Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1986, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1986, Blaðsíða 13
DV. LAUGARDAGUR 22. FEBRÍJAR1986 13 Ben Kingsley: „Langar að leika venjulegan mann“ Ben Kingsley, sá er varð heims- írægur fyrir að leika Gandhi og fékk Óskarsverðlaun fyrir, hefur síðan breytt sér í ýmsar fígúrur á sviði og tjaldi. Næst á eftir að leika Gandhi lék hann apache-indíána stríðsmann, síðan olíu-sjeik og nú stendur hann á sviði og leikur sjálfan márann í Óthelló í samnefndu leikriti Shakespeares Ben Kingsley virðist breyta sjálf- um sér í þær persónur eða fígúrur sem hann leikur hverju sinni. Og áhorfendur hafa fengið dálæti á þessum leikara. Hann leikur Ót- helló í Barbicanmiöstöðinni í London og þar er jafnan uppselt þessa dagana. Reyndar fer hann með tvö hlutverk þar um þessar mundir: annars vegar er það Ót- helló, en hins vegar stríðsmaður- inn, indíáninn í „Melons", leikriti eftir bandaríska rithöfundinn Bernard Pomerance.' Óthelló líkur Gandhi Kingsley segir að sitthvað sé líkt með Gandhi hans og Óthelló. Blaðamaður hitti leikarann eftir að hafa leikið Óthelló eitt kvöldið. Hann er sallarólegur, horfir á við- mælandann brúnum, stingandi augum: „Það er augljós þráður á milli þeirra. Svona brjálæðingar, menn sem eru alteknir einni hug- mynd eða stefnu eru einkar heill- andi persónur og þakklátar að leika. Áhorfendur kunna að meta svona persónur." Kingsley segist glaður leika á víxl á sviði og fyrir framan mynda- vél. Hann segist snúa sér að fil- munni aftur, þegar hann yfirgefur núverandi heimili konunglega Shakespeare-leikhússins í Bar- bican. „Þeir leikarar sem geta leikið á víxl í myndum og á sviði geta prís- að sig sæla,“ sagði Kingsley. „Þeir eru ekki mjög margir - fólk eins og ég og Glenda Jackson og Ant- hony Sher.“ Hann segir að það að leika í kvikmynd sé eins og að hlaupa sprett - eins og íþróttamaður sem hleypur 100 m, hann þarf að stilla hraðann og kraftinn inn á vega- lengdina. Leikhúsleikur er hins vegar skyldari maraþonhlaupi seg- ir hann. Þá fyrst kemur fram hvað þú getur í raun og veru - og í þeirri vinnu lærirðu. Kingsley segist rannsaka hvert nýtt hlutverk gaumgæfilega, kanna sérhvert atriði persónunnar sem hann ætlar að leika. Þegar hann kafaði ofaní Gandhi léttist hann um níu kg, lærði að spinna úr baðmull, dekkti húðlit sinn með sinnepsolíu, las ótal ævisögur Gandhis. „Vil leika venjulegan mann í jakkafötum“ „Það var þarna svo yndislegt par sem kenndi mér að spinna. Og einn daginn komu þau með sokka sem voru gerðir úr baðmullinni sem ég hafði spunnið. Þeir sokkar verða eflaust á endanum fjölskyldudýr- gripur. Þeir hanga uppi á vegg heima. Og þess er gætt að mölurinn grandi þeim ekki. Kingsley hafði leikið í nærri 20 ár á ensku sviði áður en kvik- myndamenn uppgötvuðu hann. Hann hét Krisnha Banji í upphafi, sonur indversks læknis og enskrar konu sem að hluta er rússnesk. Þau bjuggu í borg í Mið-Englandi. Hann valdi skírnarnafn föður síns þegar hann lék sitt fyrsta hlutverk og annað nafnið kemur frá afa hans, sem einhverju sinni varð skipreika við Zanzibar og þar nefndur „King Clove". Kingsley hefur orðið frægur á sama hátt og sir Alec Guinness - þ.e. hann hefúr leikið persónur sem innbyrðis eru gerólíkar. Nú segist hann vilja losna við'hinar hvítu skykkjur Austurlandabúanna og leika venjulegan mann í jakkaföt- Paul Majendie/Reuter Seljum í dag Saab 900 GL árg. 1983. 4ra dyra, Saab 99 GL árg. 1980, 4ra dyra, drapplitur, beinskiptur 5 gíra, ekinn brúnn, beinskiptur, 4ra gíra, ekinn 56 þús. km. Mjög fallegur bíll. 81 þús. km. Saab 900 GLE árg. 1984, 4ra dyra, silver, sjálfsk. + vökvast., topplúga, rafmagnslæsingar o.fl., ekinn 46 þús. km, skipti á ódýrari möguleg. Saab 900 GLE árg. 1984, 4ra dyra, rauður, sjálfsk. + vökvast., topp- lúga, rafmagnslæsingar o.fl., ekinn aðeins 18 þús. km. Toppeintak. Opið laugardag kl. 13—17. TÖQGURHF. UMBOÐ FYFUR SAAB OC SEAT Bíldshöfða 16, símar 681530 - 83104. SMÍÐUM ALLAR GERÐIR STIGA Trébarg hf. Slmi 84730.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.