Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1986, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1986, Qupperneq 9
DV. LAUGARDAGUR12. APRlL 1986. 9 Ferðamál Ferðamál Ferðamál Á PUTTANUM UM EVRÓPU - ódýrasti ferðamátinn Fólk hefur aldrei þurft á leiðbein- ingum að halda um það hvemig það eigi að haga sér við að eyða sem mestum peningum, flestir komast yfir slíkt hjálparlaust. Ferðir sem miðast við að ferðalangurinn hafi fremur þröngan {járhag njóta nú vaxandi vinsælda enda má með út- sjónarsemi ferðast í langan tíma vítt og breitt um heiminn fyrir sama verð og þriggja vikna ferð á sólarströnd kostar. Að ferðast ódýrt gerir ákveðnai' kröfur til ferðalangsins. Hann verð- ur m.a. að vera fær um og viljugur til að ferðast sjálfstætt og vera sí- fellt vakandi fyrir leiðum til að draga úr ferðakostnaði, velja alltaf ódýr- asta ferðamátann, ódýrasta gistimá- tann, ódýrasta matinn og loka augunum þegar gengið er fram hjá dýrum verslunum, veitingastöðum og 5 stjömu hótelum. í staðinn nýtur hann ánægjunnar við að geta ferð- ast og flakkað á milli landa að eigin geðþótta og sjá og upplifa hluti sem hinn venjulegi túrhestur kemst aldr- ei í snertingu við. Ódýrast er auðvitað puttaferðalagið og í bók, sem sérstaklega er ætluð til upplýs- ingar fyrir þá sem hyggja á slíkt ferðalag í Evrópu er áætlaður kostn- aðurinn við slíkt ferðalag. Minnsti kostnaðurinn er hjá þeim sem taka með sér tjald og sofa alltaf undir berum himni. Svona gæti kostnað- aráætlunin litið út: Gisting ................... 0,- Aðalmáltíð, afgangur notaður í morgunverð ....148,50 Tóbak og/eða kaffi ........30,- 178,50 pr. dag eða 1247,- á viku Við þessa upphæð bætast svo 535;- krónur fyrir fargjöldum, lestar- og ferjuferðum. Samkvæmt kostnaðaráætlun Ferða- síðunnar er hægt að ferðast um fyrir 1.782 krónur á viku með fmmstæð- asta ferðamátanum, en fyrir 6.549 krónur á viku með því að leyfa sér svolítil þægindi. Gisting á farfuglaheimilum og ódýrum gistiheimilum er einnig ódýr og gengur vel fyrir þá sem vilja svo- lítið meiri þægindi en tjaldlifhaður býður upp á. Þessir útreikningar gera þó ráð fyrir að ferðalangurinn sofi undir berum himni þegar tæki- færi er til þess í góðu veðri, en leiti í hús þegar illa viðrar. Gisting ................ 207,- Aðalmáltíð ............. 207,- Morgunverður ............. 30,- Tóbak og/eða kaffi ....... 59,- 503,- pr. dag eða 3.521,- á viku. Við þessa upphæð bætast svo 1.175,- fyrir fargjöldum og skoðunar- ferðum. Þriðja leiðin er auðvitað sú besta og þægilegasta, ef þú hefur efni á henni. En hér er gert ráð fyrir að þú gistir á hótelum í ódýrari kantin- um og hafir efni á að kaupa þér eina góða máltíð á dag á ódýrum mat- sölustað. Þannig ertu eftir sem áður algjörlega sjálfráður hvemig þú hagar ferðalaginu en losnar við óþægindi sem óhjákvæmilega verða af því að vera i mánaðartjaldútilegu eða deila svefnplássi með mörgum á farfuglaheimili. Gisting ...................445,- Aðalmáltíð ............... 237,- Morgunverður (imiifalinn eða ávextir) .. 30,- Tóbak og/eða kaffi ........ 59,- 772,- pr. dag eða 5.404,- á viku. Við þessa upphæð bætist svo 1. 145,- í fargjöld og annan kostnað við að gera ferðina ánægjulega. Hér á landi em seld tvenns konar afsláttarkort sem koma sér mjög vel þegar ferðast á ódýrt. Annars vegar er það stúdentakort sem kostar 200 krónur og fæst keypt hjá Ferðaskrif- stofu stúdenta, en gegn framvisun slíks skírteinis fæst ýmiss konar af- sláttur af fargjöldum og aðgangseyri að söfhum o.fl. Sá galli er á gjöf Njarðar að einungis skólafólk getur keypt slík kort, en til er önnur út- gáfa sem allir yngri en 25 ára geta notað og veitir svipaðan afslátt. Annað nauðsynlegt afsláttarkort er alþjóðlegt farfuglakort sem veitir handhafa aðgang að farfuglaheimil- um um allan heim, en þau nálgast nú töluna 5200. Þetta kost kostar 600 krónur og veitir einnig 5-10% af- slátt af fargjöldum og aðgangseyri að ýmsum stöðum. Um bæði kortin gildir að best borgar sig að veifa þeim sem mest, því maður veit aldrei hvar hægt er að spara sér dýrmætan farareyri með afslætti af þjónustu og vöru. -S.Konn. Kostaboð flugfélaganna finnast á jörðu niðri Farþegar í pólarflugi SAS frá Tokýó koma til Kaupmannahafnar um sex- leytið í morgunsárið. Þar tekur lúxusbíll á móti þeim og flytur þá á Hótel Skandinaviu þar sem þeim er boðið í sánabað með nuddi og síðan borða þeir dæmigerðan danskan morgunverð. Tími er til þess að slappa af og jafnvel halla sér um stund ef þess er óskað. Síðan er viðkomandi ekið aftur í lúxusbílnum út á flugvöll f tæka tíð til að ná flugvélinni til Lon- don kl. 09.40. Vélin lendir í London kl. 10.30 og farþegamir eru úthvíldir og vel fyrirkaliaðir. í beinu flugi frá Tokýó koma far- þegamir hins vegar til London kl. 05.55 sem þykir alls staðar óguðlegur lendingar- eða brottfarartími. Frá þessu kostaboði SAS og raunar fleirum er sagt frá í grein í mjög við- lesnu erlendu dagblaði. Greinin nefriist Kostaboð flugfélaganna finnast á jörðu niðri. Sagt er frá ýmsum kostaboðum sem flugfarþegum er boðið upp á á hinum ýmsu flugleiðum. En, segir í grein- inni, mestu kostaboðin er þó að finna hjá þeim flugfélögum sem flytja far- þega milli tveggja erlendra flughafna með viðdvöl í heimalandi flugfélags- ins, eins og t.d. með Flugleiðum á leiðinni Inndon Reykjavík New York eða með KLM á leiðinni Manc- hester-Schiphol-Singapore. Síðan segir: „Skemmtilegur ferða- máti er að fljúga til New York frá London með Flugleiðum og notfæra sér 24 klst. viðdvöl í Reykjavík. Þetta er jafnvel enn betra þegar komið er frá New York. Á austurleið er komið til Reykjavík- ur um 7 árdegis," segir í greininni. „Þá er hægt að byrja á þvi að fá sér sund- sprett i náttúrlega upphitaðri sund- laug hótelsins, snæða morgunverð og hvíla sig fram að hádegi. Þá má fara í búðarferð þar sem hægt er að gera rífandi góð kaup í ullarfatnaði og Spánverjar búast við mikilli aukn- ingu ferðamanna í ár. Þeir eiga von á 45 milljónum ferðamanna. I fyrra tóku þeir á móti 43 milljónum ferðamanna, samkvæmt upplýsingum frá ferða- málayfirvöldum á Spáni. Yfirvöld á Spáni hafa ráðið átta þúsund nýja öryggisverði sem eiga að gæta ferðamanna í Miðjarðarhafs- i iTé ■ Fi 'ánm I ti i skreppa í skoðunarferð að heitum hverum. Möguleiki er á að fara til London síðdegis eða halda kyrru fyrir um nóttina og fara næsta rnorgun." Við gleðjumst alltaf þegar fjallað er um „okkar fólk“ á jákvæðan hátt í erlendum blöðum og íslensk fyrirtæki eru talin upp sem jafnokar erlendra risafyrirtækja eins og t.d. hollenska flugfélagsins KLM. -A.Bj. borgum landsins fyrir hugsanlegum sprengjuárásum baska. Samkvæmt fréttastofu Reuters sprengdu hryðjuverkamenn baska nítján sprengjur á spönskum sumar- dvalarstöðum á sl. sumri. Sprenging- amar ollu eignatjóni en ekki slysum á fólki. ______‘Mt'1----------------- Fleiri ferðamenn til Spánar Svæðisstjórn málefna fatlaðra Norðurlandi eystra Vistheimilið Sólborg ÞROSKAÞJÁLFAR! Laus staða deildarstjóra frá 1. júní. Lausar stöður deildarþroskaþjálfa og þroskaþjálfa á deildum. Upplýsingar veittar í síma 96-21755 virka daga frá 10-16. Verið velkomnir norður, þroskaþjálfar. Forstöðumaður. j», SELJUM NÝJA f| OG NOTAÐA ( W BÍLA Tegund Árg. BMW 520i automatic 1984 BMW518 1984 BMW518 1982 BMW323Í 1981 318i ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ 1982 BMW 316 ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ 1980 BMW315 1982 Renault20TL 1977 RenaultTraffic 1984 Renault4Van 1982 Opið laugardag 1 —5. KOMIÐ SKOÐIÐ OG REYNIÐ VIÐSKIPTIN ^ KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 686633/^^^

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.