Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1986, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR12. APRÍL1986.
3
Frétlir Fréttir
Krabbameins-
sjúklingar í vanda
Fólk sem þjáist af krabbameini á í
fá hús að venda með sín sálrænu og
félagslegu vandamál. Þetta á að vísu
~ ekki við um alla krabbameinssjúkl-
inga.
Þeir sem eru með krabbamein í
hálsi hafa myndað með sér samtökin
Ný rödd, þeir sem eru með sjúk-
dóminn í ristli og er svokallað
pokafólk hafa myndað samtök og
einnig hafa konur stofnað Samhjálp
kvenna, samtök kvenna með brjóst-
krabba. Þá hafa foreldrar bama með
krabbamein stofnað samtök.
Öll þessi samtök stefna að þvi að
styðja og styrkja sína meðlimi og
véita þeim félagslega og sálræna hjálp
í angist þeirra og örvæntingu.
„Þeir sem em svo óheppnir að fá
annað krabbamein en í háls, ristil og
brjóst eiga í engin hús að venda. Það
er sorgleg staðreynd. Þjóðarátakið
gegn krabbameini, sem fram fer um
helgina, gerir okkur vonandi kleift
að bæta ástandið. Ég vil að í framtíð-
inni skapist sú aðstaða hér í Krabba-
meinsfélaginu að sjúklingarnir geti
leitað til okkar með sín vandamál,
af hvaða tegund sem þau eru,“ sagði
Snorri Ingimarsson, forstjóri Krabba-
meinsfélags íslands.
Krabbameinið hálfgerð holds-
veiki í fjölskyldunni
Að sögn Snorra eru það ekki bara
sjúklingarnir sjálfir sem eiga erfitt,
heldur einnig ástvinir og ættingjar.
„Það fólk þarf líka að styrkja. Stund-
um hringja ættmenn til okkar í
örvæntingu sinni og vita ekkert
hvernig þeir eiga að umgangast
krabbameinssjúklinginn. Einu sinni
var hringt og spurt hvort sótthreinsa
þyrfti disk krabbameinssjúklings eftir
notkun," sagði Snorri.
Snorri sagðist vel skilja þá angist
og hræðslu sem grípur krabbameins-
sjúklinga og ættmenn þeirra. „Þeir
sem em með krabbamein einangrast
oft frá íjölskyldu sinni, þeir verða
nokkurs konar holdsveiki í fjölskyld-
unni.
Það er vonlaust fyrir krabbameins-
sjúklinga að beijast fyrir betri að-
stöðu, fjárhagslegri og sálrænni, einir
sér. Eðlilegast væri að Krabbameins-
félagið styddi þá og styrkti," sagði
Snorri. -KB
Mývatn:
Dorgveiðikeppni í fyrsta sinn
Ákveðið hefur verið að efna til
dorgveiðikeppni í Mývatni í dag laug-
ardag, 12. apríl. Verður það í fyrsta
sinn sem slík keppni fer fram hér á
landi.
Upphaflega hafði verið ákveðið að
dorgveiðikeppnin færi fram 29. mars
sl. Þá reyndist ekki unnt að láta menn
reyna með sér í íþróttinni vegna
snjóalaga á ísnum. En nú á sumsé að
bæta úr þessu og hrinda keppninni í
framkvæmd. Hún mun standa frá kl.
11 í dag til kl. 15.
SNÆFELLS
JÖKULS
JIS
5 Lftrar
SKOLAÐUR VIKUR
WASHED PUMICE
Blómavikur
til blöndunar í pottamold
• Kornastærð 4—20 mm
• Blöndunarhlutfall 40% vikur, 60% mold
• Eykur loftstreymi að rótunum
• Bætir súran jaröveg
• Tvöfaldar þyngd sína með vatnsdrægni
• Mlðlar vatnl út f þurrki
v»v>
Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sfmi 10600
DAGHVERN
SENDIR HÚN SILLA
FJÖLDA ÍSLENDINGA
ÚR LANDI
Á hverjum degi kemur fjöldi íslendinga í söluskrifstofuna Lækjargötu, hver með sfnar
sérþarfir. Allir vilja þeir fá bestu þjónustu sem völ er á. Sillu og samstarfsmönnum hennar
finnstgaman í vinnunni. Af langri reynslu og fagþekkingu leysa þau hvers manns vanda.
Og Sillu líkar vel við fólk sem vill fara eigin leiðir!
Söluskrifstofur Flugleiða eru ferðaskrifstofur ótæmandi möguleika. í ár er framboðið
meira en nokkru sinni áður. Við fljúgum til 21 viðkomustaðar í 15 löndum. Getum boðið
sumarhús í Þýskalandi og Austurríki, flug og bíl í 7 Evrópulöndum og húsbáta í Englandi,
Skotlandi, írlandi og Frakklandi. Þó er fátt eitt talið því við getum pantað framhaldsflug,
bílaleigubíla og hótel hvar sem er í heiminum. Næst þegar þú ætlar úr landi, komdu við
hjá Sillu. Þú kemur örugglega til baka.
Síminn á söluskrifstofunni í Lækjargötu er 690100
FLUGLEIDIR JS
ÓSA/SlA