Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Page 3
DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986.
3
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Mikill áhugi á söngvakeppninni:
„Reykjavík verður eins og draugabær
Hneyksli
Við erum komnir í sumarskap og langar
að ,,hneyksla6í Reykvíkinga.
r &H&CS V6Í °Pið frá W' 14.00-23.31
V % /A, <5 O- e< ,i mmr j______■ »
- það verða ekki maigir á ferii utanhúss í kvöld þegar sjónvarpað verður beint frá söngvakeppninni í Bergen
Gífurlegur áhugi er hér á landi á
Evrópusöngvakeppninni í Bergen.
Það stefnir nú í það að flestallir íslend-
ingar sitji límdir fyrir ffaman sjón-
varpstækin sín kl. 19 í kvöld, þegar
bein útsending hefst frá Grieg-höll-
inni. Margir spá ICY-flokknum og
Gleðibankanum sigri í keppninni. Það
verða örugglega ekki margir á ferli á
götum úti þegar keppnin fer ffam.
„Reykjavík verður örugglega eins og
draugabær, svipað og þegar Helgi
Hjörvar las söguna um Bör Börsson
hér um árið. Þá sást hvergi hræða á
götum úti,“ sagði Þorkell Þorkelsson,
forstjóri biffeiðastöðvarinnar Bæja-
leiða.
„Ég reikna ekki með að það verði
margir biffeiðastjórar við vinnu, þegar
atkvæði verða talin. Áhuginn á
keppninni er mikill hér á stöðinni, eins
og hjá flestum íslendingum. Þeir bíl-
stjórar, sem verða við akstur, hlusta
á beina útsendingu í biffeiðum sín-
um,“ sagði Þorkell.
Tómir strætisvagnar
„Það má fastlega búast við því að
bílstjórar okkar aki tómum vögnum
um bæinn á þeim tíma sem útsending-
in fer ffam. Nei, við fellum ekki niður
ferðir. Lífið verður að hafa sinn gang
þótt sungið sé í Bergen," sagði Sveinn
Bjömsson, forstjóri Strætisvagna
Reykjavíkur. 25 vagnar verða á ferð-
inni í kvöld.
„Það er búið að byggja upp geysilega
spennu fyrir þessa keppni. Fjölmiðlar
hafa verið yfirfullir af fféttum frá
Bergen síðustu daga, þannig að allir
íslendingar eru vel með á nótunum,"
sagði Sveinn.
Matsölustaðir tómir
DV hafði samband við marga mat-
sölustaði í gær til að kanna hvort
margir væru búnir að panta borð í
kvöld. „Það stefnir í mjög rólegt kvöld
hjá okkur. Ég man ekki eftir öðru eins.
Það verða fáir hér hjá okkur i mat,“
sagði veitingamaður á Hótel Holti.
„Það verður nær tómt hjá okkur í
kvöld og kannski ekki nema eðlilegt.
íslendingar taka nú í fyrsta skipti þátt
í söngvakeppninni," var svarið sem
við fengum hjá Amarhóli.
„Það var erfitt að fá fólkið til að
vinna. Allir vildu vera heima hjá sér
og horfa á söngvakeppnina. Það em
ekki margir sem em búnir að panta
borð. Við vonum bara að ICY-flokk-
urinn fari með sigur af hólmi með
Gleðibankann, þannig að fólk komi
eftir beinu útsendinguna til að fagna
sigri,“ sagði annar eigandi veitinga-
staðarins Við Sjávarsíðuna.
Skjálfti var kominn í eigendur Sjall-
ans á Akureyri í gær, því að Krútt-
magakvöld fer þar ffam í kvöld. Það
mátti heyra auglýsingar í útvarpi í
gær, þar sem konum var bent á að
sýnt yrði fiá söngvakeppninni í Berg-
en í sjónvarpstækjum í Sjallanum.
Lítið um poppkornsát í bíóum
DV hafði samband við nokkur kvik-
myndahús í Reykjavík í gær til að
kanna hvort sýningar yrðu felldar nið-
ur. Svo er ekki en eigendur húsanna
reikna ekki með mörgum á 5, 7 og 9
sýningar.
Nokkuð hefúr verið um það að fólk
hafi hringt í leikhúsin til að kanna
hvort sýningar yrðu ekki felldar nið-
ur. Nokkuð var um afpantanir hjá
Leikfélagi Reykjavíkur og DV hefur
frétt að nokkrir handhafar gulra korta
hjá Þjóleikshúsinu hafi ákveðið að
sleppa sýningu til að geta séð söngva-
keppnina.
Eins og sést á þessu verða ekki
margir á ferli utanhúss í kvöld. Menn
verða fyrir framan sjónvarpstækin sín.
-sos
„Ég fékk mér
GoldStcir
EIRÍKUR HAUKSSON
SÖN6VARI
myndbandstðeki til að missa ekki af
Eurovision. Þetta eru frábær tæki 09 á fínu verði!1
Aðeins kr. 35.980,- stgr.
GoldStar hefur alla möguleikana
* 83 rásir.
* 12 forvalsstillingar.
* 14 daga upptökuminni með 4
mismunandi tímum.
* Föst dagleg upptaka.
* Allt að 4 tima samfelld upptaka.
* Létt rofar.
* Þráðlaus fjarstýring með 13
stjórnaðgerðum.
* Truflanalaus samsetning á mynd i
upptöku.
* 5-föld hraðleitun fram og til baka.
* Kyrrmynd.
* Sjálfvirk spólun til baka.
* Rafeindateljari.
* Teljaraminni.
* Skýrt ljósaborð sem sýnir allar
aðgerðir tækisins.
* Þú getur horft á eina rás, meðan þú
ert að taka upp af annari.
* Með E.T.R. rofanum geturðu tekið
upp i ákveðinn tíma, V-z—4 klst., að
þvi loknu slekkur tækið sjálft á
upptökunni.
Síðasta sending seldist upp á 2 dögum.
Næsta sending
væntanleg eftir örfáa
daga.
Tökum á móti
pöntunum.
VIÐ TÖKUM VEL A MOTI ÞER
19
SKIPHOLTI
SÍMI 29800