Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1986, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1986, Side 17
61 DV. LAUGARDAGUR 8. MARS1986. Sérstæð sakamál - Sérstæð sakamál •• Fangelsi það á Saipaneyju sem sumir segja að Hvítklæddi maðurinn er prestur á Saipaneyju. Amelia Earhart og Fred Noonan hafi verið í. Hann heitir Jesus Bacha Salas og kveðst um tíma hafa verið i fangaklefa við hliðina á „bandarískri flugkonu". Þessi mynd er tekin áður en hnattflugið hófst i fyrra sinnið. Hún er frá Honolulu, og iengst til vinstri er Paul Mantz, ráðgjafi flugkonunnar, þá hún, en síðan Harry Manning, sem hætti síðar við þátttöku, og loks Fred Noonan. ur komst á málið. Þá hóf Columbia- útvarpsfélagið í San Francisco rann- sókn og gerði fjórum sinnum út leið- angur til Saipaneyju í Maríanaeyja- klasanum og tvisvar til Majurokór- aleyjunnar í Marshalleyjaklasan- um. Nokkur hundruð íbúar Saipan- eyjar voru spurðir spjörunum úr og þá sögðu rúmlega þrjátíu þeirra sögur sem renndu stoðum undir að tveir bandariskir fiugmenn, kona og maður. hefðu verið á Saipan fyrir styrjöldina og dáið þar. Er lög um upplýsingaskyldu tóku gildi í Bandaríkjunum 1968 fengu áhugamenn um málið aðgang að skýrslum sem höfðu verið leynilegar fram til þessa. Þannig hafa nú verið lagðar fram um 20.000 síður um málið hjá sjö bandarískum stjórnardeildum en þó eru enn til skjöl sem ekki hefur fengist heimild til að gera opinber. Á vegum Purduerannsóknar- stofnunarinnar Skjölin leiða í ljós að hugmyndin um hnattflugið varð til í Purdue- rannsóknarstofnuninni við Pur- dueháskóla í Lafayette í Indíana- fvlki. Amelía Earhart hafði verið fyrirlesari við háskólann en stofnun- in hafði beitt sér fyrir „öflun nýrrar þekkingar á flugi með sérstöku tilliti til landvarna". Átti stofnunin um þetta leyti allnáið samstarf við her- málaráðuneytið og flugsveitir land- hersins og flotans. Ekki hrein njósnaferö Skjöl þau sem fyrir liggja virðast ekki gefa til kynna að um hreina njósnaferð hafi verið að ræða þótt ýmsir liafi um tíma talið það líklegt. Hins vegar kemur vmislegt fram sem bendir til þess að Earhart og Noonan hafi stundað það sem nefnt er „hvítar njósnir". Þau voru óbreyttir borgar- ar og fengu tækifæri til að fljúga til staða sem fulltrúar hersins sáu sjald- an eða aldrei. Það sem fyrir augu þeirra bar gat því haft hernaðarlega þýðingu. Lengi hafði legið á því grunur að Japanir hefðu á laun hafið hernaðar- framkvæmdir á nokkrum eyjum sem þeir réðu í Kyrrahafinu þrátt fyrir samning Bandaríkjanna og Japans 1923 um að takmarka mjög slíkar framkvæmdir. Beinar sannanir lágu þó ekki fyrir um það. Mun það hafa verið ein af ástæðunum til þess að bandaríski flotinn hóf samstarf við Pan Americanflugfélagið um þróun stefnumiðunar og smíði stefnuvita á þremur Kyrrahafseyjum. Handtóku Japanir þau? Þótt beinar sannanir liggi ekki fyrir um að Earhart og Noonan hafi lent i höndum Japana eftir nauðlend- ingu þykir það ekki óhugsandi og sumir líta jafnvel þannig á að það sé mjög líklegt. Má í'því sambandi minna á leiðangra Columbiaútvarps- félagsins í San Francisco. Þá er einnig rétt að hafa í huga að árið 1944 frétti Edgar A. Cruise varaaðmíráll hjá túlki á Majuro- kóraleyju að tveir bandarískir flug- menn, maður og kona, hefðu verið fluttir til Marshalleyja 1937. Um sama leyti hitti einn fulltrúa banda- ríska hermálaráðuneytisins, Eugene F. Bogan, innfæddan mann á Marshalleyjum sem sagði sömu sögu. Fjórir fyrrverandi hermenn hafa einnie skvrt frá b\n oA boirhqfi fcne- ið svipaðar upplýsingar í stríðinu. Hafi Japanir komið með bandaríska konu og mann til eyjarinnar Jalui í Marshalleyjaklasanum en farið síðar með þau til Majurokóralevjunnar og Kwajaleineyju, en síðar til Saipan- eyju. Aðalstöðvar japanska hersins á Kyrrahafssvæðinu fyrir heims- styrjöldina og í henni voru á Saip- aneyju. í sumum frásagnanna er sagt að fram hafi komið að konan hafi látist úr blóðkreppusótt en maðurinn verið líflátinn fyrir meint- ar njósnir. Skýrslur íjórmenninganna eru enn leynilegar. Loks er þess að geta að 1964 gáfu tveir menn, sem verið höfðu í land- gönguliði flotans í Kyrrahafinu í stríðinu, Everett Henson Jr. og Bill G. Burks, sig fram og sögðust hafa verið með nokkrum öðrum land- gönguliðum, er þeir hefðu fundið jarðneskar leifar Amelíu Earhart og Freds Noonan á Saipaneyju í júlí 1944. Hefðu þeir fundið þær i ómerktri gröf og komið þeim fyrir í sérstökum hylkjum sem síðan hefðu verið send til Bandaríkjanna. Bandaríski flotinn hefur hvorki vilj- að staðfesta framburð þessara manna né neita honum. Þótt sannanir liggi þannig ekki fyrir um að flugkonan og siglingafræðingur hennar hafi lent í höndum Japaha þá bendir vissulega margt til þess. Ekkert verð- ur hins vegar fullyrt um örlög þessar- ar frægu og vel þokkuðu flugkonu, sem hafði hlotið heimsfrægð, og skip- stjórans, sem hætti lífi sínu í þessu hnattflugi, fyrr en öll skjöl um málið hafa verið lögð fram, og þá því aðeins að þau segi alla söguna. \( VIÐ BJÖÐUM EFTIRTALDA ÞJÓNUSTU: Tjöruþvott, teppa- og sætahreins- un, mótorþvott, mössum bíla, bónun og setjum á rendur. Opið virka daga kl. 8-19, laugardaga kl. 10-16. BÍLEIGENDUR Bón- og þvottastöðin Os, Langholtsvegi 109, s. 688177. LOPI - LOPI Þriggja þráða plötulopi, 10 sauðalitir, að auki rauðir, bláir og grænir litir. Opið frá 8-5 mánudaga til föstu- daga og laugardaga 10-12. Sendum í póstkröfu um landið. ULLARVINNSLAN LOPI SF., Súðarvogi 4,104 Reykjavík. Sími30581. St. Jósefsspítali, Landakoti Lausar stöður Hjúkrunarfræðingar: - Handlækningadeildir. -Lyflækningadeildir. -Svæfingardeild. Sjúkraliðar: - Lyflækningadeildir. - Handlækningadeildir. - Hafnarbúóir. - Barnadeild. Einnig óskast hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar til sumarafleysinga. Boðið er upp á aðlögunarkennslu fyrstu vikurnar. Umsóknir ásamt upplýsingurrj um nám og fyrri störf sendist skrifstofu hjúkrunartörstjóra sem veitir hanari upplýsingar í síma 19600-220-300 frá kl. 08.00-16.00 allavirka daga. Reykjavík 6. mars 1986. Á ÍÞRÓTTAFRÉTTIR HE NNAR Þvð,- 4SG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.