Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Síða 8
8 DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986. Ferðamál Ferðamál Ferðamál Ferðamál „Eg er búin að týna flugmiðanum!“ Strandaglópur. Farseðillinn týndur, flugvélin farin og engir peningar fyrir nýjum miða. Vertu viss um að flugfélagið taki ábyrgð á miðunum og endurgreiði þá eða hjálpi til þegar slík óhöpp henda ferðalanginn. Mynd VHV Það að týna flugmiða er svipað og að glata reiðufé því erfitt er að koma í veg fyrir að þjófur eða óheiðarlegur finnandi snúi sér að næsta flugfélagi og fái miðann endurgreiddan eða selji hann á svörtum markaði. Það geta jafnvel liðið allt að 6 mánuðir frá því að tilkynnt er um skaðann og þar til viðkomandi fær endurgreiðslu frá flugfélaginu. Tilkynnið óhappið strax Fyrsta skrefið er að tilkynna missinn og fylla út þar til gerð eyðublöð. Þetta er ekki hægt að gera í gegnum síma og tilkynningin verður að berast til þess flugfélags sem í upphafi seldi mið- ann, jafnvel þótt hann gildi á mörgum leiðum. Til að geta fyllt eyðublaðið út þarftu að hafa ákveðnar upplýsing- ar tiltækar, s.s. flugnúmerin, dagsetn- ingu og staðinn þar sem miðinn var keyptur og númer á greiðslukorti ef miðinn var greiddur með þeim hætti. Ef miðinn var keyptur hjá ferðaskrif- stofu ætti að vera auðvelt að verða sér úti um afrit sem sýnir allar nauðsyn- legar upplýsingar. Öryggi greiðslukorta Gjaldið sem greiða verður þegar slík tilkynning er lögð inn er á bilinu frá 400,- krónum og upp í rúmar 2000,- krónur ( 10-50 $). Sumstaðar þarf að staðgreiða þessa upphæð en í öðrum tilvikum er hægt að fá hana dregna frá endurgreiðslunni. Það sem öllu máli skiptir er hvort búið er að nota miðann eða fá hann endurgreiddan. Þar eð fæst flugfélög taka nokkra ábyrgð á því að farþegar ffamvísi rétt- um persónuskilrikjum og víða á leiðum innanlands er þess jafhvel ekki krafist er tiltölulega auðvelt að mis- nota flugmiða. Eitt ráðið við því að tryggja sig gegn óhöppum sem þessum er að greiða með greiðslukorti því þá fer endurgreiðsla beint inn á það greiðslukortsnúmer sem skráð er á flugmiðann en er ekki greidd út. A flugleiðum milli landa eru minni líkur á að hægt sé að misnota fiug- miða sem týnst hafa því sýna þarf vegabréf og venjulega er nokkuð vel fylgst með að farþegar séu þeir sömu og skráðir eru á farseðlana. Þegar flugmiði týnist á miðri leið verður ferðamaðurinn þyí að kaupa nýjan miða og bíðaejljr endurgreiðslp þar p til ferðimú lj|cí® Þegar önnur lÍiðin ‘ af miða, sem feyptur var með afslætti, týnist getur það haft mikinn kostnað í för með sér því það er mun dýrara að kaupa miða aðra leiðina og oft jafn- dýrt og báðar leiðir á tilboðsverði. Það er þó nokkur huggun að flest flugfélög bæta mismuninum við endurgreiðslu. Kynnið ykkur skilmála Hægt er að tilkynna glataða flug- miða í allt að ár eftir að óhappið á sér stað. En það borgar sig ekki að bíða því um leið og búið er að tilkynna óhappið fer númerið á miðanum sjálf- krafa inn á svartan lista í tölvukerfi flugfélagsins og er því ómögulegt fyrir óviðkomandi aðila að nota miðann eða fá hann endurgreiddan. Athugið að ef þið eruð að ferðast erlendis á eigin vegum og skiptið við lítil flugfélög, sem bjóða ýmiss konar afslátt og ódýrar ferðir, þá fylgir oft sá böggull skammrifi að flugfélagið er ekki ábyrgt fyrir miðum sem týnast eða er stolið. Kynnið ykkur því þetta atriði hjá þeim flugfélögum sem þið ætlið að fljúga með. -S.Konn. Um leið og þú pantar'farmiðana í - „500 dollara á dag“-ferðina með Gyðju hafsins leynir sér ekki hvað um er að vera. Þú færð miðana aflienta í sér- stöku leðurveski frá Cartier sem framleiðir og selur einhveija dýrustu skartgripi í heimi. I veskinu er einnig listi þar sem beðið er um upplýsingar um eftirlætisvínin þín og hvað þú kýst helst að borða. Einnig er spurt um hvaða íþróttir þú kýst að stunda, hvað þig langar til þess að sjá í landi og yfirleitt hvernig þú kýst að eyða dög- unum um borð í lúxusskipinu. Upplýsingunum er síðan komið til skipsins í gegnum gervihnött þannig að þegar þú kemur um borð er allt til reiðu. Eftirlætisdrykkimir þínir eru í bamum þínum og biytinn hefúr þegar látið skrá þig í sána og nudd. Hann hefúr einnig fengið gestaaðild að golf- Þýska farþegaskipið Evrópa frá Bremen liggur þama fyrir utan Vestmannaeyjar. Hvenær skyldu Islendingar eignast nýtt farþegaskip? Ekki verið að horfa í aurana: Nóg af fólki sem vill greiða offjár fyrir lúxusferðir og tennisklúbbum á þeim stöðum þar sem höfð verður viðdvöl. Svona umhyggja er ekki ókeypis. Sjö daga sigling um Miðjarðarhafið, Karabíska hafið eða með ströndum Suður-Ameríku kostar 8700 dollara fyrir tvo eða sem samsvarar kr. 355.185 ísl. kr.! En þá er líka allt innifalið; kokdillar fyrir allar máltíðir, sem eru eingöngu sælkeramáltíðir, og úrvalsvín og alls kyns skemmtiatriði. Séð er um að bar- inn í klefanum þínum sé jafnan búinn eftirlætisdrykkjunum þínum og þér er heimilt að hringja í herbergisþjón- ustuna jafnt á nóttu sem degi og biðja um það sem hugurinn gimist, einnig kampavín og kavíar! Það er auðvitað til mikils hagræðis að þurfa ekki sífellt að vera með budd- una á lofti. Það var einmitt það sem farþegar með Eddunni forðum ræddu mikið um. Þó farið sjálft væri ekki svo dýrt þurfti að greiða fyrir hvaðeina sem fólk fékk um borð - og það dýru verði! Ekki vantar farþega Þeir sem gera út þetta forláta skip hafa tvö skip í förum, Gyðju hafeins 1 og Gyðju hafcins 2. Það var næstum þvi fullbókað í allar ferðirnar i fyrra. Það er nóg af fólki sem er reiðubúið að greiða háar fjárhæðir fyrir að þurfa ekki að vera innan um almenna sólar- landaferðalanga og kýs heldur að vera með öðrum moldríkum ferðalöngum í fámennum hópum. Gyðjumar taka ekki nema 116 far- þega hvor og eru með 80 manna áhöfn. Skipin eru 4.253 tonn og 344 fet á lengd og geta þess vegna lagst að bryggju í hvaða höfh sem vera skal. Annað lúxusskip f förum með auð- menn heitir Evrópa og er gert út frá Bremen. Það er 33 þúsund tonna skip sem tekur 600 farþega. Sögur segja að um borð fái hver farþegi helmingi meira rúm en í nokkru öðru farþega- skipi. Skemmtistaðimir í skipinu em allir á afturdekki en farþegaklefamir á framdekki. Þannig em farþegamir hvorki ónáðaðir af dynjandi diskó- hljómlistinni né vélamiði begar þeir ganga til náða. Þeir sem ferðast með Evrópu em aðallega þýskumælandi en skipið siglir um Kyrrahafið og kem- ur víða við. Það leggur einnig leið sína um norðurhöf og hefur oft komið til íslands. Astarlíf hvalanna skoðað Ein aðalferðin í ár, sem boðið er upp á með Evrópu, er 27 daga sigling sem farin verður í maí. Farmiðinn kostar 182.250 íslenskar krónur fyrir mann- inn í tveggja manna klefa. Þar í er allt innifalið nema drykkimir. Far- þegamir em fluttir frá Frankfurt flugleiðis til Anchorage í Alaska þar sem þeir stíga á skipsfjöl. Fyrst er siglt til Jökulflóa og fylgst er með ástarleik hvalanna. Þá er haldið til Vancouver þar sem farþegar geta heimsótt heims- sýninguna. Síðan er siglt til Balboa í Panama með viðkomu í San Francisco og Los Angeles. Síðan heim til Frank- furt með flugi. Heimsreisa með Drottningunni Ef ykkur hefur ofboðið verðið á lúx- usferðunum með Gyðjum hafsins eða Evrópu eigið þið eftir að heyra rúsín- una í pylsuendanum. 96 daga heims- reisa með stærsta farþegaskipi heims, Queen Elizabet 2, kostar í aldýrustu lúxusíbúðinni hvorki meira né minna en 55.050 pund sem okkur reiknast til- að sé hvorki meira né minna en 3,4 milljónir! En þá er líka um að ræða sér íbúð með eigin verönd! Cunard skipafélagið er að keppa við flugfélögin um.farþegana og reynir að lokka þá til sín með fargjöldum sem erlendis eru talin „ódýr“, en sennilega hefði enginn íslendingur efhi á taka sér slíkt far. Þó veit maður aldrei. Hægt er að komast frá Southampton til New York og til baka aftur fyrir rúml. 97 þús. kr. fyrir tvo. Leiguflug með Concorde Frá öllum þessum kostaferðaboðum fyrir ríka fólkið er sagt í ferðagrein í New York Herald Tribune. Fyrir utan þessar lúxussiglingar er sagt frá því að nú er farið að leigja Concordþotur út í alls kyns lúxusferðir. Breska flug- félagið British Airways ku búið að kaupa sjöunda Concordinn sinn til þess að anna dagsferðuym með þessum hljóðfráu vélum til ævintýrastaða eins og íslands (er fyrst f upptalningunni), Leningrad, Kaíró eða Aþenu. Dagsferðin til Islands kostar 635 pund eða 39.500 kr. en ekki er getið um hvað boðið er upp á annað en „Víkingahátíð" í ferðinni. Kaíróferðin er dýrari, kostar 835 pund eða 52 þús- und pund. Það er hins vegar kostaboð og boðið upp á ýmislegt. Það er hins vegar betra að vera vel fyrirkallaður þegar lagt er upp í slíka dagsferð til þess að njóta hennar nægilega vel. Fyrst er boðið upp á stórsteikar- morgunverð í þotunni en flugið til Kaíró tekur 3 tíma. Pýramídamir eru heimsóttir, farið í grafhýsi Keopspýr- amídans, komið við hjá Sphinxinum og hádegisverður snæddur á Holiday Inn. Þá er farið á markaðinn, borgin skoðuð og komið aftur til London um kl. 21.30. Á heimleiðinni er snæddur fimm rétta hátíðamatur. Marga fysir að fljúga með Concord- inum, segir í greininni, en hafa ekki efni á að nota hana í langferðum og vilja því gjarnan komast í svona dags- ferðir! Það var vinsælt hér áður og fyrr að „sigla“ með Gullfossi en sfðan honum var lagt hafa siglingar með ferðafólks aflagst hjá „einni af mestu siglinga- þjóðum heims“. Tilraunin með Edduna mistókst, enda var þar ekki um farþegaskip til úthafssiglinga að ræða. Það næsta sem íslendingar komast því að sigla milli landa er að , notfæra sér færeysku feijuna Smyril. En það er heldúr ekki farþegaskip í þeim skilningi. -A.Bj.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.