Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1986, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1986, Side 5
DV. FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR1986. 5 Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Ferðamálaráð sér lítið af lögbundnu gjaldi af Fríhöfninni: Peningarnir stöðvast í fjármálaráðuneytinu Er nema von að almenningur hafi lítið álit á stjómmálamönnum þegar þeir samþykkja lög sem þeir síðan hunsa frá fyrsta gildisdegi? Þann 1. október síðastliðinn tóku gildi lög um skipan ferðamála. Al- þingi samþykkti þessi lög í fyrravor. 18. grein laganna segir: „Fríhöfnin í Keflavík skal greiða til Ferðamálaráðs gjald er nemur 10% af árlegri vörusölu. Fríhöfnin skal greiða gjald þetta beint til Ferðamálaráðs af sölu hvers mánað- ar og fellur það í gjalddaga eigi siðar I Tólf manns bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi á morgun, laugardag. Kosið verður i Sjálfstæðishúsinu, Hamraborg 1. Kjörfundur stendur f'rá klukkan 10 til klukkan 21. Þátttökurétt hafa kjósendur, 18 ára og eldri, sem ýmist eru flokksbundnir, ganga í eitthvert sjálfstæðisfélaganna eða undimta stuðningsyfirlýsingu við flokkinn, vegna bæjarstjórnarkosninganna. Þau sem bjóða sig fram eru: Amór L. Pálsson, Hlaðbrekku 2, Ásthildur Pétursdóttir, Fífuhvammsvegi 39, Bima Friðriksdóttir, Víðihvammi 22, Bragi Michaelsson, Birkigrund 46, Grétar Norðfjörð, Skólagerði 59, Guðmundur M. Thorarensen, KjatT- hólma 14, Guðni Stefánsson, Hrauntungu 79, Haraldur Kristj- ánsson, Hamraborg 32, Jóhanna l’horsteinsson, Daltúni 4, Kristinn Kristinsson, Reynihvammi 22, Ric- hard Björgvinsson, Grænatúni 16 og Stefán H. Stefánsson, Lundarbrekku 6. f bæjarstjórn Kópavogs eru 11 bæjarfulltrúar. Sj álfstæöisflokk ur- inn hefúr fimm, en Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur og Framsóknar- flokkur tvo hver. Þeir þrír mynda meirihluta bæjarstjórnar. Allir nú- verandi bæjarfulltrúar sjálfstæðis- manna bjóða sig fram í prófkjörinu, þau Richard, Bragi. Ásthildur, GuðniogAmór. HERB Alþýðubandalagið: FoivaláAkureyri Hjá Alþýðubandalaginu á Akureyri stendur yfir forval vegna bæjar- stjórnarframboðs i vor. Valið fer ffarn í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18. í dag verður opið klukkan 17-19, en forvalinu lýkur á rnorgun klukk- an 14-18. Þátttökurétt hafa félagar í Alþýðubandalaginu i bænurn. 1 bæjarstjóm Akureyrar sitja 11 fulltrúar. Þar af á Alþýðubandalagið einn frá í kosningimum fyrir fjórum ámm. Upphaflega var í því sæti Helgi Guðmundsson, en við brott- flutning hans tók sætið Sigríður Stefánsdóttir. HERB Aiþýðubandalagið á Selfossi: Frá Regínu Thorarensen. fréttarit- ara DV á Selfossi: Gengið hefur verið frá skipan manna á framboðslista Álþýðu- bandalagsfélags Selfoss og nágrenn- is til bæjarstjómarkosninga í vor. Listinn var samþykktur samhljóða á félagsfundi í vikunni. f níu efstu sætum hans em: Þorvarður Hjalta- son kennari, Kolbrún Guðnadóttir kennari, Sigurlaug Ólafsdóttir, for- maður Verslunarmannafélags Ár- nessýslu, Bryndís Sigurðaidóttir húsmóðir, Ottó Valur Ólafsson nemi, Þorbjörg Þorkelsdóttir sjúkraliði. Hreggviður Daviðsson húsasmiður, Gyða Sveinbjömsdóttir sjúkraliði og Gunnar Jónsson bflstjóri. en 15 dögum eftir lok mánaðarins." Svipað ákvæði var einnig í gömlu lögunum en stjómmálamennirnir fóm aldrei eftir því. „Við fáum ekki þessa peninga. Peningamir stöðvast í fjármála- ráðuneytinu," sagði Kjartan Láms- son. formaður Ferðamálaráðs. „Þetta hefði átt að skammta í ár 35-40 milljónir króna. Við reiknuð- um með allt að 50 milljóna króna fjárveitingu til ferðamála. Niður- staðan varð í kringum 18 milljónir króna,“ sagði Kjartan. Þessar 18 milljónir króna eru í raun helmingi lægri upphæð en ríkið veitti til ferðamála árið áður. Þá var veitt um 27 milljónum króna, sem framreiknað jafngildir um 35 millj- ónum króna í ár. „Þessar 18 milljónir em aðeins 12 til 14 prósent af áætluðum tekjum ríkissjóðs af brottfararskattinum," sagði Kjartan Lárusson. Niðurskurðurinn veldur því að dregið verður úr kynningu og sölu- starfsemi erlendis á vegum Ferða- málaráðs. Mest kemur hann þó nið- ur á verkefhum innanlands. Nánast engu verður varið til að bæta að- stöðu ferðamanna hérlendis, svo sem tjaldstæði, salemi eða göngustiga. -KMU Fjármálaráðherra tekur við mótmælum Flugleiðastarfsmanna. DV-mynd KAE. 759 motmæla 200 prósentum „Fækkun erlendra flugfarþega hing- að til lands stefnir atvinnuöryggi okkar í hættu og því mótmælum við,“ sagði Margrét Hauksdóttir sem á sæti í stjóm Starfsmannafélags Flugleiða. Margrét gekk á fund Þorsteins Páls- sonar fjármálaráðherra í gær ásamt Helga Thorvaldssyni, formanni Starfsmannafélagsins, og afhenti hon- um undirskriftir 759 starfsmanna Flugleiða þar sem hækkun á flugyall- ai-skatti er mótmælt. „Þorsteinn tók okkur vingjamlega en ekki á ég von á að hann skipti um skoðun,“ sagði Margrét. „Ef ráða- menn halda að 200 prósent hækkun á þessu gjaldi færi þeim tekjur í þjóðar- búið þá fara þeir villir vegar. Hætt er við að erlendum ferðamönnum fækki vegna þessa og þar af leiðandi tekjum sem fslendingar hafa af ferðamönn- um.“ Flugvallarskatturinn hækkar 1. mars úr 250 krónum í 750 krónur. -EIR Konur undirbúa framboð víða um landið Mikill hugur er nú meðal kvenna mn að bjóða fram í komandi bæjar- og sveitarstjómarkosningum. Þegar hef- ur verið tekin ákvörðun mn framboð í Reykjavík og á Selfossi í nafni Kvennalistans. Konur á Akureyri, í Hafnarfirði, Kópavogi, á Blöndósi, Akranesi og í Borgarnesi eru einnig að hugleiða framboð. • Konur í Reykjavík hafa nú skipað uppstillingarnefnd. Öskað verður eftir uppástungum frá konum um fulltrúa á lista. Það kemur síðan í hlut uppstill- ingamefndar að raða endanlega nöfn- um niður á þennan lista. -APH M M PR0FKJ0R SJALFSTÆÐISFLOKKSINSIK0PAV0GI STEFÁN í 6. SÆTI Hann hefur verið varabæjarfulltrúi sl. fjögur ár og hefur áhuga á að fylgja eftir þeim málefnum, sem hann hefur unnið að, m.a. æskulýðs- og íþróttamálum og að byggja uppfrekari atvinnutækifæri í Kópavogi. Prófkjörið fer fram í Sjálfstæðishúsinu, Hamraborg 1, laugardaginn 1. mars kl. 10-21. Stefén H. Stefánsson torstöðumaður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.