Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1986, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1986, Blaðsíða 19
DV. LAUGARDAGUR12. APRlL 1986. 19 FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTAN Austurstræti 17, III. hæð, s.26278 „Við erum hér að kynna fólk fyr- ir framtíðina og kynna hvað við stöndum fyrir. Andstæðingar okk- ar vilja kjósa um menn en við um málefni," sagði Bjami P. Magnús- son, efsti maður á framboðslista Alþýðuflokksins, er hann ávarpið fundarmenn á fyrsta formlega kosningafundinum í kosningabar- áttunni sem nú er að hefjast. Fundurinn var haldinn á veit- ingastaðnum Sprengisandi. Tæp 200 manns mættu til að hlýða á frambjóðendur flokksins. Margir máttarstólpar flokksins voru mætt- ir. Hannibal Valdimarsson var meðal þeirra. Einnig voru þarna mættir Magnús H. Magnússon, fyrrverandi ráðherra flokksins, Bjarni Guðnason, fyrrverandi al- þingismaður og svo að sjálfsögðu formaðurinn, Jón Baldvin Hannib- alsson. Kaupleiguíbúðir Alþýðuflokkurinn hefur hug á því að gjörbreyta húsnæðismálum hér á landi. Lögð hafa verið fram fjölmörg þingmál til að leggja áherslu á þetta. Eitt þessara mála fjallar um kaupleiguíbúðir. Ragn- heiður Björk Guðmundsdóttir, sem skipar 3. sæti listans, gerði þetta að umræðuefni. Hún sagði að nú væri svo komið að fjölmargir væri knúðir til að kaupa sér húsnæði þó þeir hefðu ekki bolmagn til þess. Kaupleiguíbúðir væri fyrirkomu- lag sem vert væri að íhuga. Hún nefhdi dæmi um 2,3 milljóna króna íbúð. Hana væri hægt að eignast á 30 árum með þvi að greiða mánað- arlega 6.754 krónur. Þetta fyrirkomulag gerir ráð fyrir að Húsnæðisstofhun láni um 80% af byggingarkostnaði og viðkom- Kosningaslagurinn hafinn: fiskbúð. bifreiðaverkstæði, bilamálun, bjórpubb, pylsuvagn, prentsmiðjur, kjötvinnsla, harðfiskverkun og -sala, ryðvarnarskáli, matvöruverslun með kjötvinnslu, óskast strax, bakari, snyrtistofa, þungavinnuvólar: t.d. jarð- ýtur, payloader, o.fl., Vegna mikillar eftirspurnar getum við bætt við okkur ýmsum fyrirtækjum á söluskrá. Opið alla daga frá kl. 9 til 17 og laugardaga frá kl. 9 til 16. Sölumenn: Magnús Sigurjónsson hs. 79542 Birgir Þorvaldsson hs. 15299. Hannibal Valdimarsson og eiginkona hans, Sólveig Ólafsdóttir. Til sölu eru nú þegar eftir- talin fyrirtæki: •yndís Schram sagði að það hefði myndast djúp á milli fátækra og ríkra lorginni. DV-mynd KAE Vínveitingastaðir, barnafataverslanir, vefnaðarvöruverslanir, fataverslanir, videoleigur, sjoppur, kjörbúðir með kvöldsöluleyfi, kjötverslanir, matvöru- verslanir með videoleigum, bygginga- vöruverslanir, heildsölur margs konar, Oddaaðstaða Bjami P. Magnússon lagði áherslu á að Alþýðuflokkurinn gæti náð oddaaðstöðu í borgar- stjórn. Ef enginn einn flokkur næði hreinum meirihluta væri nóg fyrir Alþýðuflokkinn að ná inn 2 til 3 borgarfulltrúum. Til þess að svo gæti orðið yrðu allir jafnaðarmenn að styðja flokkinn. Flokknum hefði áður tekist að sýna fram á mikið fylgi í skoðanakönnunum. Það væri ekkert því til fyrirstöðu að ná 30% fylgi núna. „Þá á ég einnig við stuðning frá Bandalagi jafnað- armanna, því öll erum við jafnað- armenn. Við eigum möguleika á því að verða sterkt afl,“ sagði Bjarni. Bjarni benti einnig á að jafnræði og lýðræði væri í fyrirrúmi. Á lista flokksins væri skiptingin milli kynjanna jöfn. Einnig væri öllum stuðningsmönnum flokksins boðið til að mæta á fundi á næstunni til að móta stefnu flokksins í borgar- málum. Djúp á milli hinna ríku og fá- tæku „Nýlega voru vegfarendur spurð- ir um borgarmálin í sjónvarps- þætti. Það kom í ljós að fáir höfðu svör á reiðum höndum. Svo virðist sem fólk setji ekki samhengi á milli lífskjara og stjómunar í landinu," sagði Bryndís Schram, sem skipar annað sæti á lista flokksins. Hún gerði að umræðuefni að fólk yrði að íhuga hverjir stjómuðu landinu og borginni því þeir hefðu stöðugt áhrif á líf fólks frá vöggu til grafar. Reyndar talaði fólk úti á landi um velsæld í Reykjavík. Það væri vissulega rétt. Hér væri verið að byggja verslunarhallir og næg atvinna. En það væri einnig annað líf. Heilsulaust fólk, ein- stæðar mæður og aldraðir lifðu ekki við góð kjör. Það væri komið djúp á milli hinna ríku og fátæku. Á þessu þyrfti að taka. Auka þyrfti samhjálp í þjóðfélaginu. Jafnaðar- mennskan væri rétti valkosturinn í þeim efnum. Bryndís fjallaði einnig ítarlega um nýja stefnu í húsnæðismálum aldraðra og ungra. Nú væri svo komið að eldra fólki reyndist erfitt að losna úr sínu húsnæði til að komast yfir í þjónustuíbúðir. Þetta mætti leysa með því að veita ungu fólki lán frá Húsnæðisstofnun, sem um nýbyggingarlán væri að ræða, til að kaupa húsnæðið af eldra fólk- inu. Það gæti síðan keypt sér búseturétt í þjónustuíbúðum eftir ákveðnum reglum. Fíkniefnavandamáiið Halldór Jónsson læknir, sem skipar 5. sætið á lista flokksins, gerði fíkniefnavandamálið að um- ræðuefni. Hann sagði að líkur væru á því að þetta vandamál ætti eftir að stækka á næstu ámm. Sér- staklega ætti það eftir að aukast í Reykjavík. Á þessu máli yrðu borg- aryfirvöld að taka með festu. fátækt. Hér væri einhver maðkur í mysunni því þjóðartekjur hér væm meðal þeirra sem hæstar ger- ast. Skýringin á þessu væri auðvit- að sú að ójöfnuðurinn væri mikill og blasti við hvar sem á væri litið. Hér væri fólk sem vissi ekki aura sinna tal á meðan lágtekjufólkið ætti ekki fyrir nauðþurftum. Samt væri það þetta fólk sem legði mest til í formi skatta. „Einstæðar mæð- ur geta ekki sinnt börnum sínum og gamla fólkið á ekki til hnífs og skeiðar," sagði Kristín. „Pening- arnir eru til en skipting kökunnar er bara ekki réttlát." andi sveitarfélag 20%. „Þetta markar tímamót í húsnæðismálum og gerir okkur kleift að koma þaki yfir höfuðið,“ sagði Ragnheiður. Breytum hrakspánum í lok fundarins flutti formaður flokksins, Jón Baldvin Hannibals- son, hvatningarorð. Hann sagði að lykilatriðið væri að flokkurinn kæmist í oddaaðstöðu í borgar- stjórn. Nú væru 49 dagar til kosninga. Þá daga ætti að nota til að láta allar hrakspár um fylgi flokksins verða sér til skammar. -APH Fátækt þjóðarskömm Kristín Arnalds kennari og 4. mað- ur á lista sagði að það væri þjóðar- skömm að hér á landi væri til Magnús H. Magnússon og Jón Baldvin mættu á fundinn. Alþýðuflokkurinn stefnir að oddaaðstöðu í borgarsQóm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.