókn á fjárreiðum Þýsk- íslenska sem hófst í nóvember. ________________ APH Allarrúður brotnuðu Skuttogarinn Engey RE 1 lenti í hrakningum á Færeyjabanka sl. Tíiugardag. Þá fékk togarinn á sig brotsjó. Allar rúður i stýrishúsinu brotnuðu og fylltist brúin af sjó. Rafmagn fór af tækjum í stýrishúsi sem skemmdust nokkuð. Engey er nú í Norðursjó. Fyrir- hugað er að hún selji afla sinn á fimmtudaginn í Cuxhaven. -SOS HEIMSKERFI TIL HEIMANOTA LOKI Ætlar Denni að hafa lögbrjót í ríkisstjórninni? Halldór Ásgrímsson um hótanir f riðarsamtaka f Bandaríkjunum: Engin áform um að hætta hvalveiðum Engin áform eru hjá stjórnvöld- um um að endurskoða eða hætta við hvalveiðar í rannsóknarskyni þrátt fyrir hótanir friðunarsam- taka í Bandaríkjunum um að beina aðgerðum sínum gegn fisksölufyr- irtækjunum í Bandarfkjunum. „Við fórum út í þetta til að rann- saka hvalastofnana við ísland og gerðum samning við Hval hf. í því skyni. Auðvitað getur verið að þessi samningur verði endurskoð- aður enda er gert ráð fyrir því að hann verði endurskoðaður árlega,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávar- útvegsráðherra í viðtali við DV. Hann benti á að hér væru tvenns konar hagsmunir i húfi. íslending- ar ættu hagsmuna að gæta i Bandarikjunum. Hins vegar væru einnig hagsmunir okkar í veði ef við gætum ekki framkvæmt rann- sóknir á auðlindum okkar innan landhelginnar. „ Þegar við samþykktum að hætta hvalveiðum var samtímis samþykkt í Alþjóðahvalveiðiráð- inu að fram færi endurmat á hvala- stofnum og settar yrðu reglur um hvalveiðar í vísindaskyni. Starfs- hópur, sem átti að kanna þetta mál, hefur ekki enn komið saman. Við höldum því fram að ekki sé hægt að rannsaka hvalastofiiana nema að veiða úr þeim. Við krefj- umst þess einnig að staðið sé við samþykktir hvalveiðiráðsins og sjá einnig bis. 5 teljum áætlun okkar vera framlag í því skyni,“ sagði Halldór. Halldór benti á að nú í apríl ætti að ræða innan hvalveiðiráðsins hvemig endumiatið á stofnunum færi fram. Hann benti á að þeir sem hefðu verið harðastir á móti hval- veiðum hefðu ekki sinnt þessari samþykkt nægilega vel. Ef reglum um endurmat á hvalastofnum yrði breytt þá myndu Islendingar hlíta þeim. APH Islandkeppir í Qatar íslenska landsliðiðið í knattspyrnu heldur til arabaríkisins Qatar við Persaflóa 24. janúar. Þar mun liðið leika tvo landsleiki. Það er orðinn árviss atburður að landsliðið leiki gegn Arabaþjóðum. Áður hefur ís- land leikið gegn Kuwait og Saudi Arabíu. Guðni Kjartansson mun stjórna landsliðinu í þessari ferð. Hann mun kalla menn til æfinga um næstu helgi. 16 manna landsliðshópur fer til Qatar. Blandaður hópur úr lands- liðinu og 21 árs landsliðinu. -SOS Sverrir íútlöndum Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra er farinn af landi brott, þó ekki alfarinn. Síðastliðinn sunnu- dag hélt hann til Bretlands til að kynna sér svokallaða opna háskóla þar í landi. í Bretlandi mun hann dvelja í viku. Að því loknu, eða á sunnudag, heldur hann til Kaupmannahafnar á fund norrænna menntamálaráð- herra. Sá fundur er 13. og 14. janúar. Að því loknu kemur hann heim á ný. -KÞ Kópurinn kvartaði ekki undan atlætinu en horfði stóreygur á allt mannfólkið og undraðist allt umstangið sem af ferðalagi hans hefur hlotist. DV-mynd PK Selkópur skreið á annan kflómetra á land upp: FEKK SVO FAR SUÐUR ) AÆTUJNARBILNUM „Við heyrðum hljóð að utan sem við könnuðumst ekki við. Síðan, þegar farið var að aðgæta hvaðan það kom, fundum við selkóp undir fjósveggnum," sagði Narfi Krist- jánsson, bóndi á Hoftúnum í Stað- arsveit á Snæfellsnesi, sem fékk þessa óvenjulegu heimsókn nú í byrjun árs. Narfi taldi að kópurinn, sem er af kyni útsela, væri um viku gamall. Verður það að teljast vel af sér vikið hjá þeim stutta að hefja lífshlaup sitt á langferð á landi uppi í kulda og trekki. Narfi sagði að kópurinn hefði ekki farið skemmri vegalengd en einn kíló- metra frá sjónum heim að bæ. Á þeirri leið varð hann að skríða á freðinni jörðinni og gat ekki notað sér skurði eða læki til að létta sér förina. Heimilisfólkið á Hoftúnum reyndi fyrst að gefa kópnum mjólk úr pela en hann sætti sig ekki við þann' viðurgerning. Því varð það/ að ráði að bjóða Sædýrasafninu að reyna að ala nýársgestinn. Kópur- inn hélt því áfram ferð sinni í mannabyggðum. Næsta áfangann þurfti hann þó ekki að skríða því nú fékk hann far með rútunni og kom á áfangastað í Sædýrasafninu á föstudaginn. Þar er kópurinn nú í góðu yfirlæti og safnar holdum eftir að hafa lagt nokkuð af á ára- mótaferðalaginu. Enn hefur ekki fundist nafn á kópinn og eru ábend- ingar um það vel þegnar. - GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.