Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Side 9
DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986.
9
Ferðamál Ferðamál Ferðamál
RANGE ROVER
Bildshöfða 16, símar 681530 og 83104.
árg. 1978, 2ja dyra, grár, beinskiptur, 4ra gíra með
yfirgír, ekinn 100 þús. km. Mjög góður og fallegur.
Verð kr. 475 þús. Góð kjör.
TÖGGURHE
UMBOÐ FYRIR SAAB OC SEAT
Næturferð í lest
Fyrir þá sem taka lestarferðir fram
yfir flug er mjög líklegt að þannig hitt-
ist á að ferðast sé að næturlagi. Þetta
á sérstaklega við um þá sem ferðast
þvers og kruss um Evrópu á svoköll-
uðum Interrail miðum. Bæði sparar
næturferðin dýrmætan tíma og þannig
gefet betri kostur á að nýta dagana á
hveijum viðkomustað og ferðamaður-
inn sparar sér oft skilding við að þurfa
ekki að greiða fyrir gistingu á hóteli
eða gistiheimili.
Næturferð í lest býður upp á fjóra
möguleika:
1) Sitja uppi í sætinu alla nóttina.
Flestum þykir þetta fremur þreytandi
nema þeim allra hörðustu sem geta
sofið við erfiðustu aðstæður. Þó eru
líkur á því að skoðunarferðin daginn
eftir geti reynst erfið en þetta er tvi-
mælalaust ódýrasti kosturinn.
2) Keypt sæti sem hægt er að leggja
niður. Þetta er mjög góður kostur ef
þú ert einn af þeirn heppnu og nærð
í slík sæti. I sex sæta klefa er hægt
að draga öll sætin út og mynda stórt
rúm en hve mikill hluti af því svefti-
plássi kemur í þinn hlut veltur á hve
margir eru í klefanum eða hve tillits-
samir samferðamenn þínir eru.
3) Svefiisæti sem eru sæti á daginn en
ágætis rúm yfir nóttina. Á öðru far-
rými eru 6 slík sæti í hveijum klefa
en 4 á fyrsta farrými. Fyrir u.þ.b. 500,-
krónur færðu lak, teppi og kodda og
aðgang að baðherbergi. Slíkir klefar
hafa allir farangurshillur en það borg-
ar sig samt að taka öll verðmæti og
stinga undir koddann. Útlit og þæg-
indi klefa sem þessara eru þó mjög
mismunandi eftir löndum, t.d eru þeir
mjög góðir í Sviss og Þýskalandi en
fremur óaðlaðandi og þröngir á Spáni
og Ítalíu. Eini gallinn við þetta er sá
að yfir háannatímann er nauðsynlegt
að panta fram í tímann, í minnsta lagi
5 klukkustundum fyrir brottför.
4) Svefhklefar. Svefhvagnar eru auð-
vitað þægilegastir en þeir eru jafn-
framt mun dýrari en svefiisæti. Þeir
eru þó mjög mismunandi eftir löndum
en yfirleitt eru tvenns konar gjald-
skrár. í Vestur-Evrópu eru það kojur
með sængurfötum, vaskur, sápa og
heitt vatn og stundum sérsalemi en í
Suður-Evrópu, að maður tali ekki um
austurblokkina, eru þægindin ekki
svona mikil. Að meðaltali kostar
svefnklefi rúmar 1000,- krónur og er
verðið breytilegt eftir þeirri vegalengd
sem þú ætlar að ferðast.
Nokkur heilræði
*Oft em lestir komnar á stöðina allt
að klukkutíma fyrir brottför. Ef þú
hefur átt erfiðan dag er gott að vera
kominn snemma og geta komið sér vel
fyrir í rólegheitum.
*Ef þú ert í svefnklefa reyndu þá að
ná í efri koju því hún er venjulega
rýmri og næðið er meira. Áður en þú
ferð um borð leitaðu þá eftir gulri rönd
utan á vögnunum en hún táknar að í
klefanum sé svefhsæti eða fyrsta far-
rými.
*Ef þú ferðast að næturlagi yfir landa-
mæri mun eftirlitsmaðurinn taka
vegabréfið þitt og miðann svo ekki
þurfi að vekja þig upp um miðja nótt.
Það þarf varla að taka það fram að
þetta á ekki við þegar farið er um
landamæri landa í Austur-Evrópu. Þar
vekja landamæraverðimir þig upp
eins oft og þeim sýnist.
*Fæstar lestir hafa matarvagna eða
bar opinn að næturlagi. Ef þú ert einn
af þeim sem verður banhungraður um
miðnætti eða hefúr það fyrir sið að fá
þér koníaksstaup fyrir svefriinn skaltu
hafa með þér nesti.
*Bestu lestimar til að sofa í em þær
sem ekki fara yfir „erfið“ landamæri
og stoppa ekki á nokkurra tíma fresti.
Hér á eftir fer listi yfir nokkrar góðar
„svefnlestir" í Evrópu.
Amsterdam-Kaupmannahöfn
Amsterdam-Munchen
Barcelona-Genf
Barcelona-Madrid
Barcelona-Nice
Barcelona-París
Basel-Hamborg
Brussel-Genf
Brussel-Hamborg
Hamborg-Munchen
Heidelberg-Lugano
London-Edinborg
Malmö-Stokkhólmur
Madrid-Lissabon
Milano-París
París-Amsterdam
París-Chamoinx
París-Munchen
París-Nice
Róm-Nice
Vín-Köln
Vín-Frankfurt
Vín-Lindau
Vín-Feneyjar
-S.Konn.
Viðskipti og ferðalög:
Dagleg eyðsla ferðalangs
í viðskiptaerindum
í 14 Evrópulöndum
Fólk sem tekur þátt í svokölluðu
athafhalífi, stundar verslun og við-
skipti, þarf mikið að ferðast starfsins
vegna. Þetta fólk, sem á ensku fellur
undir „business travellers" hefur orðið
til þess að í ferðamannaiðnaðinum og
hjá öllum stærri flugfélögum má alltaf
finna sérfargjöld og skilmála sem sér-
staklega er ætlað að þjóna athafna-
fólkinu og skyldi engan undra því
þeim fjölgar sífellt sem ferðast vegna
viðskiptaerinda. Hér á eftir fer listi
yfir daglegan kostnað athafhamanns-
ins í 14 Evrópulöndum, þau 7 dýrustu
og 7 ódýrustu. Það vekur athygli að
Finnland, Noregur og Svíþjóð eru dýr-
ust samkvæmt athugun tímaritsins en
Danmörk lendir í hópi þeirra 7 ódýr-
ustu.
í tölunum sem fara hér á eftir og eru
fengnar að láni úr tímaritinu Business
Traveller er miðað við dagpeninga í
helstu verslunar- og iðnaðarborgum
viðkomandi landa. Upphæðin felur f
sér greiðslu fyrir eins manns herbergi
með baðherbergi á fyrsta flokks hóteli
og innifaldar eru einnig máltíðir og
þjónustugjöld. Upphæðin felur einnig
í sér eyðslu í skemmfönir og annað
það sem athafanafólki kynni að detta
f hug að gera sér til dundurs, en allt
í hófi eins og gefur að skilja.
ljFinnland 10.332,-
2)Noregur 10.143,-
3) Svíþjóð 9.198,-
4) Belgía 9.072,-
5) Lúxemborg 7.938,-
6) Holland 7.875,
7) Bretland 7.812,-
Ódýrustu löndin
DGrikkland 4.032,-
2) Júgóslavía 4.662,-
3) Tékkóslóvakía 5.418,-
4) Portúgal 5.607,-
5) A-Þýskaland 6.111,-
6) Búlgaría 6.174,-
7) Danmörk 6.615,-
Um næstu helgi munum við birta
sambærilegar tölur yfir borgir í Asíu
og Ástralíu. -S.Konn.
Citroen BX 16 TRS
árg. 1983, 5 dyra, silver, beinskiptur, 5 gíra, ekinn að-
eins 26 þús. km. Mjög fallegur bíll.
TÖGGURHF
UMBOD FYRIR SAAB OG SEAT
Bíldshöfða 16, símar 681530 og 83104.
Saab 99 GL ðrg. 1979, 2ja dyra, Saab 900 GLE árg. 1982, 4ra dyra
brúnn, beinskiptur, 4ra gira, ekinn 98 Ijósblár, ekinn 78 þús. km, sjálfskiptur
þús. Verö 140 þús. + vökvastýri. Mjög góður bíll. Verð
390 þús.
Saab 900 GLE árg. 1982, 4ra dyra, Saab 900 GLE árg. 1981, 4ra dyra,
Ijósblár, beinskiptur, 5 gíra + vökva- silver, sjálfsk. + vökvastýri, litað
stýri, ekinn 48 þús. km. MJög fallegur gler, ekinn aðeins 60 þús. km. Bíll í
bill. Verð 390 þús. algjörum sérflokki. Verð 345 þús.
Opið laugardag kl. 12-16. Ath. breyttan opnunartíma.
TÖGGURHE
UMBOÐ FYRIR SAAB OG SEAT
Bíldshöfða 16, símar 681530 - 83104.