Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Qupperneq 4
'4' DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986 Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar. Skoðanakönnun DV sýnir aukið fylgi stjórnarinnar. Skoðanakönnun DV: Meirihluti ríkis- stjómarinnar eykst Meirihluti ríkisstjómarinnar meðal landsmanna hefur vaxið að undan- fömu. Fylgi ríkisstjómarinnar meðal þeirra, sem taka afstöðu, er meira nú en verið hefur siðan í maí 1984. Þetta sýnir skoðanakönnunin, sem DV gerði um síðustu helgi. Af öllu úrtakinu í könnuninni segj- ast 44,7 prósent vera íylgjandi ríkis- stjóminni. Það er aukning um 9,7 prósentustig, síðan DV gerði könnun í janúarlok. Andvígir stjóminni eru 24,7 prósent, og hefúr fækkað um 6,3 prósentustig síðan í janúar. Óákveðnir em nú 20,7 prósent eða 6 prósentustig- um minna en var i janúar. 10 prósent vildu ekki svara spumingunni en vom 7,3 prósent í janúar. Af þeim, sem taka afstöðu, em því 64,4 prósent fylgjandi stjóminni en vom 53 prósent í janúar. Andvígir rík- isstjóminni em nú 35,6 prósent en vom 47 prósent í janúar. Stjómin hefur mjög aukið hlut sinn að undanfömu. Meirihluti hennar var til dæmis mjög tæpur í skoðanakönn- Ummæli fólks í konnuninni: Uppsveifla í landinu Karl á Reykjavíkursvæðinu sagði, að það væri uppsveifla í landinu en ný stjóm mundi eyðileggja hana, þeg- ar hann svaraði spumingunni í skoðanakönnun DV um fylgi stjómar- innar. Annar sagði, að víst væri, að vinstri menn mundu ekki gera betur. Karl á Reykjavíkursvæðinu kvaðst fylgjandi stjóminni með semingi. Ann- ar sagðist sáttur við stjómina - verðbólgan hefði minnkað. Kona á Reykjavíkursvæðinu sagði, að ríkis- stjómin hefði gert lítið fyrir sig. Kona á Blönduósi sagðist vilja hafa stjóm- ina, því að menn vissu, hverju þeir slepptu, ekki hvað þeir hrepptu. Karl á Fáskrúðsfirði sagði, að ríkisstjómin hefði kýlt verðbólguna niður á kostn- að fólksins. Það væri ekkert afrek. Kona á Reykjavíkursvæðinu sagðist ekki geta annað en verið á móti stjóm- inni. Önnur sagðist vilja hafa stjóm- ina eins og hún væri. Kona á Skagaströnd kvaðst enga skoðun hafa á þessari ríkisstjóm. Karl á Hvamms- tanga kvað stjómina fyrir neðan allar hellur. Karl á Akureyri sagði, að ríkis- stjómin væri stórgóð. Kona á Húsavík kvaðst óákveðin. Það virtist sama, hveijir væm við völd. Kona í sveit sagði, að ekki væri nema gott að segja um þessa stjóm. Kona á Reykjavíkur- svæðinu kvaðst hlynnt stjóminni eftir kjarasamningana. Áður hefði hún ve- rið á móti henni. -HH un DV í september 1985. Um áramótin 1984-1985 var stjómin í minnihluta. Hún hafði töluverðan meirihluta landsmanna á bak við sig í upphafi kjörtímabilsins. - Sjá nánar í með- fylgjandi töflum og súluriti. Urtakið í skoðanakönnuninni var 600 manns, og var jöfn skipting milli kynja. Helmingur úrtaksins er á Reykjavíkursvæðinu og helmingur því utan þess. Spurt var: Ertu fylgjandi eða andvígur ríkisstjóminni? .jjH Niðurstööur skoðanakönnunarinnar um fylgi rikisstjómarinnar urðu þessar. Til samanburðar eru niðurstöður fyrri DV-kannana á kjörtímabilinu: Nú Jan. '86 Sept. '85 Júní '85 Mars ‘85 Jan. '85 Okt. '84 Mai '84 Mars'84 Okt. '83 Fylgjandi 268 eða 44,7% 35% 34,8% 36,7% 40% 35% 34% 49,5% 56,8% 48,2% Andvígir 148 eða 24,7% 31% 32,7% 31,3% 37,8% 41% 38,5% 23,7% 17,2% 27,7% Óákveðnir 124 eða 20,7% 26,7% 27,5% 23,7% 15,8% 13,3% 16,8% 19,2% 21,5% 20,7% Svara ekki 60 eða 10% 7,3% 5% 8,3% 6,3% 17,7% 10,7% 7,7% 4,5% 3,5% Ef aðeins eru teknir þeir. sem tóku afstöðu , verða niðurstöðurnar þessar: Nú Jan. '86 Sept. ‘85 Júni '85 Mars ‘85 Jan. '85 Okt. '84 Mai '84 Mars '84 Okt. '83 Fylgjandi 64,4% 53% 51,6% 53,9% 51,4% 46,1% 46,9% 67,7% 76,8% 63,5% Andvígir 35,6% 47% 48,4% 46,1% 48,6% 53,9% 53,1% 32,3% 23,2% 36,5% Súluritið sýnir hversu margir voru fylgjandi og andvígir ríkisstjórninni í skoðanakönnunum DV á kjörtímabilinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.