Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1986, Blaðsíða 36
Frumvarpvegna
kjarasamninganna:
Rekstarhalli
verður
800 milljónir
Rekstrarhalli ríkissjóðs verður rúm-
ar 800 milljónir í stað 163 milljóna
króna tekna umfram gjöld á þessu
ári. Þessi breyting verður vegna að-
gerða ríkisstjómarinnar vegna ný-
gerðra kjarasamninga.
Frumvarp um þessar aðgerðir var
lagt fram í gærkvöld í efri deild Al-
þingis og afgreitt til annarrar umræðu.
Stefnt er að því að þingfundir verði í
dag og að á morgun takist að afgreiða
það sem lög frá Alþingi.
Frumvarpið er í samræmi við þær
aðgerðir sem aðilar vinnumarkaðarins
lögðu til. Gert er ráð fyrir að ríkis-
sjóður taki lán hjá bönkum og lífeyris-
sjóðum til að mæta hallanum. Þá er
heimild Þróunarfélagsins til 100 millj-
óna erlendrar lántöku felld niður.
Einnig eru erlendar lántökur Fram-
kvæmdasjóðs lækkaðar um 600 millj-
ónir. 100 milljónir stafa af breyttum
verðlagsforsendum og 500 milljónir að
auki nýttar til að lækka erlenda lán-
töku erlendis. -APH
Ávísunum stolið
Brotist var inn í verslun við
Tryggvagötu seint i gærkvöldi. Þjófur-
inn rótaði í gögnum verslunarinnar
og hafði á brott með sér ávísanahefti.
Hann náðist ekki.
Þjófurinn fór inn um opinn glugga. ■
Síðan braut hann rúðu á leið út úr
versluninni eftir að hafa gi-amsað nóg.
Lögreglan rannsakar málið en engin
vísbending hefur komið fram um hver
varþarnaaðverki. -GK
Bilun b prent-
vél seinkaði DV
Vegna bilunar i prentvél var DV
mjög seint á ferð í gær. Prentun blaðs-
ins lauk ekki fyrr en undir kvöldmat.
Lesendur eru beðnir afsökunar á þess-
ari seinkun.
T
RAUSTIR
MENN
25050
\ S£ttDIBilFSTÖDITÍ
LOKI
Bara að þær kvefist
ekki litlu skinnin!
Indriði H. Þoriáksson, fonnaður
samninganefndar rikisins:
Samið við
BSRBidag
„fig tel það mjög líklegt að samið staðar. Það er ekki hægt að hafa samningamenn ríkisins að máli.
verði við BSRB í dag,“ sagði Indriði samninga svo mjög mismunandi." - Hvað um kaupmáttarákvæðið í
H. Þorláksson, fonnaður samninga- Samninganefndir BSRtí og ríkis- kröfu BSRB?
nefndar ríkisins, í morgun. „Þegar ins sátu á fundi snemma í morgun „Við semjum um það í dag eins
búiö er að ganga írá málum á einum og eftir hádegi var ráðgert að 50 og annað,“ sagði Indriði H. Þorláks-
stað verður að gera það sama annar- manna samninganefiid BSRB hitti son. -EIR
Rennblautar dömur í hægum takti i Hollywood í gærkveldi eftir vatnsgusuna sem þær fengu yfir sig,
enda þátttakendur í blautbolskeppni. Úrslit eru enn óráðin. DV-mynd GVA
Hæstiréttur
margklofinn
um þungaskatt
Hæstiréttur margklofnaði í afstöðu
sinni til innheimtu þungaskatts á dís-
ilbílum. Sjö dómarar dæmdu þetta
mikilvæga mál og komu fram fjögur
sérálit.
Vörubílstjóri á Húsavík, Aðalgeir
Sigurgeirsson, áður formaður Land-
vara, félags vörubifreiðaeigenda, taldi
að ríkið hefði ekki lagt þungaskatt á
löglega. Stefán Pálsson hæstaréttar-
lögmaður flutti mál hans sem prófhiál
fyrir alla stéttina.
Þrír dómarar töldu að framsal Al-
þingis á valdi til ráðherra til að leggja
á þungaskatt hafi ekki verið í sam-
ræmi við stjórnarskrá en bílstjórinn
hafi glatað endurkröfurétti þar sem
hann hafi greitt gjaldið að fullu án
þess að gera um það fyrirvara.
Tveir dómarar voru sammála þess-
urn þremur um að sýkna ríkið en á
öðrum forsendum.
Loks töldu tveir dómarar að ríkis-
sjóður ætti að endurgreiða vörubíl-
stjóranum þungaskattinn. -KMU
Kennarasambandið
grettirsigyfir
kjarasamningunum:
Krefst beinna
hækkanaog
verðtiyggingar
Fulltrúaráð Kennarasambands ís-
lands er ekki hrifið af nýju kjarasamn-
ingunum. I ályktun, sem það hefur
gert og sent frá sér, hvetur það laun-
þega „til að standa saman um kröfuna
um beinar launahækkanir og verð-
tryggingu launa". Það nánast hafhar
niðurfærsluleiðinni.
I ályktun fulltrúaráðsins segir að
laun hafi ekki verið verðtryggð und-
anfarin ár en verðbólgan hafi verið
30-40%. Undanfarið hafi orðið stór-
felldar hækkanir á vörum og þjónustu.
„Skattalækkanir þær sem ríkisstjórn-
in býður nú í stað launahækkana
munu auka niðurskurð á opinberri
þjónustu, sem bitnar aftur harðást á
launþegum sjálfum,11 segir í ályktun
fulltrúaráðs Kennarasambándsins.
HERB
Mavs
hefet
með
hlý-
indum
Vestlæg átt verður ríkjandi
uni allt land á morgun og hita-
stigið verður víðast hvar ná-
lægt frostmarki.
A vestan- og norðanverðu
landinu verða skúrir og slyddu-
él en úrkomulaust verður f\TÍr
sunnan og austan.
Skýjað verður á öllu vestan-
verðu landinu og sömuleiðis
austanlands en léttskýjað á
Suður- og Suðausturlandi.
Marsmánuður gengur því í
garð með hlýindum um allt
land og ekki lítur út fyrir mikl-
ar breytingar á því á næstu
dögum. -S.Konn.