Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1986, Blaðsíða 44
LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1986.
Bankarnir
fá upp
í 30%
víxilvexti
Vextir á almennum víxlum í
bankakerfinu eru nú 15,25% á ári
og 15,5% á almennum skuldabréf-
um. Þessir vextir gilda þó aðeins
varðandi lán sem tekin eni beint.
Sé um að ræða sölu á víxlum og
skuldabréfum á annan skuldara eru
teknir allt aðrir vextir. Þá gildir
svokallað kaupgengi sem breytist
jafnvel daglega. I gær jafngilti
kaupgengi í einum bankanna 30’’í,
ársvöxtum af 100.000 króna víxli til
45 daga.
Tveir bankar, Búnaðarbankinn
og Landsbankinn, kaupa ekki við-
skiptavíxla og bréf á kaupgengi,
heldur taka þeir 19,5% ársvexti af
víxlunum og 20% af skuldabréfun-
um. Þama er komin þriðja útgáfan
af vaxtatöku vegna þessara penin-
gapappíra. Vaxtamunurinn er
gríðarlegur og eins og sjá má þurfa
menn að greiða nær tvöfalda al-
menna víxilvexti vegna viðskipta-
víxla í öðrum en tveim fyrrnefndu
bönkunum og einnig í stærstu
sparisjóðunum.
bað er þannig engin smásporsla
sem bankakerfið hefur upp úr þess-
um víxlaviðskiptum á meðan verð-
lag stendur þvi sem næst í stað.
Aftur á móti gefur það augaleið að
svo ógnarlegur fjármagnskostnaður
i viðskiptum hlýtur að ýta undir það
að verðlag hækki svo um munar.
í viðskiptalífinu benda menn jafh-
framt á að sumir bankamir hafa
samið í stórum stíl við lántakendur
um svokallaða víxlakvóta gegn því
að lántakendumir útvegi á móti
jafnvel nokkru hærrí innlán á al-
mennar sparisjóðsbækur. Næstum
10 milljarðar króna standa inni á
- **siíkum bókum svo að kvótabækum-
ar geyma vafalaust einhverja millj-
arða. Bankakerfið greiðir nú aðeins
8-8,5% ársvexti á þessar innstæður
á sama tíma og það tekur allt upp
í 30% ársvexti af viðskiptapappí-
rum. -HERB
Geriö verðsamanburö
og pantiö
úr
LOKI
Þetta ku heita
að fara huldu höfði!
Erlendur Einarsson, forstjóri Sambandsins, ber plastmöppu fyrir andlit sitt er hann gengur úr dómsalnum. Verjandi hans,
Jón Finnsson, fer á undan. í pakkanum eru skjöl kaffibaunamálsins. Dv-mynd kae.
Eriendur reyndi að
hylja andlit sitt
kaffibaunamálið þingfest í Sakadómi
Erlendur Einarsson, forstjóri
Sambandsins, reyndi sem best hann
gat að forðast myndavél ljósmynd-
ara DV er kaffibaunamálið var
þingfest fyrir Sakadómi Reykjavík-
ur klukkan tíu í gærmorgun.
Ákæmskjalið var þar formlega birt
hinum ákærðu.
Um leið og DV-menn birtust í for-
stofu dómsalarins skömmu fyrir
klukkan tíu, þar sem hinir ákærðu
biðu þess að dómþing yrði sett, sneri
Erlendur sér undan myndavélinni.
Ekki fékkst leyfi til að mynda í
réttarsalnum en þegar Erlendur
kom þaðan út huldi hann andlit sitt
með plastmöppu.
Fjórir af fimm sakborningum voru
viðstaddir þingfestinguná, auk Er-
lends, þeir Hjalti Pálsson, Gísli
Theódórsson og Amór Valgeirsson.
Sigurður Ámi Sigurðsson var er-
lendis.
Verjendur þriggja vom einnig í
salnum, hæstaréttarlögmennimir
Jón Finnsson, Ragnar Aðalsteins-
son og Guðmundur Ingvi Sigurðs-
son.
Af ákæruvaldsins hálfu sækir
málið Jónatan Sveinsson. Dóms-
forseti er Sverrir Einarsson en
meðdómendur tveir löggiltir endur-
skoðendur, Sigurður Stefánsson og
Jón Þ. Hilmarsson.
Næsta dómþing verður ekki fyrr
en í september, nánar tiltekið þann
fimmta. Þá á Erlendur að mæta til
yfirheyrslu. -KMU
- sjá nánar bls. 2
Veðrið á morgun:
Síðbúið
páska-
hret
Um helgina er gert ráð fyrir norð-
austanátt um allt land og snjókomu
fyrir norðan. Það léttir smám saman
til á Suðurlandi en veður fer kóln-
andi.
-A.Bj.
Annað verkfall
um næstu helgi
„Það segir sína sögu að viðræð-
umar strönduðu þegar við kröfð-
umst þess að kjör okkar yrðu ekki
verri en Sóknarkvenna. Það er nú
ekki stórmannlegt að láta stranda
á því,“ sagði Sigurður Guðmunds-
son, formaður Félags starfsfólks í
veitingahúsum, í viðtali við DV.
í gær fóm félagsmenn í sólar-
hringsverkfall, 500 til 600 að tölu.
Þeir hafa boðað til annars verkfalls
um næstu helgi. Það á að standa
yfir í tvo sólarhringa.
Ófaglært starfsfólk í veitingahúsum
hefur m.a. krafist þess að lágmarks-
laun verði 25 þúsund krónur. -APH