Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1986, Page 7
DV. FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR1986.
7
Atvinnumál Atvinnumál
Ellefu
beðið um
leyfi
fýrirdisk
-flestarumsóknir
ófullnægjandi
Ellefu einstaklingar hafa sótt um
leyfi til sanigönguráðherra til að setja
upp skerma til móttöku sjónvarpsefnis
frá gervihnöttum, samkvæmt upplýs-
ingum sem DV fékk frá Halldóri S.
Kristjánssyni, skrifstofustjóra í sam-
gönguráðuneytinu.
Umsækjendur eru fjórir í Reykjavík,
tveir í Garðabæ, tveir á Húsavík og
einn á Ólafsfirði, Selfossi og í Þorláks-
höfh.
Enginn hefur enn fengið leyfi. Að
sögn Halldórs S. Kristjánssonar eru
flestar umsóknimar ófullnægjandi
sökum þess að skilyrði 2. greinar
reglugerðar um starfrækslu jarð-
stöðva fyrir móttöku sjónvarpsefnis
um fjarskiptatungl eru ekki uppfyllt.
I þessari grein segir:
„Starfræksluleyfi skulu bundin því
Sigurður Þorkelsson í Garðabæ var meðal fyrstu einstaklinga hérlendis til að
veiða inn til sín geisla erlendra sjónvarpsstöðva. DV-mynd: KAE.
skilyrði að umsækjandi hafi aflað sér Hafldór sagði að umsækjendur væru
heimildar rétthafa hinnar tilteknu nú að afla sér heimilda frá si mvarps-
sjónvarpsrásar um afnot hennar." rásunum. -KMU
_____ Auðbrekku 32,
DANSKA “"t-f
SMURBRAUÐIÐ
Hjá okkur fáið þið ekta
danskt smurbrauð,
einnig kaff ísníttur og
kokkteilsnittur.
Uppl. og pantanir í sima
45633.
Opiðfrá kl. 10-20 alladaga.
ATH. Sendum heim ef óskað er.
Styrkir til náms
á Ítalíu
itölsk stjórnvöld bjóða fram styrki handa íslend-
ingum til náms á Ítalíu á háskólaárinu 1986-87. Styrk-
irnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eða rann-
sókna við háskóla að loknu háskólaprófi eða náms
við listaháskóla. Styrkfjárhæðin nemur 600.000 lírum
á mánuði.
Umsóknum, ásamt tilskildum fylgiskjölum, skal
komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6,
101 Reykjavík, fyrir 21. mars nk. Umsóknareyðublöð
fást í ráðuneytinu.
24. febrúar 1986.
Menntamálaráðuneytið.
Kennslukonurnar skoða heimilisfræðistofu í Grundaskóla á Akranesi,
Norrænar kennslu-
konur á Skaganum
Frá Haraldi Bjarnasyni á Akra- af Norðurlöndunum komu í heimsókn
nesi: hingað til Akraness á fimmtudaginn.
Um 50 kennslukonur annars staðar Kennslukonumar eru hér á landi í
40 hugvits-
fræðslu- og kynnisferð og eftir að hafa
dvalist í Reykjavík um tíma brugðu
þær sér með Akraborginni hingað á
Skagann.
Konurnar kynntu sér skólahald á
Akranesi og skoðuðu sig um í bænum
og héldu svo til Reykjavíkur aftur eftir
daglanga dvöl á Skaga.
w
TILKYNNING UM
AÐSTÖÐUGJALD
í REYKJAVÍK
Ákveðið er að innheimta í Reykjavík aðstöðu-
gjald á árinu 1986 samkvæmt heimild í V. kafla laga
nr. 73/1980 um tekjustofna sveitarfélaga og reglugerð
nr. 81 /1962 um aðstöðugjald.
Samkvæmt ákvörðun borgarstjórnar verður gjald-
stigi eins og hér segir:
A) 0,33% af rekstri fiskiskipa og flugvéla
B) 0,65% af rekstri verslunarskipa og fiskiðnaði
C) 1,00% af hvers konar iðnaði öðrum
D) 1,30% af öðrum atvinnurekstri
Prentun og útgáfa dagblaða skal þó vera undan-
þegin aðstöðugjaldi.
Aðstöðugjaldsskyldir aðilar skulu skila skattstjóra
sérstakri greinargerð um aðstöðugjaldsskyldan rekstr-
arkostnað í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.
Greinargerð þessari skal skila með skattframtali fram-
talsskyldra aðila samkvæmt lögum um tekjuskatt og
eignaskatt, en þeir, sem undanþegnir eru þeirri fram-
talsskyldu, skulu fyrir 31. maí nk. skila greinargerð
þessari ásamt ársreikningi til skattstjóra í því umdæmi
þarsem þeireiga lögheimili.
Reykjavík 25. febrúar 1986.
Skattstjórinn í Reykjavík
w
menn með
hugmyndir
Hugmyndastefnan 86 mun verða hald-
in næsta haust í tengslum við sýning-
una Heimilið 86. Iðnaðarráðuneytið
auglýsti eftir hugmyndum á slíka
hugmyndastefnusýningu og rann
skilafrestur út fyrir skömmu. Um 40
umsóknir bárust frá hugvitsmönnum
sem margir höfðu fleiri en eina hug-
mynd. Verður því ekki hikað við að
halda sýninguna.
Fyrirhugað er að sýna á hugmynda-
stefiiunni uppfinningar og hugmyndir
í tengslum við iðnað sem tilbúnar eru
til markaðsfærslu af hálfu höfunda.
Þannig verður framleiðsluhugmynd-
um miðlað til þeirra sem hafa hug á
að fjármagna nýjungar í iðnaði. Á
sýningunni verða jafnframt hinir
ýmsu aðilar og samtök sem tengjast
nýsköpun í atvinnulífi sem veita upp-
lýsingar um fyrirgreiðslu og þjónustu
þá sem þeir veita.
I tenglsum við sýninguna verður
væntanlega haldin námstefna í fyrir-
lestrarformi um vöruþróun, einkaleyfi,
uppfinningar, frumgerðasmíði, mat á
hugmyndum o.fl. sem tengist nýsköp-
un.
Dr. Ingjaldur Hannibalsson, forstjóri
Iðntæknistofnunar, mun sjá um fram-
kvæmdastjóm hugmyndastefriunnar.
-KB
KOPAVOGSBUtt
Símar:
43300 42837
ARNÓR L. PÁLSSON, bæjarfulltrúi hefur unnið ötullega
að málefnum sjálfstæðismanna og bæjarbúa allra,
undanfarin ár.
Kjósum ARNÓR L. PÁLSSON í eitt af efstu sætum lista
flokksins í prófkjörinu laugardaginn 1. mars.
Styrkjum stöðu Sjálfstæðisflokksins
í komandi kosningum.
Stuðningsmenn ARNÓRS L. PÁLSSONAR
Ath: Nafn ARNÓRS er neðst á prófkjörslistanum
vegna reglna flokksins um hlutkesti.