Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Blaðsíða 14
14
DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986.
Hirohito 85 ára:
Fangi á heföar-
tindi í 60 ár
Japanskeisari, Hirohito,
varð 85 ára þann 29. apríl.
Og hann getur líka haldið
upp á sextíu ára starfsaf-
mæli. í tilemi af hvoru-
tveggja afmælinu verður
haldin mikil veisla í Japan. For-
sætisráðherra landsins, Yasuhiro
Nakasone, hefur verið helsti
hvatamaður þess að haldin verði
mikil veisla - en keisarinn sjálfur
hefði víst helst viljað sleppa öllu
húllumhæi: hann vill helst fá að
lifa og hrærast í friði í sínu horni
á bak við háa múra umhverfis höll-
ina í miðborg Tokýo.
En undirbúningur vegna hinnar
miklu veislu hefur staðið lengi.
Og enginn hefur í alvöru tekið til-
lit til þess að afmælisbarnið sjálft
vill helst halda upp á hið tvöfalda
afmæli með því að halda áfram að
dunda í garðinum sínum, snæða
miðdegisverð með fjölskyldunni,
horfa á uppáhaldsþættina sína í
sjónvarpinu (tvær sápuóperur sem
eru endalaust á dagskrá japansks
sjónvarps) og rölta kannski út á
svalir þrisvar eða fjórum sinnum
og veifa til fólksins.
En Japanskeisari verður stund- .
um að fara eftir því sem aðrir vilja
og ákveða. Forsætisráðherrann
vill veislu og þá verður veisla.
Auglýsing fyrir Nakasone
Menn eru fyrst og fremst að halda
upp á það að Hirohito hefur verið
keisari í sextíu ár. Svo lengi hefur
ekki nokkur önnur sála setið í há-
sæti þjóðar sinnar. Reyndar er sjálft
afmælið ekki fyrr en þann 26. des-
ember næsta vetur, en Nakasone vill
ekki og þorir ekki að bíða svo lengi
með hátíðahöldin því hann skiptir
það miklu að fá að vera með í veisl-
unni. Þá munu augu umheimsins
beinast að Japan og óvíst er hvort
Hirohito keisari
Nakasone verður í embætti forsætis-
ráðherra í desember á þessu ári. Það
er jafnvel fremur trúlegt að karlinn
sá verði oltinn úr sessi. Þess vegna
var afmælið þann 29. apríl núna tvö-
falt.
Nakasone var ekki einn um að núa
saman höndum í æsingi vegna veisl-
unnar. Þegar upp gýs spenningur í
kringum kóngafólk, margfaldast sal-
an í minjagripum. Japanskir versl-
unarmenn og minjagripasalar hafa
beðið eftir þessu tækifæri lengi. Þeir
reiknuðu strax með að geta rakað
saman milljónum með því að þrykkja
mynd af keisaranum sem víðast, allt
frá ruggustólum til vekjaraklukkna.
Og fjármálaráðuneytið í Japan
reiknaði með því að græða eitthvað
líka - aðallega með því að selja
minnispeninga með mynd keisarans.
Og um það mál hafa menn rifist heift-
arlega í Japan. Þar í landi sýna menn
aldrei mynd af þjóðhöfðingjanum.
Hann er ekki á peningum, frímerkj-
um eða póstkortum. En nú á að
breyta til - þrátt fyrir mótmæli. Þeir
sem mótmæla, segja að myndir af
keisaranum á peningum og frímerkj-
um minni þá um of á þá tíma, þegar
myndir af keisaranum voru á hvers
manns náttborði og í hverjum skóla.
Þá urðu börnin að hneigja sig fyrir
myndinni af keisaranum á hverjum
degi. Og þegar sprengjunum rigndi
yfir japanska barnaskóla í heims-
styrjöldinni tókst iðulega ekki að
bjarga neinu úr fallandi byggingun-
um nema myndinni af keisaranum.
Ábyrgð keisarans
í september 1945 nam aldraður her-
bíll staðar utan við sendiráð Banda-
ríkjanna í Tokýo. Út úr bílnum steig
miðaldra herramaður, klæddur rönd-
óttum buxum og svörtum jakka.
Pípuhatturinn virtist of stór miðað
við fuglslegan kroppinn og signar
axlimar. Þessi litli maður gekk hik-
andi inn í anddyri sendiráðsins þar
sem hershöfðingi einn bauð hann
velkominn. Og svo var honum vísað
inn til mannsins sem réð yfir Japan
þá stundina. Herramaðurinn, sem
kom í sendiráðið, var Hirohito keis-
ari hins fallna, japanska herveldis.
En ráðamaðurinn bandaríski var
fulltrúi Bandaríkjaforseta í Japan,
MacArthur hershöfðingi.
Eftir fund þeirra sagði MacArthur:
- Ég var innilega hrærður. Hann
var réttborinn keisari en mér fannst
að á þessari stundu hefði ég hitt fyr-
ir kurteisasta heiðursmanninn í
Japan.
MacArthur var fyrst og fremst
hrærður yfir því að keisarinn vék sér
ekki undan ábyrgð sinni, ábyrgð á
pólitískum og hernaðarlegum á-
kvörðunum, sem Japan hafði tekið í
stríðinu.
Og vera má að MacArthur hefði
orðið enn dýpra snortinn af litla
manninum, hefði hann vitað, að fyrir
þennan fund þeirra var keisaranum
uppálagt að láta alls ekki í það skína
að hann bæri minnstu ábyrgð á því
sem gerst hafði. En Hirohito keisari
axlaði sína ábyrgð og varð þar með
trúfega til þess að viðhalda keisara-
stofnuninni í Japan um næstu
framtíð.
MacArthur er látinn, eins og flest-
ir þeir sem horfðu upp á eða tóku
þátt í blóðbaðinu á Kyrrahafssvæð-
inu. Eini maðurinn, sem var í
aðalhlutverki i hildarleiknum og enn
tórir, er Hirohito.
Eftir stríðið var Hirohito sakaður
um að vera beinlínis ábyrgur fyrir
árásarstyrjöld Japans. Um leið og
MacArthur hafði sett upp hernáms-
búðir sínar í Tokýo, fór fólk að
mótmæla utan við bandaríska sendi-
ráðið í borginni, krefjast þess að
Hirohito keisari yrði dæmdur fyrir
stríðsglæpi.
Margir áhrifamiklir Bandaríkja-
menn vildu og leggja niður keisara-
dæmið. En MacArthur hershöfðingi,
sem og margir borgaralegir ráðgjafar
Trumans forseta, litu svo á að yrði
keisaranum hrundið úr hásæti og
keisaradæmið lagt niður myndi
verða óeirðasamt '4 landinu og
Bandaríkjamenn baka sér vandræði.
Keisarinn sat því áfram í hásætinu,
varð tákn einingar þjóðarinnar - og
situr enn.
„Guðdómlegur“
Keisarinn er enn tákn þjóðarein-
ingar. Og margir fullorðnir Japanir
líta á hann sem meira en keisara. í
augum þeirra öldruðu Japana er
hann mergurinn í þjóðarsálinni og
þeir dýrka hann eins og helgan mann
eða öllu heldur helgidóm. Um þessar
mundir er verið að sýna um allt í
Japan kvikmyndir af keisaranum og
margir áhorfendur bresta í grát þeg-
ar þeir líta blíðlega manninn á hvíta
tjaldinu.
í Japan er það flokkur „frjálsra
demókrata" sem fer með stjómar-
taumana. Sá flokkur skipaði nefnd í
að undirbúa sextíu ára afrnæli Hiro-
hito í hásæti. Flokkurinn stefnir að
endumýjun stjómarskrárinnar, og
talar um Japani sem „þjóðlega fjöl-
skyldu" með „hreint blóð“, leidda
áfram af keisaranum. Af þessu leiðir
að Japanir telja sig allt öðruvísi þjóð
en Vesturlandamenn.
En ekki hugsa allir í Japan á þessa
lund. Á þingi sitja líka sósíalistar.
Þeir líta svo á að keisarann hefði átt
að draga fyrir rétt sökum þátttöku
sinnar í stríðsundirbúningi og fram-
kvæmd styrjaldarinnar.
En meirihluti Japana vill hafa sinn
keisara. 84% þeirra líta svo á að
keisarinn eigi áfram að vera tákn
fyrir Japan út á við. Þessi mikli
meirihluti hefur orðið til þess að
jafhvel þeir sem eru lengst til vinstri
í japönskum stjómmálum hafa end-
urskoðað afstöðu sína til keisarans,
vegna þeirrar rótfestu sem keisarinn
greinilega hefur í japanskri þjóðar-
sál.
En afstaða kynslóðanna er í grund-
vallaratriðum ólík. Þeir eldri líta
nánast á keisarann sem guðdómleg-
an. En það dettur þeim yngri ekki í
hug að gera. Þeir yngri, um það bil
60% þjóðarinnar, taka keisarann
hreint ekki svo alvarlega.
Haffræðingur
Það er ekki margt vitað um einka-
líf keisarafjölskyldunnar. Keisarinn
tekur einungis þátt í örfáum opin-
berum athöfnum á hverju ári. Þess á
milli ver hann tíma sínum í að kanna
lífríki sjávar. Hann er viðurkenndur
haffræðingur og sinnir vísindunum í
eigin tilraunastofum innan hallar-
múranna.
Hirohito keisari fæddist inn í keis-
arastofnunina og hefur ekki séð svo
mikið af lífi fólksins utan múra. En
nú spá menn því að hefðir og siðir í
kringum japanska keisarastólinn
breytist með næstu kynslóð. Núver-
andi krónprins varð fyrstur til þess
í fjölskyldunni að giftast út fyrir jap-
anskt hefðarstand og sonur hans
mun sennilega gera slíkt hið sama.
En nútíminn hefur náð í skottið á
japönsku keisarafjölskyldunni með
einu móti: Vikublöðin hafa byrjað
að hundelta keisarafjölskylduna upp
á vestrænu; hefðu þau beitt aðferðum
sumra vestrænna fjölmiðla fyrir
styrjöld hefði verið litið á það hátta-
lag sem alvarlega móðgun við
keisara og þjóð.
Fjölmiðlarnir hafa mestan áhuga á
Hiro, sonarsyni keisarans og manni
númer tvö í röðinni upp að hásæt-
inu. Hiro er kominn á giftingaraldur
og vikublöðin velta mjög vöngum
yfir hverri hann helst ætti að gift-
ast. Og setja fram kröfur á hendur
væntanlegri keisaraarfabrúði: hún á
að tala mörg erlend tungumál. Hún
verður að vera lægri en 163 cm (Hiro
er 163 cm). Hún verður að vera jap-
önsk og jómfrú í gamaldags merk-
ingu þess orðs.
Tímarit fyrir alla
Nýtt hefti á
blaðsölustöðum
nuna.
4. HEFTI - 45. ÁR - MAl 1986 - VERÐ KR. 160
Skop .................................. 2
Hvers vegna menn berja konur sínar .... 3
Hvað þýða draumarnir? ................. 9
Góðráðtiltölvunotenda ................ 15
Kossinnogsagahans .................... 17
Einn til atlögu við sjóræningja ...... 22
Rugluð Rúmenía Ceausescus ......,.... 29
Ótrúlegt en satt:
Skórinn sem kom úr heiðskíru lofti ... 35
Fórnarlambið ......................... 38
Siglingará þurru landi .............. 41
Hugsun í orðum ....................... 46
Hvað
þýða draumarnir?
Bls. 9
Kossinn
og saga hans
Bls. 17
Siglingar
á þurrulandi
Bls. 41
Syndin
er að breytast
Bls. 68
Hvers
VEGNA
MENN
BERTA
KQNtin
SINAR
Bls. 3
Helstu trúarbrögð heims:
Gyðingdómur ............................ 48
Úrvalsljóð ............................ 66
Syndin erað breytast ................... 68
Völundarhús ........................... 76
Postojna
-Arnarhellarnir undursamlegu ........... 77
Ungafólkiðogumferðin ................... 85
Kolefni:
Efni sem líkaminn hafnarekki .......... 88
Framliðnirviljaendurnýjast ............ 93