Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1986, Blaðsíða 18
18
DV. LAUGARDAGUR12. APRÍL1986.
Rokkspildan Rokkspildan Rokkspildan Rokkspildan
MT- ekki Menntaskóli Tálkna-
fjarðar heldur skammstöfun músík-
tilrauna árið 1986. Tilraunir þessar
eru nú haldnar í fjórða sinn og hefúr
líklega aldrei verið jafnveglega að
þeim staðið.
Þar ræður mestu um að Ríkisút-
varpið hefur tekið keppnina upp á
arma sína. Rás tvö er að þessu sinni
annar framkvæmdaaðalinn og hafa
starfsmenn stöðvarinnar verið iðnir
við að kynna þessar tónlistartilraun-
ir. Morgunþátturinn á fimmtudaginn
var til dæmis svo að segja undirlagð-
ur fréttum af keppninni. Skiptir engu
þó að annar stjómandi þáttarins sé
jafnframt kynnir á tilraunakvöldun-
um. Vel gert.
Holdsveikigrýlan
Eitt fer þó ægilega í taugamar á
mér. Það er klisjan „lifandi tónlist".
Þetta orðasamband hefur heyrst í
ýmsum útgáfúm í gegnum árin og nú
síðast sem stuðningshróp: „Styðjum
íslenska tónlist!"
Það em kannski ekki orðin sjálf
sem taka hvað mest á taugamar held-
ur hvemig þau em notuð. Þetta
hljómar eins og neyðaróp: „Styðjum
holdsveika til sjálfsbjargar" eða eitt-
hvað þvíumlíkt. íslensk popptónlist á
að vera sjálfsagður hlutur. Og þó hún
sé það ekki er alger óþarfi að gera
fyrirbærið að einhverri grýlu. Með
því næst enginn árangur. Eg endur-
tek: ENGINN.
En hér var ekki ætlunin að fara út
í fræðilegar útlistingar á lifandi eða
dauðri tónlist. Höldum okkur við ef-
nið.
Þrjú stig fyrir það
Sjö sveitir höfðu skráð sig til leiks
á fimmtudagskvöldið en þegar til kom
urðu þær fimm. Þar af vom aðeins
tvær sem upphaflega höfðu tilkynnt
þátttöku. Þetta vom Rocket írá Vík
í Mýrdal og Drykkir innbyrðis frá
Akureyri. Við bættust svo Þema frá
Akranesi, Fyrirbæri úr Reykjavík og
Sex púkar, einnig úr Reykjavík.
Hljómsveitin Fyrirbæri, sem á ættir
að rekja í Hagaskólann, reið á vaðið.
Lögin urðu flögur eins og lög (keppn-
innar) gerðu ráð fyrir. Þrátt fyrir
ungan aldur vom piltamir hinir
bröttustu en nokkuð misjafhlega
heyrðist í þeim félögum. Hljómborðið
svo að segja yfirgnæfði allt og lítið
sem ekkert heyrðist í frægasta liðs-
Púkamir sex byggðu allt sitt á
kröftugum bassa og trommuleik og
var keyrslan í góðu lagi. Söngvarinn
var einkar frískur og lagði sig greini-
lega allan fram. Lög púkanna voru
nokkuð keimlík en tónlistin skar sig
úr því sem heyrst hafði fyrr hjá hin-
um. Kvöldið hefði orðið líflausara án
Púkanna.
Brandararnir bestir
Og þá var komið að gestum að gefa
sveitunum atkvæði. Á heildina litið
var meðalmennskan allsráðandi. Út-
setningar voru afar keimlíkar, dans-
taktur- bassi og trommur
kryddaður með gítar og hljómborði.
Engin sveitanna skar sig verulega úr,
nema ef vera skyldi Rocket sem mér
fannst áberandi slökust. Það var því
úr vöndu að ráða fyrir flesta. Fjöl-
margir aðdáendur úr Mýrdalnum
virtust þó ekki í neinum vafa.
Á meðan atkvæði voru talin lék
Possabillies með kómíkerinn Jón Ól-
afsson í broddi fylkingar. Hann og
Stefán höfðu fengið í lið með sér
Bítlavinina Rafn og Harald auk ann-
ars pilts sem ég man ómögulega hvað
heitir.
Possabillies voru að hita upp fyrir
tvenna hljómleika kvöldið eftir (í
gærkveldi) og gerðu það með sóma.
Jón var í aðalhlutverki, mjög lið-
tækur píanóleikari, en brandararnir
hans eru mun betri en söngurinn.
Það er greinilegt að Possabillies
eiga ýmislegt ósagt í íslenskri dægur-
tónlist. Þeir eru í örum vexti, eins og
einhvem tímann var sagt um Kröflu.
Veinandi Víkurbúar
Eftir nokkra bið stigu kynnamir
Ásgeir og Gunnlaugur á sviðið til-
búnir með úrslitin. Baráttan um
annað sætið hafði verið svo hörð að
telja þurfti atkvæðin þrisvar. Þá kom
í ljós að þar sátu Skagamennimir og
stúlkan í Þema. Pent klapp og gestir
biðu spenntir eftir framhaldinu. Það
kom ekki á óvart. Mýrdalsmennirnir
í Rocket höfðu unnið yfirburðasigur,
fengu rúmlega þúsund stigum meira
en Þema. Rútubílafarmurinn veinaði
af fögnuði og þögull minnihlutinn
gekk út.
Þrátt fyrir slík úrslit er maður ó-
bugaður. Það á ýmislegt eftir að
gersist enn í þessari stórskemmtilegu
keppni. -ÞJV
manni sveitarinnar. Sá heitir Krist-
ján Eldjárn og tilkynntu rásarkynn-
arnir stoltir að hann léki á gítar í
topplaginu La Líf. Fíl al afturábak.
Þema frá Akranesi steig næst á
sviðið og skartaði sveitin söngkonu.
Þema mun vera sprottin úr hljóm-
sveitinni Winston light orchestra sem
Drykkir innbyrðis
Næstir vom Rocket frá Vík í Mýr-
dal. Þeir vom á ensku línunni og
aldeilis engir unglingar að sjá. Burt-
séð frá því var tónlist sveitarinnar
afar litlaus. Lög eins og Mystery,
Going insane og Loneliness, allt
aðinn yfirgnæfði gjörsamlega urrið í
rútunum tveim sem biðu úti á plani.
Drykkir innbyrðis var tvímælalaust
besta nafh kvöldsins. Álíka ferskt og
Skriðjöklanafnið góða. Tónlistin bar
þess merki að sveitin hefur aðeins
æft í þrjá mánuði, fönkyfirbragðið í
Rúnar Friðriksson, söngvari hljóm-
sveitarinnar Drykkir innbyrðis.
Nafnið var tvímælalaust númer eitt
en sveitin sjálf komst ekki í úrslit.
Gitarleikari Rocket slær á létta
strengi.
Anna Halldórsdóttir, söngkona
Skagasveitarinnar Þema, í góðum
fílingi. Frammistaða hennar og
annarra liðsmanna kom sveitinni í
úrslit.
kom fram nokkrum sinnum í Roksý
á dögunum. Tónlist Þema var á dansl-
ínunni og vom lögin þeirra fjögur
mjög misjöfn að gæðum. Best var lag-
ið Allt eða ekkert þar sem gítarinn
og hljómborðið nutu sín vel. 3 stig
fyrir það.
þreytulegir rokkarar, mnnu átaka-
laust í gegn. Eldflaugin klykkti þó
út með hressum rokkara í sönnum
Dagsbrúnaranda, The working men,
og var það þeirra langbesta lag.
Að því loknu reis hálfur salurinn
úr sætum og fagnaði óskaplega. Háv-
anda Pax Vobis leyndi sér ekki, sumt
var ágætlega gert, annað síður.
Síðastir á dagskrá vom Sex púkar,
ættaðir úr Reykjavík. Sú sveit hljóp
í skarðið með aðeins dags fyrirvara
sem verður að teljast afrek út af fyrir
sig.