Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1986, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR 8. MARS1986.
53
heldur enn í við syni sína, sem hann
hefur kennt að bera virðingu fyrir
líkamanum, sem hann telur helga
gjöf, sem ekki megi misbjóða.
Michael, sonur hans, segist helst
ekki vilja sýna sig í sundskýlu við
hlið hans, hafi hann slegið slöku við
líkamsræktina um hríð og þyngst um
nokkur pund, þvi þá klípi faðir hans
í hann og segi: „Hvaða spik er
þetta?“
Hræðslan við örlög
annarra barna leikara
Ljóst er að viðhorf Kirks til sona
sinna hafa að nokkru leyti mótast
vegna þess hve illa hefur farið fyrir
börnum sumra annarra frægra kvik-
myndaleikara. Mörgum er í fersku
minni er sonur Paul Newman lést
eftir notkun eiturlyfja og leikarar
eins og Ray Milland, Louis Jordan
og fleiri hafa orðið að horfa á eftir
börnum sínum í gröfina. Það er hins
vegar erfitt að finna gullna meðal-
veginn því að mörg leikarabörn lifa
við allsnægtir en í skugga feðranna
eða mæðranna eða þjást af ein-
manaleika. Synir Kirks eru þó í þeim
hópi, sem er reyndar stærri en sumir
halda, sem hafa náð góðri fótfestu í
lífinu.
Ráð frá Joe Kennedy
Eitt sinn lék Kirk golf við Joe
Kennedy, föður Kennedybræðr-
anna, og bað hann þá um að gefa sér
góð ráð um uppeldi. „Gerðu drengina
þína sjálfstæða," sagði Kennedy, „og
þá munu þeir leita til þín síðar“.
Vera má að Kirk hafi tekið þessa
ráðleggingu nokkuð bókstaflega um
tíma, en þó fór allt vel.
Synirnir hafa hins vegar ekki náð
sömu tökum á einkalífinu og starf-
inu. Michael kynntist ungri stúlku,
sem heitir Diandra, og bjuggu þau
fyrst i Beverlyhæðum. Hún kunni
illa við sig þar, að sögn vina þeirra,
og fluttust þau þá til Santa Barbara.
„Allir eiga við vandamál að
stríða,“ segir Kirk um Michael, en
Anne er ekki eins skilningsrík þegar
Diandra er annars vegar. Hún var
af efnafólki í Evrópu komin og átti
erfitt með að aðlagast.
„Diandra fór aftur í skóla,“ segir
Michael, „og gerði sér sinn eigin
heim.“ „1 Evrópu myndu eiginmenn
aldrei leyfa konum sínum að komast
upp með svona hegðan,“ segir Anne.
Hjónin halda þó enn saman, en vera
má að þau flytjist til austurstrandar-
Eirk
Douglas
°g
fjöl-
skylda,
ein
áhrífa-
mesta
ættin
¥
1
Holly-
wood
innar, þar sem Michael átti heima
eftir að foreldrar hans skildu.
Peterskilinn
Peter kvæntist stúlku, sem heitir
Blanche, en hjónabandinu hefur nú
verið slitið. Eric er hins vegar
ókvæntur, en umgengst mikið stúlku
frá New York. Joel hefur aftur á
móti miklar efasemdir um gildi
hjónabands eins og er, „því hvernig
er hægt að hafa eðlilegt samband við
nokkurn þegar maður er að heiman
við gerð kvikmvnda níu mánuði á
ári?“
„Lítið í kringum ykkur,“ segir hins
vegar Kirk. „Einhvers staðar er hún,
stúlkan, sem þið eruð að leita að.“
Kirk á fáa vini
Kirk er, eins og hann segir sjálfur,
maður sem á marga kunningja en
enga raunverulega vini utan fjöl-
skyldunnar. Ástæðan er að nokkru
leyti sú að hann gat ekki einu sinni
treyst föður sínum í æsku og átti því
erfitt með að treysta ókunnugum
eftir það. Þá hefur ýmislegt drifið á
daga hans, svo sem það að einn helsti
ráðgjafi hans í fjármálum hafði af
honum fé á óheiðarlegan hátt. Einn-
ig hefur hann orðið fyrir harðri
gagnrýni eins og þegar slúðurdálka-
höfundurinn Hedda Hopper kallaði
hann kommúnista, er hann reyndi
að ráða Dalton Tumbo til að semja'
fyrir sig kvikmyndahandrit á dögum
McCarthyismans, er ýmsir rithöf-
undar og aðrir voru settir á svartan
lista í Hollywood. Þá gerðist það, er
Kirk fór að eldast, að einn nánasti
vinur hans neitaði að ráða hann í
hlutverk og sagði að hann væri ekki
lengur leikari sem hægt væri að
treysta fyrir hlutverki í dýrum mynd-
um af því að hann drægi ekki nógu
marga áhorfendur að. Fjölskyldan
hefur því að verulegu leyti treyst
stöðu sína með því að snúa bökum
saman og það er ráð sem hefur gefist
vel. „Þeir eru einir gegn öllum,“
hefur verið sagt um Douglasfeðgana,
og afstöðuna vilja margir þakka
Kirk, þar á meðal Michael sem segir
að það hafi verið „þetta brjálaða
rússneska skap“ föður síns sem hafi
verið sterkasta sameiningaraflið.
Hann bætir því hins vegar við kon-
urnar í lífi föður síns, Díana og Anne,
hafi sýnt „afar mikla staðfestu" og
þetta tvennt hafi ráðið úrslitum um
hvaða stefnu líf þeirra feðga tók.
UTBOÐ
m0
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagningu
Snæfellsnesvegar, Grundarfjörður - Mýrar.
(Lengd 2,0 km, fylling og burðarlag 60.000
sprengingar 10.000 m3.)
Verki skal lokið 1 5. ágúst 1 986.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í
Borgarnesi og Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
10. mars nk.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 24. mars. 1 986.
Vegamálastjóri.
Þýð: ÁSG
UTBOÐ
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í undirbyggingu
Djúpvegar - Oshlíð III.
(Lengd 1 760 m, skering 1 25.000 m3.)
Verki skal lokið í síðasta lagi þann 1. september 1 986.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Isafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 10.
mars nk.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 1. apríl 1 986.
Vegamálastjóri.
Þroskaþjálfasköli
íslands
Þroskaþjálfaskóli Islands auglýsir inntöku nemenda
skólaárið 1 986-1 987.
Nemendur skulu hafa lokið stúdentsprófi eða stundað
hliðstætt nám. Heimilt er einnig að viðurkenna annað
nám. Umsækjendur skulu hafa starfað a.m.k. 6 mánuði
með fötluðum.
Umsóknarfresturertil 1 8. apríl nk.
Umsóknareyðublöð eru afhent í skólanum kl. 9-12
alla virka daga. Umsóknir skal senda til ÞSI, pósthólf
5086,105 Reykjavík.
Skólastjóri
Seljum í dag
Saab 900 GL árg. 1983. 4ra dyra, Saab 900 GLS árg. 1982, 3ja dyra,
drapplitur, beinskiptur 5 gíra, ekinn Ijósbiár, sjálfskiptur, ekinn 78 þús.
56 þús. km. Mjög fallegur bill. km.
Saab 99 G2 árg. 1980, 2ja dyra, Saab 900 GL árg. 1980, 5 dyra,
brúnn, beinskiptur, 4ra gira, ekinn rauður, beínskiptur, 4ra gira, ekinn
52 þús. km, útvarp og kassettutæki, 80 þús. km.
mjög fallegur.
Opið laugardag kl. 13—17.
TÖGCUR HF.
UMBOÐ FYFUR SAAB OG SEAT
Bíldshöfða 16, símar 681530 - 83104.