Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1986, Síða 17
DV. FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR1986.
17
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Læknum getur
líka mistekist
Ein þakklát skrifar:
Nú er alltaf verið að skammcist út
í læknana á Borgarspítalanum út
af máli sem verið hefur í sviðsljósinu
að undanfömu. En enginn hefur,
mér vitanlega, sagt neitt gott um þá
góðu menn. Ég hef margoft þurft á
hjálp þeirra að halda og get þvi talað
af reynslu þegar ég segi að þetta em
allt saman öðlingsdrengir hinir
mestu. Ég vil ekki hafa að verið sé
að skammast út i þá á þann hátt sem
ég hef orðið vitni að. Það getur öllum
orðið á mistök, líka læknum. En að
vera að básúna það í fjölmiðlum er
engum til sóma. Ég vil bara þakka
þeim það sem þeir hafa gert fyrir
mig, það er alls ekki lítið að þakka.
Og Borgarspítalanum vil ég einnig
þakka, það er góður staður fyrir þá
sem þangað leita. Áfram, læknar!
c>
Ein þakklát vill ekki að verið sé að
skammast út í Borgarspítalann og
læknanaþar.
Burt með
bílana
Sigurður skrifar:
Ég vil kvarta undan allt of háu
gjaldi sem þarf að greiða í strætis-
vagna. Að borga 25 krónur fyrir
kannski einn kílómetra er skammar-
legt peningaplokk. f þjóðfélagi eins og
því íslenska ætti að vera ókeypis í
vagnana og það ætti líka að bæta
þjónustuna svo að einkabílamir yrðu
óþarfir nema í einstaka tilfellum. Bíla-
eign landsmanna er fáránlega mikil
og allir þeir peningar sem fara í bíla
og bensín myndu nægja til að skapa
velferðarþjóðfélag á íslandi. Bílar er
ekki ótvírætt merki um velferð. Auk
þess sem þeir eru heilsuspillandi á
margan hátt. Þeir menga loftið meir
en margur heldur. Þvi segi ég burt
með bílana, nema strætó og leigubíla.
„ Þið ættuð kannski að kynna ykkur hinar ýmsu hljómsveitir sem verða ekki
úreltar, til dæmis Depeche Mode.“
Aðdáendum
mótmælt
Víðsýnn skrifar:
Af hverju má fólk ekki hafa sínar
skoðanir í friði? Undanfama daga
hafa.verið bréf hér í lesendadálkinum
írá unglingum sem „dýrka" Herbert
Guðmundsson en ekki DURAN
DURAN, Wham! eða því um líkar
hljómsveitir.
Er þetta allt sem þið þekkið: DUR-
AN DURAN, Wham! og Herbert?
Þekkið þið ekkert nema „Disco
djönk“? (svo ég noti nú orð aðdáenda
Hebba Gumm. sem krifaði hér i blaðið
20.2.). Þið ættuð kannski að kynna
ykkur hinar ýmsu hljómsveitir sem
verða ekki úreltar, til dæmis Depeche
Mode, O.M.D., Tears for Fears og fleiri
góðar sveitir.
Er ekki í lagi að fólk „dýrki“ hvaða
hljómsveit sem er? Víst er smekkur
manna misjafn. Þvi ekki að hætta
bara þessum vitlausu skrifum og leyfa
fólki að hlusta á þá tónlist sem það
vill?
E.S.: Til að fyrirbyggja allan mis-
skilning þá mátt þú alveg „dýrka"
Herbert Guðmundson eða DURAN
DURAN fyrir mér.
KÓPAVOGSBÚAR
Kristinn Kristinsson
húsasmíðameistari
í prófkjöri Sjálfstæðis
flokksins á morgun gefst
ykkur kostur á að velja til
setu í bæjarstjórn traust
an athafnamann með
mikla reynslu ífélagsmál
um.Tryggjum Kristni
öruggt sæti.
STUÐNINGSMENN
FÖSTUDAGSKVÖLD
í Jl! HÚSINUlíJI! HÚSINU
OPIÐ í ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 20 í KVÖLD
Matvörumarkaður 1. hæð- Rafdeild 2. hæð- Húsgagnadeild 2. og 3. hæð- Gjafa- og búsáhaldadeild 2. hæð- Ritfangadeild 2. hæð- Munið JL-grillið Sérverslanir í JL-portinu.
Barnagæsla kl. 2-20 föstudaga oglaugardaga kl. 10-16. Opið laugardag kl. 9-16.
Verslið þar sem
úrvalið er mest
og kjörin best
JIS
KORT
Enginn
kortakostnaður.
tJll
/a aa a a a
UmŒTíjT
cJuuijjjjT
HUMTÍUUIIflMUIiÍ Vltln
Jóo Loftsson hf. ________________
Hringbraut 121 Sími 10600