Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1986, Blaðsíða 44
Hafir þú ábendingu eða vitn-
eskju um frétt - hringdu þá í
síma 687858.
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst, óháð dagblað
LAUGARDAGUR 1 5. MARS 1 986.
Fyrstaleyfi
til að sjá
erlenda sjón-
varpsstöð
-starfsmanni
Hljombæjar
leyfistað
horfa á kristi-
legastoð
Rafeindavirkjar hóta að hætta störfum:
Eurovisionkeppnin
ekki send út í kvöld?
Samgönguráðuneytið gaf í gær út
fyrsta leyfið til einstaklings til að
taka við erlendu sjónvarpi um
gervihnött samkvæmt nýlegri
reglugerð „um storfrækslu jarð-
stöðva fyrir móttöku sjónvarpsefnis
f' _>£ih fjarskiptatungl". Áður hafa
verið gefin út takmörkuð leyfi til
tilraunamóttöku.
Fyrsti leyfishafinn er Þorvaldur
Sigurðsson, starfsmaður Hljómbæj-
ar, en það fyrirtæki kynnti Íslend-
ingum fyrst þennan möguleika ein-
staklinga að taka beint við erlend-
um sjónvarpsstöðvum.
Þorvaldur fékk reyndar mjög
takmarkað leyfi í gær. Honum leyf-
ist aðeins að horfa á eina stöð, New
World, sem sendir út kristilegt efni.
|( Samkvæmt reglugerðinni er leyfi
—**bundið því skilyrði að umsækjandi
hafi aflað sér heimildar rétthafa
hinnar tilteknu sjónvarpsrásar um
afnot hennar. Þorvaldur taldi sig
einnig hafa leyfi til að horfa á Sky
Chanriel en samgönguráðuneytið
var ósammála. Ráðuneytið vill að
Þorvaldur komi með leyfi stílað á
eigin nafn. Þorvaldur lagði fram
skeyti frá Sky Channei sem stílað
er á Luxor. Hljómbær hefur umboð
fyrir Luxor.
Þorvaldur vonast til að fá á eigin
nafn leyfi Sky Channel fljótlega.
Reyndar gerir hann sér einnig vonir
um að fá síðar á árinu leyfi frá
stöðvum eins og SAT-1, Film-Net
og Music Box.
Samgönguráðuneytið hefur
• ákveðið leyfisgjöld. Leyfi til ein-
staklinga kostar 5.CXX) krónur. Leyfi
til að taka við og dreifa sjónvarps-
efni innanhúss kostar 6.000 krónur.
Af þessum gjöldum fara 3.000 krón-
ur til Fósts og síma seni eftirlits-
gjald. -KMU
T
RAUSTIR
MENN
25050
SSnDIBiLPSTÖÐin
LOKI
...og svo veröur gamla
krónan aftur tekin upp.
Allt bendir nú til þess að rafeinda-
virkjar hjá Pósti og síma og Ríkisút-
varpinu láti verða af uppsögnum
sem gengu í gildi um áramót en var
frestað vegna umfjöllunar félags-
dóms um lögmæti verkfalls sem
boðað hafði verið 2. janúar.
í fyrradag dæmdi félagsdómur
verkafallsboðunina ólöglega. Um
120 rafeindavirkjar sögðu sig úr
BSRB og gengu í Sveinafélag raf-
eindavirkja í fyrra. Þeir krefjast
þess að ríkið semji við félagið um
kaup og kjör þeirra. Á þetta hefur
ekki verið fallist.
Rafeindavirkjar óskuðu eftir
svörum frá ríkinu í gær og fengu
þau svör að fundað yrði með þeim
á mánudag. Svo virðist sem þeir
sætti sig ekki við þetta svar.
„Við erum hættir og við teljum
þetta vera aðför að verkalýðsfélög-
um í heild,“ sagði Leó Ingólfsson,
varaformaður Sveinafélags raf-
eindavirkja.
Ef svo fer að rafeindavirkjar mæta
ekki til vinnu lamast bæði Póstur
og sími og Ríkisútvarpið fljótlega.
Reyndar hafa ekki allir rafeinda-
virkjar þessara stofnana gengið í
Fjöldi fólks kom saman á Lækjartorgi síðdegis í gær til að minnast Olofs Palme. Hér.
sjáum við forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, og Guðlaug Þorvaldsson fylgjast
með athöfninni. Forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson, Kjartan Jóhannsson al-
þingismaður og Gunnar Axel, sendiherra Svía, fluttu minningarávörp. Dv-myndGVA
Blíða
fyrir
norðan
Sunnudagsveðrið verður með
mjög svipuðu móti og í dag, suðlæg
átt um allt land og úrkomusvæði
um allt suðvestan- og sunnanvert
landið.
Vindhraðinn verður á bilinu 4-5
vindstig með hægari vindi fyrir
norðan. Veður á sunnudag verður
tiltölulega hlýtt um allt iand, 2-3
stiga hiti fyrir sunnan og vestan en
4-5 stig fyrir norðan og austan.
Alskýjað verður á sunnan- og
vestanverðu landinu en bjartara
fyrirnorðan. -S.Konn.
Sveinafélagið né sagt upp störfum.
„Það er ljóst að Eurovision-
keppnin er í stórhættu ef rafeinda-
virkjarnir mæta ekki til vinnu. Við
getum líklega ekki ráðið við hana
ef þeir mæta ekki,“ sagði Eyjólfur
Valdimarsson, yfirmaður tækni-
deildar á sjónvarpinu, í viðtali við
DV.
-APH
Bunaðarbankinn
og Útvegsbankinn:
Gamla
gjaldskráin
tekin upp
að nýju
„Við höfum ákveðið að taka upp
að nýju gömlu gjaldskrána frá 17.
júlí 1985 í næstu viku,“ sagði Stefán
Hilmarsson, bankastjóri Búnaðar-
banka Íslands, við DV. i gær ákvað
bankastjóm Útvegsbankans einnig
að taka upp gömlu gjaldskrá sína
frá því í júlí ú síðasta ári.
„Eg vil taka það skýrt fram að
þessi ákvörðun er ekki tekin vegna
hótana viðskiptaráðhcrra í dag-
blöðum né raka hans, sem hafa
annaðhvort verið engin rök eða
röng, heldur gemtn við þetta vegna
almennings og viðskiptavina bank-
ans,“ sagði Stefán.
Hann kvaðst ver óánægður með
þau vinnubrögð sem beitt hefði
verið gagnvart Búnaðarbankanum
í þessu máli. „Mér þykja þau vinnu-
brögð allt að því ósæmileg að vera
með hótanir i okkar garð í blöðun-
um. Ég skil ekki hverjum það á að
þjóna."
Fram kom hjá Stefáni að Búnað-
arbankinn tók ákvörðunina tun
gjaldskrárhækkunina 24. febrúar,
en viku áður hafði Iðnaðarbankinn
hækkað sína gjaldskrá.
-ESJ.
Arnarflugs-
þotu breytt
í hervél
Arnarflug hefur selt Boeing
707-vömflutningaþotu sína. Kaup-
andi er Boeing-verksnriðjumar sem
hyggjast breyta þotunni í hervél,
hugsanlega AWACS-þotu.
Amarflugsmenn fá að taka ýmsan
búnað úr þotunni áður en hún verð-
ur afhent hinum nýja eiganda 30.
apríl. Fær Amarflug 67 milljónir
króna fyrir þotuna, að sögn Sig-
hvats Blöndahl, blaðafulltrúa fé-
lagsins.
Sala þotunnar er liður i fjárhags-
legri viðreisn Arnarflugs. -KMU