Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1986, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1986, Blaðsíða 6
Gytmir SMÁAUGLÝSINGAR DV MARKADSTORG TÆKIFÆ RANNA Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna. Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö er sunnanlands sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug- vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV lesíö. Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og eins. Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn ný- komnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gætu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur. Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt. Þar er allt sneisafullt af tækifærum Þaö er bara aö grípa þau - sigulegar þingkosningar í Frakklandi 16. mars Árni Snævarr skrifar: Allt bendir nú til þess að kosningar til franska þingsins, sem haldnar verða 16. mars, verði æsispennandi. Bandalag hægrisinnaðrar stjórnar- andstöðu virðist líklegt til að ná meirihluta. Sósíalistaflokkur Mitter- rands forseta hefur sótt talsvert í sig veðrið undanfarna mánuði og virðist nú líklegur til að verða áfram stærsti flokkur þingsins. Það sem gerir kosningabaráttuna jafnspennandi og raun ber vitni er fyrst og fremst að kosningalögum hefur verið breytt og að svo getur farið að í fyrsta skipti í sögu 5. lýð- veldisins verði andstæðingar forseta í meirihluta á þingi. Hlutfallskosning: mistök? Ákvörðun Mitterrands um að breyta kosningalögum í ])á veru að taka upp hlutfallskosningu í stað þess að kjósa í tvöfaldri umferð var mikið gagnrýnd á sínum tíma. Innan flokks Mitterrands var það einkum Michel Rocard landbúnaðarráð- herra sem gekk fram fyrir skjöldu og sagði af sér í mótmælaskyni. Hann sagði að með því að taka upp hlut- fallskosningu væru sósíalistar að viðurkenna ósigur fyrirfram. Skjótt skipast veður í lofti. Á þeim tíma, sem þetta var ákveðið, naut Mitterrand minnsta trausts sem nokkur Frakklandsforseti i sögunni hefur notið. Hlutfallskosning hefði því komið betur út en meirihluta- kosning. Nú hefur Sósíalistaflokkur- inn heldur betur sótt í sig veðrið. Hann nýtur fylgis 27,5-28,5% kjós- enda og stefnir á 30%. Vissulega nægði þetta fylgi ekki til að fá meiri- hluta þingmanna samkvæmt gamla kerfinu en hætt er við að sósíalistar eigi erfiðara með í framtíðinni að komast í stjórn á eigin meirihluta. Þeir fengu samkvæmt gamla kerfinu meirihluta á þinginu út á fylgi 37% kjósenda árið 1981, í kjölfar þess að Mitterrand var kosinn forseti. Stjórnarandstaðan Stjórnarandstæðingar í RPR og UDF hafa gert kosningabandalag í % hlutum kjördæma en annars stað- ar berjast frambjóðendur þeirra um þingsæti. Þeir þurfa að fá á að giska 43% atkvæða til að fá meirihluta á þingi en annars verða þeir að leita samstarfs við aðra flokka hugsan- lega Front National eða sósíalista sjálfa. Og hvað gerist ef ríkisstjórnin verður í minnihluta á þingi eftir kosningar? Hún verður vissulega að segja af sér en Mitterrand forseti getur ráðið miklu um hver foringja stjórnarandstæðinga verður forsæt- isráðherra. Valery Giscard d’Estaing og Jacques Chirac, tveir af þremur helstu foringjum hægrisinnaðra stjórnarandstæðinga, telja óhjá- kvæmilegt að hugsanlegur meiri- hluti þeirra á þingi starfi með forset- anum. Kæmi þá upp sú undariega staða að Mitterrand yrði að skipa einhvern pólitískan andstæðing sinn, kannski Chirac sjálfan, forsæt- isráðherra. Hvernig ættu þeir að skipta á milli sín völdum? I stjórnarskránni, sem de Gaulle lét samþykkja í þjóðarat- kvæðagreiðslu 1959, er ekki kveðið skilmerkilega á um það. Af éinhverj- um ástæðum hafa höfundar stjórnar- skrárinnar ekki haft miklar áhyggj- ur af því að húgsanlegt væri að for- seti hefði ekki meirihluta þings á bak við sig. Ef Mitterrand verður að velja hægri mann sem forsætisráðherra er óhjákvæmilegt að gert verði sam- komulag um hvernig skipta beri völdum. Forsetinn mun líklegast hafa áfram völd á sviði utanríkis- og varnarmála, auk þess að gegna venjulegum störfum þjóðhöfðingja. Þannig gæti þetta ástand varað í tvö ár eða þar til nýjar forsetakosningar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.