Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1986, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1986, Page 14
14 DV. FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR1986. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aöstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JONAS HARALDSSON ogOSKAR MAGNUSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLT111 Prentun: ÁRVAKU R H F. - Askriftarverð á mánuði 450 kr. Verð í lausasölu virka daga 45 kr. - Helgarblað 50 kr. Arfur kúgarans Kúgarinn Ferdinand Marcos réði Filippseyjum í tvo áratugi. Þótt hann hafi misst völdin og flúið land, er nýjum valdhöfum mikill vandi á höndum eins og fréttir bera með sér síðustu daga. Stjórn Marcos var með eindæmum ill. Hann skilur eftir sig þjóð í örbirgð. Mikill hluti landsmanna er örsnauðir leiguliðar, á valdi landeigenda. Tuttugu af hundraði vinnufærra manna eru atvinnulausir. Auk þess er dulið atvinnuleysi mikið. Líklega hefur helming- ur manna ekki næga atvinnu. Marcos lofaði umbótum í fyrstu en sneri fljótt baki við hinum snauðu. Hann snerist einnig gegn miðstéttinni eftir setningu herlaga 1972. Marcos hefur stuðzt við herinn. 1 baráttu við andstöðuna hefur einskis verið svifizt. Andstæðingar hafa verið myrtir að undirlagi Marcos. Fjöldi hefur verið fangelsaður. Kommúnistar halda uppi vopnaðri baráttu gegn stjórnvöldum. Líklega hafa þeir tuttugu þúsund manns undir vopnum. Marcos svaraði með útrýmingu heilla þorpa, þar sem íbúar lágu undir grun. Afleiðingin varð enn meira hatur á forsetanum fyrrver- andi. í fangelsum hafa andstöðumenn, stjórnmálamenn og verkalýðsforingjar sætt pyntingum. Niðurstaðan er, að fagna ber því sannarlega, að Marcos er flúinn og aðrir hafa tekið við. Að minnsta kosti verður að leyfa þeim að reyna, þótt vandinn sé svo mikill, að alls óvíst sé um, hvernig fer. Stjórnin verður aldrei verri en var í tíð Marcos. Alræmdasta fólskuverk stjórnar Marcos var morðið á stjórnarandstæðingnum Benigno Aquino 1983, eigin- manni núverandi forseta, Corazon Aquino. Hann hafði verið landflótta en verið heitið griðum, kæmi hann heim. Hann var myrtur við komuna, á flugvellinum, vafalaust að undirlagi Marcos og manna hans. Marcos og fjölskylda hans söfnuðu miklum auði, meðan landsmenn þjáðust í fátækt. Marcos færði sér þar í nyt efnahagsaðstoð frá Bandaríkjunum. Vafalaust á fjölskyldan miklar eignir í Bandaríkjunum, sem hún nú getur ey tt. Marcos falsaði úrslit síðustu forsetakosninga. Um það er engum blöðum að fletta. Til vitnis eru til dæmis bandarískir þingmenn, sem fylgdust með kosningunum. Þegar til kom, treysti Marcos sér ekki, það sem hann hafi ætlað, að beita hernum til að þagga niður í almenn- ingi. Kaþólska kirkjan gekk gegn honum. Jafnvel Reagan Bandaríkjaforseti, sem hafði í lengstu lög verið vinveittur Marcos, fór að tala um fölsun kosningaúr- slita, þótt Reagan reyndi um skeið að láta svo sem þar hefðu báðir frambjóðendur verið sekir. Þegar gamlir bandamenn Marcos hófu uppreisn gegn honum og múgurinn varði stöðvar þeirra, gáfust þeir upp, Reagan og Marcos. Reagan verður að halda vinfengi við vald- hafa á Filippseyjum vegna hernaðarlegs mikilvægis eyjanna, svo sem bandarískra herstöðva í þessari fyrrum nýlendu Bandaríkjanna. Reagan kaus því að veðja á Aquino, sem varð forseti. Það er andstæðingum kommúnismans mikilvægt, að Filippseyjar verði þeirra megin. Cory Aquino í'ær erfið verkefni. Til að ná völdum gerði hún bandalag við nokkra fyrrum valdsmenn í stjórn Marcos. En hún verður að sinna hinum fátæku. Þar er neyðin mest. Hún verður að bæta efnahagsástandið, þar sem skuldir Filippseyja eru gífurlegar. Við bíðum og sjáum. Haukur Helgason. „Vídeóleigurnar fylltu það tómarúm sem skapaðist við einokun ríkissjónvarpsins og þá einhæfni sem einkennt hefur þetta svið.“ Á öldum Ijósvakans Þingmenn, ekki síst Ragnhildur Helgadóttir, Halldór Blöndal og Friðrik Sophusson, eiga heiður skilið fyrir að hafa komið útvarps- lagafrumvarpinu í gegnum Alþingi. Frumvarp þetta er að ýmsu leyti skynsamlega samið, enda áttu margir þingmenn hlut að máli áður en það var komið í endanlega mynd. Lögin rufu endanlega einokun Ríkisútvarpsins á öldum ljósvak- ans. Sjónvarp á íslandi er þar með orðið samkeppnisgrein og var tími til kominn. Einkastöðvarnar, sem munu rísa hér upp, lenda ekki aðeins í sam- keppni innbyrðis heldur og við ríkissjónvarpið, vídeóleigurnar og diskana. Diskarnir Um tíma leit út fyrir að jarð- stöðvar í eigu einstaklinga mundu fylla tómarúmið, en svo verður ekki. Kvikmyndarásin hverfur af skjánum í sumar, Music Box um áramót. Þar með hverfa báðar enskumæl- andi stöðvarnar út af diskunum. Engu að síður verður margt for- vitnilegt eftir á skjánum, einkum frá meginlandinu. Annar galli við diskana er hins' vegar sá að fyrir aðra en þá sem búa í fjölbýlishúsum og hina sem eiga ótakmarkað fjármagn er þessi leið of dýr. Ríkissjónvarpið Fáar ríkisstofnanir eru orðnar eins þurfandi fyrir samkeppni og ríkissjönvarpið. Þessi stofnun hefur að mörgu leyti náð merkilegum árangri þeg- ar hafður er í huga sá þröngi stakk- ur sem henni hefur verið skorinn frá upphafi. Best hefur henni tekist með frétt- ir, ýmiss konar frétta- og umræðu- þætti, að ógleymdum mörgum frá- bærum viðtalsþáttum við einstakl- inga um allt land. Vandamál sjónvarpsins hafa einkum verið tviþætt. Hrapallegast hefur gengið að uppfræða almenn- ing og má segja að sá þáttur hafi mistekist að mestu. Þá hefur framieiðsla á íslensku hákúltúrefni, þ.á m. sjónvarps- kvikmyndum af . einhverjum ástæðum - að mestu farið fyrir ofan garð og neðan. Þetta kann að þykja harður dómur, en á hitt ber þó að líta að menningarstefna ríkisins hefur ávallt verið óljós og fyrirtækið í fjársvelti. JÓN ÓTTAR RAGNARSSON DÓSENT FRJÁLSLYNDI ÍFRAMKVÆMD Vonandi verður þessi vaxtar- broddur íslensks kvikmyndaiðnað- ar hafinn til vegs og virðingar. Ættu frjálslyndir stjórnmálamenn að sameinast um það verkefni. Vídeóleigurnar Vídeóleigurnar fylltu það tóma- rúm sem skapaðist við einokun ríkissjónvarpsins og þé einhæfni sem einkennt hefur þetta svið. Reynslan erlendis sýnir að vídeó- leigurnar veita sjónvarpstöðvum verulega samkeppni og að sú sam- keppni erbáðum aðilum til góðs. Vídeóleigurnar munu, þegar tím- ar líða, finna sér þann sess sem þeim ber og án efa verða þær snar þáttur í þjóðlífi okkar um langan aldur. Einkastöðvar Aðeins tíminn mun leiðá í ljós hvers virði einkastöðvar á íslandi munu reynast í að framleiða ís- lensktefni. Ljóst er að í upphafi munu ein- ungis þær sem byggja að mestu leyti á aðkeyptu erlendu efni lifa af nema þær eigi ótakmarkaðan aðgang að fjármagni. En það sem mun ráða úrslitum um framtíð þessara stöðva verður jafnframt hversu fljótt þeim tekst að hefja framleiðslu á vönduðu íslensku efni. Þetta er auðvitað þverstæða, en staðreyndin er sú að til lengdar verða Islendingar sem aðrir þreytt- ir á eintómri erlendri afþreyingu. Samkeppni Mestu skiptir að sjónvarp á Is- landi er nú samkeppnisiðnaður þar sem ríkið, einkastöðvar og gervi- hnattastöðvar (og vídeóleigur) keppa innbyrðis. Sú hugmynd að hægt yrði að hleypa hingað inn erlendu efni ótextuðu í stórum stíl var auðvitað aldrei annað en hugarburður draumóramanna. Staðreyndin er nefnilega sú að þegar kemur röðin að sjónvarpi vilja íslendingar aðeins fyrsta flokks efni. Og það skal að sjálf- sögðu vera textað. Samkeppnin mun hins vegar auka fjölbreytnma til muna og , stuðlar auk þess að tollalækkunum og öðrum ívilnunum sem sam- keppnisgreinar njóta. Byitingin heldur áfram Til þess að tryggja að sjónvarps- byltingin komi þjóðinni að sem mestu gagni skipta afskipti hins opinbera sköpum. í fyrsta lagi er afar mikilvægt að Póstur og sími gefi hinum nýju stöðvum nokkurt frjálsræði í tækjakaupum og tilhögun við að koma starfsemi sinni á fót. I öðru lagi er líf þeirra undir því komið að fjármálaráðuneytið sýni þessari nýju samkeppnisgrein þann skilning sem henni ber. Með öðrum orðum: Sjónvarps- byltingin er hafin og þótt enn sé langt í land að hún beri þann ávöxt sem alla dreymir um verður hún ekki stöðvuð framar.... hvað sem hver segir! Jón Óttar Ragnarsson. a ,,En það sem mun ráða úrslitum um ^ framtíð þessara stöðva verður jafn- framt hversu fljótt þeim tekst að hefja framleiðslu á vönduðu íslensku efni.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.