Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1986, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1986, Blaðsíða 26
26 DV. LAUGARDAGUR15. MARS1986. Handknattleikur unglinga - Handknattleikur unglinga - Handknattleikur unglinga Stefnum að enn frekari eflingu handbotta á íslandi - segir Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ Eins og öllum er í fersku minni er heimsmeistarakeppninni i handknatt- leik nvlokið. Meðan keppnin stóð sem hæst og við íslendingar fögnuðum hverjum sigiinum á fætur öðrum tók umsjónarmaður unglingasíðu DV Jón Hjaltalín Magnússon, formann HSl. tali og spurði hann ýmissa spuminga imi mál er varða handknattleik ungl- inga. Fer viðtalið hér á eftir. Hver er stefna HSÍ i uppbvggingu handknattleiks á Islandi eftir HM? ..Það er ljóst að árangur landsliðsins í heimsmeistarakeppninni og í land- sleikjum að undanfömu hefur skapað áhuga hjá almenningi og unglingum um land allt. Það var og til þess ætlast áður en farið var í þetta verkefni. Við höfum ákveðið að efla handbolta á íslandi og leggja meiri áherslu á ” unglingastarfið. bæði innan HSÍ og með aðstoð til félaganna. Þannig höf- um við hugsað okkur að lána þjálfara timabundið og reyna að gera sameig- inleg innkaup á boltum með félögun- um. Einnig komum við til með að hafa samráð við stjómvöld um bygg- ingu íþróttahúsa. Nú eru í byggingu um 30 íþróttahús um allt land og til stendur að byggja 20 til viðbótar. Þannig er framtíðin björt ef rétt er á málum haldið. Á síðastliðnu sumri vomm við með handboltaskóla og er ætlunin að halda áfram með hann og einnig kemur til greina að sameina hann námskeiðum Tölvuskólans. Námskeið fvrir þjálfara yngri flokka verða haldin í ríkari mæli og verður reynt að fá bestu þjálfara til að leið- beina hverju sinni." - Nú kvarta krakkar mikið um að mótahald sé i miklu lamasessi. ..Ég tel að revna verði að auka eftir- lit með mótahaldi. Það mvndi reyna meira á félögin. Ef fjárhagur samband- sins batnar er hægt að auka á manna- hald hjá sambandinu og við það gæfist tírni fyrir starfsmann að sinna þessu." - Hvað um Qölgun á leikjum hjá yngri flokkum? „Persónulega tel ég að besta æfingin fvrir handboltann sé að spila hand- bolta. Þess vegna er lífsnauðsynlegt að fjölga leikjunum. Ég er viss um að þannig mætti auka áhuga krakkanna. Þó þýðir það að aukinn kostnaður verður fýrir félögin vegna fjölgunar ferða milli bæjarfélaga. En stefnt er að því að gera samninga við skipa- og flugfélög um að fá ódýrar ferðir með því að fylla laus sæti. Einnig er að- staða til gistingar mjög bætt og má þar nefna gistiaðstöðu ÍSÍ í Laugardal. Enn fremur er góð gistiaðstaða að Varmá í Mosfellssveit og á Selfossi. Þannig er þetta meira spursmál um framkvæmd heldur en útgjöld fyrir félögin." - Nú kvarta margir þjálfarar og leik- menn yfir því að leyft skuli að taka leikmenn úr umferð í yngri flokkum. Hvaða skoðun hefur þú á því? „Handbolti er taktískur leikur og má líkja honum við hemaðar- eða skáklist. Alsírbúar og Kóreumenn leika. má segja. maður á mann vöm og oft er erfitt að meta hvort verið er að spila 5-1 vörn eða hvort verið er að taka leikmann úr umferð. Þetta ætti fremur að verða til þess að leik- menn fari að hreyfa sig meira án bolta og þannig ættu bæði þjálfarar og leik- menn að snúa sig út úr erfiðleikunum og levsa þessi vandamál." - Nú eru þjálfaramúl félaganna í rniklum ólestri og er mikið um ómenntaða þjálfara. Hver er stefna HSÍ? „Þetta mál hefur verið rætt hjá stjórn HSÍ og stefnan verður sú að allir þeir sem stunda þjálfun og stjóma liðum í keppni eigi að hafa tekið A-stigs námskeið í íþróttum. Uti á landi ú þetta að vera bæði félögunum sjálfum og þjálfurunum í hag. Sumir halda að þeir þurfi ekki að fara á námskeið. En ég tel að alltaf megi læra meira og betur.“ Hvernig er steftiar hvað varðar mótahald? Ert þú hlynntur því að senda megi B-lið í keppni? „Þau félög sem hafa mikinn fjolda unglinga á æfingum eiga að fá að senda fleiri flokka til keppni, sem þýðir reyndar meiri starfsemi hjá HSÍ og mótanefnd auk meiri kostnaðar. Það þarf að virkja foreldra meira en verið hefur, bæði til að starfa við mót og hjálpa til við fjáröfiun." - Nú er mikið um það að ungir leik- menn hætti snemma, hvemig er hægt að spoma við því? í it': Jón Hjaltalín Magnússon, þungur á brún eftir tapleikinn gegn Suður-Kóreu. „Ég vil reyna að gera mót yngri flokkanna veglegri. Þetta reynir á félögin, að þau vandi til undirbúnings eins o'g kostur er. Þarna geta foreldrar komið inn. Einnig vilja foreldrar og ættingjar gjaman koma og fylgjast með bömum sínum og þá verður að vera aðstaða til veitingasölu og úhorf- endastæði. Flest bæjarfélög hafa æskulýðs- og íþróttaráð og það ætti að vera þeim í hag að mót fari fram í íþróttahúsum bæjarfélaganna og að aðstaða til leikjahalds sé góð. Ég hef ákveðna hugmynd um að efla áhuga á handbolta í skólum í samráði við félögin með því að kaupa bolta til að gefa félögum og skólum. Einnig þarf að fjölga mörkum kringum skóla og æskulýðsheimiii. Til að fjúrmagna þetta þarf samráð við bæjaryfirvöld á hverjum stað. I fjáröfluninni, sem verið hefur fyrir HM, hefur ekki verið leitað til bæjar- eða sveitarfélaga og vonumst við til að þau styrki félögin, til dæmis með því að leggja til framlög til bolfttkaupa, setja upp mörk og kosta þjálfara." Hvað finnst þér um þá hugmynd að setja upp handboltabraut við fjöi- brautaskólana? „Ég tel þessa hugmynd góða og út frá sjónarmiði unglinganna sjúlfra gæti þetta örvað námsáhuga margra. Það að koma upp íþróttabraut á ákveðnum sviðum yrði að sjálfisögðu að gera með hliðsjón af framtíðarstörf- um unglinganna. Það þyrfti að athuga hvort áhugi væri fyrir þessu. Þessar brautir gætu ýtt undir unglinga sem stefna að því að gera handbolta að sínu framtíðar- eða hlutastarfi og gera þeim kleift að mennta sig samhliða á öðrum sviðum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.